19. júní - 19.06.1997, Blaðsíða 40
Börnin og vinnan
Auknir möguleikar foreldra til aö koma börnum
sinum aö á leikskóla og opnun heilsdagsskólans
hljóta aö teljast viðurkenning á þvi að ekki bara
einstæðar mæður vinna utan heimilisins.
Uppbygging í leikskólamálum hefur skipt sköpum fyrir konur
og gert þeim kleift að komast út á vinnumarkaðinn. I’að er hins
vegar ekki nema hin allra síðustu ár sem allir forcldrar, a.m.k. á
höfuðborgarsvæðinu, hafa átt raunhæfa möguleika á að koma
börnum sínum á leikskóla.
Enn eru að koma fram hugmyndir um að borga konum fyr-
ir að vera heima með börnin. I’essar hugmyndir hafa verið mjög
umdeildar. Sumir halda því frarn að markmiðið sé að spara í
leikskólauppbyggingu og falsa atvinnuleysistölur. Aðrir scgja
þetta hið besta mál og halda því jafnvel fram að kvenréttinda-
konur hafi staðið í vegi fyrir þeim konum sem vilja vera hcima.
Við erum, á vissan hátt, enn að glíma við fordóma gagnvart
konum sem „yfirgefa11 börnin til að vinna. Petta er hins vegar
ekki spurning um hversu rnikinn tíma við höfúm, heldur hvern-
ig tíminn nteð börnunum er nýttur.
Hvað eldri börn varðar hefur stuttur og slitróttur skóladagur
löngum skcrt mögulcika foreldra til að vinna fúllan vinnudag.
Nú hefur einsetning grunnskólans loksins komist á dagskrá og
um leið er verið að breyta þjónustunni fyriryngstu börnin. All-
ir nemendur yngstu bekkjanna eiga nú kost á að vera í heils-
dagsskóla, þ.e. að dvelja í skólanum eftir að kennslu lýkur og
þar til vinnudegi foreldranna lýkur. Á móti er verið að leggja
niður skóladagheimilin sem áður þjónuðu mjög takmörkuðum
hluta barnanna.
Svört barnagæsla
Fæðingarorlofi lýkur við 6 mánaða aldur barns en leikskólinn
tckur yfirleitt ekki við fyrr en börnin eru orðin 2ja ára. Mörg
dæmi eru um að konur komist einfaldlega elcki aftur til starfa
þegar orlofinu lýkur. Ein þeirra sent lenti í vandræðum hefur
þessa sögu að segja: „Pegar maður vill fá vistun hjá dagmömmu
fær maður lista hjá Dagvist barna yfir allar dagmömmur í hverf-
inu. Síðan þarf rnaður að hringja sjálfur í þessar konur og kem-
ur þá í ljós að þær eru allar stútfullar af börnum og engin hef-
ur pláss fyrir fleiri börn. Samtölin eru samt ákaflega loðin, spurt
er hversu lengi maður þurfi að hafa barnið í vistun, það sé
kannski hægt að bjarga manni í einhvern tíma. Eg þáði það í
tveimur tilvikum, var búin að væla og sagði að við værum ný-
flutt heim og ég yrði bara að fá pössun. Eg fór með barnið í að-
lögun en urn leið og í ljós kom að ég er einstæð rnóðir, breytt-
ist hljóðið í þessum konum og þær gátu ekkert fyrir ntig gert,
vegna þess að þá hefði þurft að gefa pössunina upp út af niður-
greiðslukerfmu. Sent gift kona þyrfti ég að borga 20.000 kr. á
mánuði en aðeins 9.600 sem einstæð og það segir sig sjálft að
þær stórtapa á því að hafa barn fyrir 9.600 krónur svart á mán-
uði, en 20.000 er hins vegar ágætis viðbót. Dagmamman sem
ég er með núna ætlaði að leika sarna leikinn en ég sagði henni
ekki strax að ég væri einstæð og hún spurði mig ekki fýrr en of
seint. Barnið var búið að vera hjá henni í tvær vikur þegar kom
að því að ganga frá peningamálunum og þá gat hún ekki vísað
okkur frá. En ég borgaði henni líka 11.000 krónur svart í tvo
mánuði, 1400 krónum meira en ég raunverulega þurfti." ■
Hvað er að gerast í nágrannalöndunum?
Noregur
Nefnd á vegum ríkisstjórnarinnar hefur lagt til að starfsmat
verði ein af aðferðunum til að koma á launajafnrétti. Bæði
verkalýðshreyfingin og atvinnurekendasamtökin taka undir það
sjónarmið. Olav Magnussen, frá samtökum atvinnurekenda,
scgir að launamisréttið geri atvinnulífið óskilvirkt. „Konur cru
að verða betur mcnntaðar á vinnumarkaðinum og þvl er mót-
sögn í því að þær skuli þéna 20% rninna en karlar. Fyrirtæki sent
mismuna kynjunum í launum koma til með að lenda í vandræð-
um“.
Danmörk
Verkalýðshreyfingin hefur stofnað nefnd sem á að einbeita sér
að jafnréttisfræðslu trúnaðarmanna og annarra sem taka þátt í
gerð kjarasamninga. Marita Bruun, formaður nefndarinnar,
segir markmiðið vera þríþætt: Pjálfa eigi trúnaðarmenn í að
meta störf á kynhlutlausan og hlutlægan hátt, veita þeirn þjálf-
un í að deila árangurstengdtim launum eða bónus á þann hátt
að konur standi jafnfætis körlum, og loks eigi að mennta þá sem
taka þátt í vinnustaðasamningum svo þeir sjái til þess að bæði
konur og karlar fái notið hæfileika sinna í launum.
Svíþjóð
Svíar eru komnir með merkt ákvæði inn í jafnréttislögin sem
segir að öll fyrirtæki með 10 starfsmenn eða fleiri verði að gera
grein fyrir launamun í fýrirtækinu tvisvar á ári. Niðurstöðunum
á að fýlgja lýsing á aðgerðum til að jafna launamuninn. ■
3S