19. júní


19. júní - 19.06.1997, Side 46

19. júní - 19.06.1997, Side 46
Heimilisofbeldið er alvarlegt Það þarf að stöðva ofbeldið; tryggja fórnarlömbunum öryggi; útvega þeim aðstoð, jafnt læknishjálp sem lagalega og félags- lega og loks að koma í veg fyrir frekara ofbeldi með því að refsa ofbeldismönnunum og endurhæfa þá. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Claire Ann Smearman, bandarísks lögmanns, á fundi Kvenréttindafélagsins, rannsóknarstofu í kvennafræðum og lagadeildar Háskóla íslands í mars sl. Claire telur brýnt að stofna íslenska ráðgjafarnefnd um heim- ilisofbcldi sem vinna myndi að endurbótum í samvinnu við ýmsa fagaðila, t.a.m. fara í herferð til að kynna almenn- ingi staðreyndir í stað goð- sagna urn heimilisofbeldi og vekja fólk til meðvitundar um alvarleika málsins. Nefndin myndi einnig vinna að lagabreytingum, bæta að- stöðu heilbrigðiskerfisins til að taka á móti fórnarlömb- um heimilisofbeldis og koma á fót meðferð fýrir ofbeldis- mennina. Claire bcnti á að hafa mætti bandaríska kerfið til hliðsjónar, en þar eru til fyrirmyndarreglur sem samd- ar voru af sérfræðingum í heimilisofbeldi. Reglurnar ná til fjögurra sviða, í fýrsta lagi eru refsingar og réttarfar, í öðru lagi vernd almennings, þá börn og fjölskyldur og loks forvarnir og meðferð. Að skilgreina glæpinn „Breytingar á réttarfarinu eru brýnar,” segir Clairc. Hún bend- ir á að fjölmargar greinar ís- lenskrar refsilöggjafar nái yfir ofbcldi eins og það sem eigi sér stað innan veggja heimil- anna, samt sem áður sýni töl- fræðin að þessum ákvæðum sé sjaldan beitt þegar um ofbeldi gagnvart maka er að ræða. Það er engin skilgreining á heimilisofbeldi í íslenskum lögum, frekar en í Bandaríkj- unum. Bandarísku fyrirmynd- arlögin skilgreina hugtakið þannig að um heimilisofbeldi sé að ræða þegar aðili brjóti gegn fjölskyldumeðlimi með einhverju af skráðum atriðum sem þegar eru sakhæf. Þannig cr t.d. reynt að gera aðferð of- beldismanna til að ná völdum yfir fórnarlambinu glæpsam- lega. Með þessu móti er komið í veg fyrir að aðilar á borð við 24 stunda krem fyrir allar húðtegundir Allt árið! Utsölustaöir: Reykjavík: Reykjav. Apótek, Austurstr.; Hárgrst. Gresika, Suðurgötu 7; Hárgrst. Kambur, Kambsvegi 18; Hárgrst. Hótel Loftleiöir, Hárgrst. ýr, Lóuhólum 2-6; Nes-Apótek Eiöistorgi; Kópavogur: Kópavogs Apótek, Hamraborg; Fótsnst. Þórunn, Sunnuhlíö; Hafnarfjöróur: Apótek Hafnarfjaröar, Nýi Miöbær; Hárgrst. Meyjan, Reykjavíkurv. 62; Hárgrst. Björt, Bæjarhr. 20; Akranes: Apótek Akraness, Kirkjubr. 50; Stykkishólmur: Aöalbjörg Hrafnsd.; Patreksfirói: Unnur G. Unnarsd., Sigtúni 67; ísafjöróur: Apótek ísafjaröar, Pollag. 4; Sauóárkrókur: María Sif Gunnarsd., Grenihlíö 11; Akureyri: Snyrtivöruvers. Isabella, Hafnarst. 97 Reyóarfirói: Guöný Hauksdóttir, Vallargeröi 7; Selfoss: Snyrtist. Ólafar Bergs., Austurvegi 9; Keflavík: Snyrtist. Guörúnar, Baldursgata 2; Einkaumboó: Elding Trading Co., Áslaug H. Kjartansson, símar; 551 5820, 551 4286; fax; 552 6295. Nýtt frá Lumene Vitamin-C Energy B+E 3 stig í einu +5 bioactive minerals

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.