19. júní - 19.06.1997, Blaðsíða 69
eru blaðaúrklippur og greinar varðveittar í sérstakri möppu á
skrifstofu félagsins.
Samstarf um Kvennasáttmála
Stjórn félagsins ákvað sl. vor að leita til Jafnréttisráðs og Jafn-
réttisnefndar Reykjavíkur um samstarf vegna kynningar á
Kvennasáttmálanum. Tóku þessir aðilar vel í þá hugmynd og
var í upphafi megináhersla lögð á að koma sáttmálanum inn í
fræðsluefni í skólum, a.m.k. þannig að kennurum stæði til boða
eitthvert efni um sáttmálann og um jafnréttismál. Að auki var
tilgangur samstarfsins sá að koma jafnréttismálum á dagskrá hjá
fólki á framhaldsskólaaldri. Samstarfið hefur m.a. borið þann
ávöxt að þessir þrír aðilar voru styrktaraðilar Morfis; ræðu-
keppni framhaldsskólanna, en um 800 manns sóttu úrslita-
keppnina. Umræðuefnið var „kynjakvótar“ og var Ólafía B.
Rafnsdóttir stjórnarkona í KRFÍ á staðnum og veitti verðlaun
ásamt fulltrúum frá Jafnréttisráði og Jafnréttisnefnd Reykjavík-
ur. Enn er eftir að útfæra kynningu á sáttmálanum í skólurn sem
er nokkuð viðamikið verkefni. Fulltrúi KRFI í starfmu er Hulda
Karen Ólafsdóttir en Málfríður Gísladóttir hefúr líka unnið
með hópnum.
Mannréttindaskrifstofan
Inga Jóna I’órðardóttir var endurkjörin fulltrúi KRFI í stjórn
Mannréttindaskrifstofunnar og Bryndís Hlöðversdóttir til vara.
Starfið hefúr verið blómlegt en skrifstofan hefur staðið fyrir
fjiilda funda hér heima og tekið þátt í alþjóðlegu starfi. For-
maður er Margrét Heinreksdóttir og framkvæmdastjóri Ágúst
I’ór Árnason.
19. júní
Á síðasta aðalfundi var tekin sú ákvörðun að gefa út eitt tbl. af
19. júní á ári. Megináhersla var lögð á að finna markhóp sem
ekki væri höfðað til með þeim tímaritum sem fyrir eru á mark-
aðnum, en 19. júní hefúr reynst erfitt að standast þá sam-
keppni. Ákveðið var að höfða til ungra kvenna fyrst og fremst
og bar blaðið þess merki. Seldist blaðið betur en áður hefur ver-
ið, en allt að einu var tap á útgáfu þess. Leggur stjórnin til að
enn verði haldið áfram útgáfu blaðsins í þessunt nýja búningi,
a.m.k. um sinn, þótt ekki hafi verið um hagnað að ræða á síð-
asta blaði.
Veröld sem ég vil
Átak var gert í sölu bókarinnar á síðasta ári og skilaði það
nokkrum árangri. Ljóst er að bóksala gengur ekki með því einu
að setja bækur í bókabúðir, fylgja þarf sölunni eftir. Veröld sem
ég vil er engin undantekning þar á. Inga Jóna Þórðardóttir var
útgáfustjóri bókarinnar.
Fréttabréf
Fréttabréf eru gefin út reglulega að venju. Á síðasta ári komu
út 6 tbl. en á þessu ári hafa 2 þegar komið út. I’að stóð til að
breyta útgáfúnni í tengslum við breytingar á útgáfu 19. júní en
enn hefur ekki orðið af því. Vonir standa til að átak verði gert í
þeim málum á næstunni.
Hallveigarstaðir
Vel leit út um tíma með að samcigendur okkar vildu selja hús-
ið en svo lítur út sem þau áform hafi hrokkið til baka. Leigu-
samningur við menntamálaráðuneyti er í gildi fram í ágúst en
þó nokkrir hafa haft samband við félagið um leigu. KRFÍ hefúr
haldið því til streitu að rétt sé að selja húsið og er sjaldan meiri
þörf en nú þegar framundan eru frekari viðgerðir á húsinu.
KRFÍ hefur þegar misst helming leigutckna sinna vegna við-
gerða og félagið hefúr lagt á það áherslu að það hefúr ekki ráð
á frekari útlátum vegna hússins. Líklcgt cr þó að til þess komi
fljótlega að gera þurfi við kálfinn sem eftir er þrátt fyrir and-
stöðu félagsins.
