19. júní - 19.06.1997, Page 78
Norrænt „mainítreaming" verkefiii
Noröurlöndin hafa unnið saman að því að þróa sýn á jafn-
réttismál og skapa sameiginlegan grundvöll fyrir framtíð-
arsamstarf á evrópskum og alþjóðlegum vettvangi. Nýverið
var hrint af stað svokölluðu „mainstreaming" verkefni, sem
gengur út á að koma umræðu og aðgerðum um jafnrétti inn
á öllum stigum ákvarðanatöku. Marianne Laxén, jafnréttis-
fulltrúi norrænu ráðherranefndarinnar, segir aö hugmyndin
sé að gera fólk meðvitað um jafnrétti svo að þeir sem taki
ákvarðanirnar taki alltaf tillit til beggja kynja. Það þurfi að
sýna fram á að fleira fólk en fertugir karlar getur setið í
nefndum og ráðum. Verkefnið mun standa í þrjú ár og er því
einkum ætlað að taka til æskulýðs- og atvinnumála. Því á að
ljúka með aðgerðaáætlun um jafnrétti innan stjórna og ráða.
Einnig á að þróa jafnréttiskennslu fyrir fólk í stjórnunarstöð-
um.
Þrátt fyrir að Norðurlöndin hafi orð á sér fyrir að vera langt
komin á sviði jafnréttismála er ástandið ekki sem best innan
norræna samstarfsins. Sem dæmi má nefna að aðeins 3 af
embættismannanefndum norræna ráðherraráðsins 1996
höfðu jafnt kynjahlutfall, í 13 nefndum voru karlar í meiri-
hluta og 4 voru algerlega kvennalausar. í 23 stjórnum sam-
norrænna stofnana var kynjahlutfall jafnt, í 23 voru karlar í
miklum meirihluta og i 11 stjórnum var engin kona.
Marianne Laxén fullyrðir að þessum hlutföllum megi auð-
veldlega breyta, sé fyrir hendi pólitískur vilji til þess.