19. júní


19. júní - 19.06.1997, Side 59

19. júní - 19.06.1997, Side 59
Síðastliðið vor var ár liðið frá því Hildur Jónsdóttir var ráðin jafnréttisráð- gjafi Reykjavíkurborgar. Um sama leyti var samþykkt jafnréttisáætlun sem gildir frá 1996-2000, og ákveðið var að styrkja jafnréttisnefnd borgarinnar. Nú er einn borgarfulltrúanna, Steinunn V. Óskarsdóttir, formaður nefndar- innar en jafnréttisráðgjafinn starfar náið með henni. Þetta, og margt fleira, fékk Linda H. Blöndal að vita þegar hún heimsótti Hildi í ráðhúsið. Ijafnréttisáætluninni eru sett fram markmið sent varða starfsmannamál, almenna fræðslu, skólamál, atvinnu- mál og fjölskyldumál. Markmiðið er eins og þar segir: „að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla í Reykjavík og jöfnurn möguleikum kynjanna til að nýta sér það lagalega jafnrétti sem er til staðar“. Þar er sömuleiðis lögð áhersla á að flétta jafnréttismálin á þann hátt inn í starfsemi borgarkerfisins og líf borgarbúa að þau verði eðlilegur þáttur þess. Til að ýta undir skipulagt jafnréttisstarf um allt borg- arkerfið eiga fyrirtæki, stofnanir, nefndir og ráð borg- arinnar í upphafi hvers árs að gera starfsáætlun til að ná yfirlýstum markmiðum jafnréttisáætlunarinnar. Að sögn Hildar er lykilorðið þátttaka. Mælt er með því að starfsáætlanirnar séu unnar af starfshópum með þátt- töku beggja kynja og sem víðast úr viðkomandi stofn- un. I því felst nt.a. að starfsfólk er í aðalhlutverki við að korna með tillögur og nteta stöðuna þegar gerð er starfsáætlun fyrir vinnustaðinn. Oft vita stofnanir ekki hvar þær eru í raun og veru staddar gagnvart jafnréttismarkmiðum. Það kallar beinlínis á úttekt á hverjum stað til að komast að því hverjar þarfirnar eru og hvar tækifærin liggja. Hafa nokkrar stofnanir t.d. gert viðhorfskannanir meðaj starfsfólks til að grafast fyrir um á ltvað það vill leggja mesta áherslu. Skoðun Hildar er sti að með þessunt vinnubrögðum verði þær aðgerðir sem valdar eru af hverri og einni stofnun frekar raunhæfar og slíkt er að sjálfsögðu forsenda fyrir árangri. I lok ársins skulu stofnanir gera jafnréttisnefnd og jafnréttisráðgjafa grein fyrir stöðu rnála hjá sér. Þar sem áætlunin tók gildi síðastliðið vor þá er ekki enn komið að þeirri árs- lokaúttekt sent mun að öllum líkindum skerpa sýn fólks á hvernig staðan er innan stofnana borgarkerfisins. Starfsáætlun, starfsfólk, stuðningur Á miðjum gildistíma áætlunarinnar, þ.e. ‘98, skal gerð könnun á því hvaða áhrif jafnréttisáætlanir og jafnrétt- isstarf á vegum borgarinnar hafa haft á stöðu jafnrétt- ismála. Með því á að fást betri heildarsýn á árangur áætlunarinnar og hvernig borgarstofnunum hefúr tek- ist að ná markntiðum hennar. Santkvæmt Hildi er uni leið verið að leita að góðurn mælikvarða til að meta hvar hinar ólíku stofnanir borgarinnar eru staddar í vinnu sinni að afnámi kynjamismununar. Jafnréttisáætlun af þessu tagi er í raun fyrsta sinnar tegundar og markvisst starf og reglulegt yfirlit með jafnréttismálum þannig nýkomið á. Upphaf þess rná rekja til jafnréttisfulltrúa sem ráðinn var til borgarinnar í hálft starf 1994. Staða núverandi jafnréttisráðgjafa er umfangsmeiri og heyrir undir embætti borgarritara. Ráðgjafinn er bæði framkvæmdaraðili borgaryfirvalda og stefnumótandi í jafnréttismálum. Stefnumótunin má segja að felist i þeirri frumkvæðisskyldu sem á ráð- gjafanum hvílir; hann verður að vera tilbúinn að benda á þau tækifæri sem birtast. Hildur leggur áherslu á að eftirfylgni af hálfu jafnréttisráðgjafa sé ein meginfor- sendan fyrir því að jafnréttisáætlanir verði raunhæfur kostur til að leiðrétta stöðu kvenna. Hún bendir á að borgaryfirvöld hafi skapað ákveðin skilyrði svo árangur náist . Þessi skilyrði felist í þrennu: Að til sé metnaðar- full starfsáætlun, starfsfólk til að framkvæma hana og stuðningur frá borgaryfirvöldum. Það er allt þetta eða ekkert ef vel á að takast - ef jafnréttisáætlunin á að skila okkur betri borg. En svo vitnað sé í orð Hildar „þá virkar ekkert af sjálfu sér“. Með aðgerðarleysi förunt við þangað sem vindurinn ber okkur en rneð aðgerð- unt ráðum við sjálf hvert við höldunt. Starfsmat og endurskoðun jafnréttisfræðslu Eitt af því sem kveðið er á um í áætluninni er að fram- kvæma skuli kynhlutlaust starfsmat á vegum borgarinn- ar. IJar segir að athuga skuli hvort slíkt geti „dregið frarn þætti í hefðbundnum kvennastörfum sem hingað til hafa verið vanmetnir“. I samræmi við þetta tekur Reykjavíkurborg þátt í tilraunaverkefni í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins, félagsmálaráðuneytið, Jafn- réttisráð o.fl. í þessu verkefni leggur Reykjavíkurborg til tvö fyrirtæki og starfsmann til að vinna við matið. Þegar þetta er skrifað er ekki enn ákveðið hvaða fyrir- tæki þetta eru en að öllum líkindum er um að ræða stofnun þar sem eru mörg hefðbundin kvennastörf og önnur sem tilheyrir karlageira atvinnulífsins. Megintil- gangurinn með verkefninu er samkvæntt Hildi að afla þekkingar á starfsmatsaðferðinni og bera saman hefð- bundin kvenna- og karlastörf. I lokin verður metið hvort ástæða sé fyrir borgina að halda tilrauninni áfrarn á eigin vegum og gera þá verkefnið víðtækara. Önnur markmið í áætluninni snúa að skóla- og fræðslumálum og má í því efni nefna að Fræðslumiðstöð Reykjavíkur- borgar er nú að taka jafnréttisfræðslu í grunnskólum til endurskoðunar og efnir auk þess til námskeiða fyrir kennara til að efla jafnréttisfræðslu í grunnskólunum. Það sem greinarhöfundi finnst hins vegar öðru fremur markvert við innihald jafnréttisáætlunarinnar er sá kafli sem fjallar urn skyldu jafnréttisráðgjafa til að veita borgarbúum liðveislu í jafnréttismálum. ■ af sjálfu $ér" 37

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.