19. júní


19. júní - 19.06.1997, Side 39

19. júní - 19.06.1997, Side 39
eða fyrir rétti? Kirsten Precht, lögfræðingur Sambands verslunar- og skrif- stofufólks í Danmörku, flutti erindi á norrænni ráðstefnu um konur, atvinnulíf og efnahagsmál, sem haldin var í Reykja- vík í vor. í erindi sem hún kallaði „Launajafnrétti, réttur eða fyrir rétti?“ benti hún á að krafa kvenna um að fá greidd jöfn laun og karlar ætti ckki að vera talin óvenjuleg eða sérkennileg. Petta væri eðlilcg krafa og stuðla þyrfti að því að konur þekktu þennan rétt sinn. Að sögn Kirstenar aðstoða stéttarfélög í Dan- mörku konur við að fara með kærur vegna launa fyrir rétt, en á sl. 20 árurn hafa 28 slík mál verið tekin fyrir hjá dönskum dóm- stólum. -Hérlendis heyrir það hins vegar til undantekningatil- vika að leitað sé til dómstóla vegna ójafnréttis í launum. Kirsten benti á að það skipti sköpum hvar sönnunarbyrðin lægi, en allt fram til 1989 hafi verið nær ógerlegt að vinna kæru- mál vegna launamisréttis í Danmörku þar sem kærandinn hafi þurft að sanna óréttmætið. Nú sé hins vegar búið að taka upp fc — réttarreglur um að sönnunarbyrðin liggi hjá atvinnurekanda, það sé hans að færa sönnur á að lægri laun þess sem kærir stafi ekki af kynferði hans. Pess ber að geta að ákvæði um öfuga sönnunarbyrði eru líka í íslensku jafnréttislögunum. En Kirsten bendir á aðra réttarvenju sem hún segir að sé einnig mjög mikilvæg. Árið 1985 hafi Evrópudómstóllinn gengið út frá því í dómi að allsherjarúttekt væri nauðsynleg þegar störf karla og kvenna væru borin saman, þ.e. meta þyrfti jafnt kvenlega hæfileika sem karllega. Danir hafa að sögn Kirstenar í æ meira mæli haft þetta til liliðsjónar, t.a.m. með því að vega til jafns flngrafimi og vöðvastyrk í kærumáli. I’ó hafi menn ekki viljað ganga svo langt að bera saman ólíka menntun. Kirsten lieldur því fram að nú sé fyrst og frernst þörf á að rannsaka þátt tungumálsins við kærumál vegna launamisréttis. I’að sé vel þekkt að konur og karlar tjái sig ekki á sama liátt og kanna þurfi hvaða áhrif málnotkunin hefur á dóma. ■

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.