19. júní


19. júní - 19.06.1997, Blaðsíða 15

19. júní - 19.06.1997, Blaðsíða 15
Erla Ragnarsdótir hefur velt því fyrir sér hvers vegna fjölmiðlarnir sinni kvennaíþróttum ekki almennilega. Hún leitaði svara hjá Skapta Hallgrímssyni, fréttastjóra íþróttadeildarinnar á Mogganum. Margir eru þeirrar skoðunar að kvennaíþróttir hafi lítið vægi í íslenskum fjölmiðlum. Enn fleiri telja sjálfsagt að nóg sé af slíkri umfjöllun; kvennaíþróttir séu einfaldlega ekki þess virði að horfa á né fjalla uni. Staðreyndin er þó sú að konur stunda íþróttir til jafns við karla. Nýafstaðin bikarkeppni í handknatt- leik kvenna sýnir mikinn áhuga á kvennaíþróttum en í síðasta leik Hauka og Stjörnunnar troðfýlltu stuðningsmenn liðanna íþróttahúsið í Garðabæ. Umíjöllun fjölmiðla urn leikinn var óvenju góð; Ríkissjónvarpið breytti áður auglýstri dagskrá og sýndi síðari ltálfleik beint, eftir rniklar áskoranir, og umfjöllun blaðanna var víðamikil. En hver er ástæðan fyrir því að umfjöllun unt íþróttir kvenna á yfirleitt ekki upp á pallborðið hjá íslenskum fjölmiðlum? Er þar um að kenna áhugaleysi fjölmiðlamanna sjálfra, almennings, íþróttafélaganna eða kvennanna? -Og hvert er vald fjölmiðla tíl að skapa stemmningu í kringum íþróttina sjálfa og einstaka íþróttaviðburði? „Eg skal vera fýrsti rnaður til að viðurkenna að við fjöllum meira um karlaíþróttir en kvennaíþróttír,“ segir Skapti Hall- grímsson, hjd íþróttadeild Morgunblaðsins. „Og það er ekkert óeðlilegt, það er ekki hægt að skipta umfjöllunni til helminga. Karlaíþróttir eru miklu vinsælli og því er öll umfjöllun um þær eftirsóknarverðari, hvort sem það er viðurkennt eða ekki. Það er meiri spenna í kringum karlanna og okkar val byggist rnikið til á því. Áhorfendatölur segja að fleiri horfi á karlaíþróttir en kvennaíþróttir, því fólk vill vera þar sem spennan er og þar held ég að áhrif okkar skipti engu máli.“ Skapti segir að handbolti kvenna, einkurn bikarkeppnin, hafi fengið mikla umfjöllun hjá blaðinu. “Við fjölluðunt miklu meira um úrslitaleikinn í handbolta kvenna heldur en karlaleik- inn,” segir hann. „Eg sá báða þessa leiki þar og kvennaleikur- inn var einfaldlega miklu skemmtilegri.” Skapti segir að kvennaknattspyrnunni hafi einnig verið vel sinnt, þó segja megi að þar skemmi hinir miklu yfirburðir Breiðabliks fýrir. -Það hafi ekki verið mikil spenna í kringum lslandsmótið. En ástæðurnar liggja ekki bara hjá fjölmiðlunum að mati Skapta. Hann telur að margir þættir liggi að baki áhugaleysinu; konur virðist ekki taka íþróttirnar nógu alvarlega, þótt reyndar nokkur lið, t.d. í kvennahandboltanum geri það. Þær segi sjálf- ar að ýmislegt annað glepji og hlutirnir hafi annan forgang. „Þær eru kannski rneiri áhugamanneskjur, ef það má orða það þannig,” segir Skapti. “það er sáralítill peningur í kvennaíþrótt- um og allt starf kvenna innan íþrótthreyfingarinnar nánast sjálf- boðaliðastarf, fýrir utan kannski frjalsíþróttírnar, til dæmis fá Guðrún Arnardóttir og Jón Arnar sambærilegan styrk frá frjáls- íþróttahreyfingunni.” “Sé litið á stóratburði eins og Ólympíuleikana, fá konur mikla umfjöllun,” heldur Skapti áfram. “Þar eru afreksmenn og þá er ekki fjallað um konur eða karla, heldur bestu íþróttamenn heims sem einstaklinga. Staðreyndin er reyndar sú að við eigurn fáar afrekskonur á íslandi og umfjöllunin er þar af leiðandi minni. Fólk vill lesa um afreksfólk.” Skapti viðurkennir að umfjöllun um kvennaíþróttir hafi ekki verið nægjanleg í fjölmiðlum. Hann bendir þó á að Gunnar Val- geirsson, doktor í félagsfræði, hafi skrifað doktorsritgerð, þar sem meðal annars hafi kotnið fram að íslenskir fjölmiðlar, a.rn.k. Morgunblaðið, standi mun betur að vígi en sambærileg blöð erlendis. “Það hefur oft verið sagt að fjölmiðlar eigi stóran þátt í að konur taki síður þátt í íþróttum eða hætti frekar eins og virðist vera raunin með stúlkur á unglingsaldri. Sagt er að fjölmiðlarn- ir eigi þátt í að skapa fýrirmyndir og að kvenfýrirmyndirnar séu ckki fýrir hendi og hvatning því ckki til staðar. Eg scgi á móti að karlíþróttamenn gcta alveg verið fýrirmyndir fýrir stclpur cins og stráka. Eg tel því að kynjaskiptingin þarna skipti cngu máli. Afrck á sviði íþrótta auka áhuga bæði hjá strákum og stclpum almennt,” segir Skapti Hallgrímsson að lokunt. ■ Árið 1991 kannaði Rannsóknastofnun uppeldis og menntamála vægi kvennaíþrótta í islenskum fjölmiðlum. Pá nam efni um kvennaiþróttir um 10% af öllu iþróttaefni. í júlí 1994 voru íþróttafréttir Ríkissjónvarpsins teknar fyrir í könnun Skáís og kom þar meðal annars fram að líkurnar á að konur væru teknar í viðtal væru 17% á móti 83% hjá körlum. RUM er með könnun í gangi þessa dagana og munu niðurstöður hennar birtast í lok sumarsins. Óhætt er að fullyrða að hlutfallið hefur litið breyst, þvi áætlaö er að nú nemi umfjöllun um kvennaiþróttir um 20% af þvi efni sem er á boðstólum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.