Alþjóðlegt samstarf
Þing IAW í Kalkútta
Félagið fékk styrk frá utanríkisráðuneytinu til að senda fúlltrúa
á þing alþjóðasamtakanna í Kalkútta í desember. Inga Jóna
Þórðardóttir er fulltrúi KRFÍ í stjórn IAW og sótti hún þingið.
Landsfundur Dansk kvindesamfund
- 125 ára afmæli
Félaginu var boðið að senda fúlltrúa á 125 ára afmæli systur-
samtaka sinna í Danmörku, DK, sl. vor. Formaður átti leið um
Kaupmannahöfn í öðrum erindum og notaði tækifærið og sat
fundinn. Færði hún félaginu Veröld sem ég vil að gjöf með árit-
aðri kveðju og mæltist það vel fyrir.
Ráðstefna óháðra félagasamtaka
á vegum Evrópuráðsins
Félaginu var boðið að senda fulltrúa á ráðstefnu sem Evrópu-
ráðið hélt í júní á síðasta ári, þar sem óháð félagasamtök víðs-
vegar að úr Evrópu komu sarnan og ræddu um aðferðir í jafn-
réttisbaráttunni. Ráðstefnan var mjög gagnleg, skiptust fulltrú-
ar m.a. á skoðunum um það hvernig best væri að afla íjár,
hvernig samskiptin við ríkisvaldið ættu að vera, hvaða aðferðir
væru notaðar til að vekja athygli á málstað félaganna o.s.frv.
ESB - verkefni
Island er nú í fyrsta sinn aðili að jafnréttisáætlun ESB en því
fylgir m.a. réttur til að sækja um styrk til sambandsins til verk-
efna á sviði jafnréttismála. Félagið ákvað að sækja um styrk til
að bera sarnan kosningakerfi og kjördæmaskipan fimm Evrópu-
landa og hvernig áhrif þau hafa á möguleika kvenna til að taka
þátt í stjórnmálum. Fengurn við systursamtökin í Finnlandi, ír-
landi, Bretlandi og I’ýskalandi í lið með okkur og dómsmála-
ráðuneytið og félagsmálaráðuneytið hafa þegar lofað að taka
þátt í fjármögnun verkefnisins. Við fengum ekki úthlutað eftir
fyrstu umsókn en okkur var tjáð að verkefnið ætti mikla mögu-
leika þrátt fyrir það og hefði vakið mikla athygli. Félagið ætlar
því að sækja um aftur fyrir næstu úthlutun sem er í vor en til
þess þarf að ráða starfskraft til að aðlaga umsóknina nýjum regl-
um og fylgja henni eftir. Félagið hafði ráðið konu til verksins en
hún gat svo ekki tekið verkefnið að sér þegar til stóð og hefur
ný manneskja ekki enn verið ráðin. Átakið Gefum okkur gjöf
mun kosta starfsmanninn að hluta, en alls söfnuðust 160 þús-
und krónur í átakinu. Eru öllum sem gáfú til félagsins í þessu
átaki færðar kærar þakkir fyrir.
Heimsókn frá Japan
Félagið fékk heimsókn frá Japan á síðasta ári. Þar var um að
ræða 25 manns, aðallega konur, frá Saitama fylki í Japan. Þar
hafði Vigdís Finnbogadóttir, heiðursfélagi KRFÍ, verið á ferð
þegar hún gegndi embætti forseta íslands og vakið athygli á
landi og þjóð, sem var undirrót ferðarinnar. Hópurinn vildi
kynna sér jafnréttismál á Islandi. Stjórnarkonur og fyrrverandi
stjórnarkonur tóku á móti gestunum í kjallara Hallveigarstaða
og Hansína B. Einarsdóttir kynnti starfsemi félagsins vandlega.
Um kvöldið buðu gestirnir okkur til kvöldverðar á Holiday Inn
þar sem dansaðir voru japanskir dansar og skipst á gjöfúm.
Samstarf um sveitarstjórnarkosningar
Elín Harðardóttir er íúlltrúi KRFÍ í samstarfshópi um sveitar-
stjórnarkosningar sem Jafnréttisráð stendur fyrir.
Nýr formaður KRFÍ
Bryndís Hlöðversdóttir, formaður félagsins frá 1995, lýsti því
yfir fyrir aðalfund félagsins, að hún gæfi ekki kost á sér til end-
urkjörs. Á aðalfundi 18. rnars 1997 var því kjörinn nýr forrnað-
ur; Sigríður Lillý Baldursdóttir, skrifstofústjóri í félagsmála-
ráðuneytinu. ■
<7