19. júní


19. júní - 19.06.1997, Page 37

19. júní - 19.06.1997, Page 37
Styrkir til atvinnumála kvenna Frá 1991 hcfur ákveðinni upphæð á fjárlögum verið varið til atvinnumála kvenna. Um er að ræða verkefnastyrki og geta konur hvaðanæva að af landinu sótt urn. Félagsmálaráðherra tekur ákvörðun um styrkveitingu, en honum til ráðgjafar er hópur kvenna úr öllurn landshlutum ásamt starfsmanni ráðuneytisins og Byggðastofnunar. Tilgangurinn með verkefninu er að fjölga atvinnutækifærum kvenna. Við ráðstöfun fjárins er tekið sérstakt ntið af verkefnum sem líkleg eru til að fjölga at- vinnutækifærum kvenna, en auk þess fá svæði þar sem atvinnuleysi kvenna er hátt sérstaka athygli. Styrkurinn getur þó aldrei nurnið meira en helmingi af kostnaði. Þau verkefni sent ltingað ti! liafa verið styrkt má flokka í þrennt, að sögn Ingi- bjargar Broddadóttur hjá félagsmála- ráðuneytinu. I fyrsta lagi í styrki til at- vinnuþróunarfélaga og kvennasamtaka sem vilja ráða kven-atvinnuráðgjafa til að veita konum sérstaka atvinnuráðgjöf; - það hafi komið í ljós að konur telji sig fá betri ráðgjöf og meiri athygli á þessu sviði frá kynsystrum sínum. 1 öðru lagi í styrki til hópa sem hafa stofnsett kvenna- smiðjur þar sem frarn fer námskeiðahald, vöruþróun og fram leiðsla. Loks í styrki til einstaklinga og fyrirtækja. Lánatryggingasjóður kvenna Sjóðurinn var stofnaður í apríl sl. en hlutverk hans er að styðja konur til nýsköpunar og þátttöku í atvinnulífi með því að veita ábyrgðir á lánurn. Stofnendur sjóðsins eru félagsmálaráðuneyt- ið, iðnaðarráðuneytið og Reykjavíkurborg, en stofnfé er 10 milljónir króna. Um þriggja ára tilraunaverkefni er að ræða og er stefnt að því að sjóðnum leggist til sam- bærileg upphæð á næstu tveimur árurn. Stuðningur við konur í atvinnu- rekstri A vegum iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis er starfandi sjö manna nefnd sem ætlað er að nteta þörfma á sérstækum stuðningsað- gerðum fyrir konur í atvinnurekstri. Jónína Bjartmarz, lögmaður, er forntaður nefnd- arinnar. Hún segir að auk þess að meta þörfina hér heima sé nefndinni ætlað að kanna hvernig staðið er að slíkum stuðn- ingi í nágrannalöndunum; Norðurlöndun- um, Kanada og Evrópusambandsríkjun- um. Nefndin ntun skila af sér í haust og segir Jónína að þá muni liggja fyrir listi yf- ir þá ntöguleika sem eru í boði, auk nýrra hugmynda. Hún bendir á að fjölmargir möguleikar séu til staðar fyrir fólk í at- vinnurekstri, jafnt konur sem karla, og þörfm sé e.t.v ntest á ráðgjöf og upplýsingum. ■ Konur sem láglaunahópur Rannsóknir sýna að launamunur karla og kvenna er staðreynd i öllum rikjum heims, að sögn dr. Áse Löf- ström, hagfræðings við Háskólann i Umeá. Alls staðar eru það konur sem eru i miklum meirihluta láglauna- fólksins. Áse miðar við að láglaunafólk teljist hafa und- ir 2/3 af meðaltekjum, og bendir á að þegar laun i OECD rikjunum eru skoðuð út frá þessu kemur i ljós mikill kynjamunur. í Bretlandi sé um þriðjungur kvenna und- ir þessum mörkum, en aðeins 13% karla. í Þýskalandi teljist fjórðungur kvenna en aðeins 8% karla til lág- launafólks. í Sviþjóð sé 5% vinnuaflsins undir lág- launamörkum, þ.e. 8% kvenna en aðeins 3% karla, i Finnlandi 9% kvenna og 3% karla. Nákvæmar tölur eru ekki til fyrir ísland en gera má ráð fyrir að hlutfallið sé svipað og í nágrannalöndunum. Við getum þó reiknað með að sérstök hækkun lægstu launa i siðustu kjarasamningum muni rétta stöðu kvenna að nokkru leyti. ■ Pað er ekki hœgt að benda á neina eina ástœðu fyrir þvi af hverju svona fáar konur eru að vinna við rannsóknir. Pó mœtti nefna „Ripp-Rapp-Rupp áhrifin". Ef maður er Ripp þá rœður maður Rapp eða Rupp, þ.e. einhvern sem er eins og maður sjálfur. Jytte Hilden, ráðherra rannsókna í Dan- mörku. 3S

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.