19. júní - 19.06.1997, Blaðsíða 32
Þaö er staðreynd að staða
kvenna og karla á vinnu-
markaði er ekki jöfn.
Rannsóknir sýna að
kynjunum er mismunað
þegar kemur að laun-
um, bæði sem ein-
staklingum og með
því að störf sem kalla
mætti kvennastörf
eru lægra metin en
svokölluö karlastörf.
Venjan er sú að því
hærra sem hlutfall
kvenna er í ákveð-
inni stétt, því lægri
eru launin. Þrátt fyrir
það hefur skipting
kynjanna á náms- og
starfsgreinar lítið
breyst árum saman.
Á sama tíma er staða
karla mjög slök þegar
kemur að möguleikanum til
að setja fjölskyldulífið í for-
gang, sem ekki er til að bæta stöðu kvenna í at-
vinnulífinu.
Við getum því sagt að það sé fyrst og fremst
tvennt sem þurfi að gera til að jafna stöðu kynj-
anna: Bæta stöðu kvenna á vinnumarkaði og auð-
velda körlum að taka þátt í fjölskyldulífi og uppeldi
barna sinna.
Óskiljanlegur launamunur
Hér á landi er munur á launum karla og kvenna
sem á engan hátt er hægt að útskýra með mennt-
un, starfi, hæfileikum eða starfsaldri. Einu skýring-
arnar eru gamaldags kynjahlutverk og fordómar;
vinna kvenna er einfaldlega ekki talin eins mikils
virði og vinna karla. í skýrslu Jafnréttisráðs íslands
um launamyndun og kynbundinn launamun sem út
kom í ársbyrjun 1995 kemur fram að íslenskar kon-
ur hafa að meðaltali um 78% af launum karla fyrir
sambærileg störf og fer hlutfallið niður í 70% ef
bæði er tekið tillit til dagvinnulauna og auka-
greiðslna. Þegar um jafnaðarkaup er að ræða lækk-
ar hlutfallið enn eða niður í 68%. Karlar fá auk
þess mun oftar ýmiss konar aukagreiðslur meðan
konur eru á hreinum taxtalaunum, þeir fá oftar yf-
irvinnu, meiri fríðindi í tengslum við starfið og eiga
auðveldara með að fá stöðuhækkun. Bilið milli
launa kynjanna eykst síðan enn frekar með aukinni
menntun.
Við þetta má svo bæta að samanburðurinn verð-
ur enn óhagstæðari fyrir konurnar þegar kemur að
ævitekjunum, þar sem það eru, enn sem komíð er,
aðeins þær sem geta tekið fæðingarorlof, og enn
eru það einkum þær sem verða að taka sér frí frá
vinnu vegna heimilis og barna.
Tæknifræðingur, stúdentspróf og ] ogi/i árs nám
í Tækniskóla íslands. lieðaldagvinnulaun ikj.o^ kr.
heðalheildarlaun alls 216.590 kr.