Sólskin - 01.07.1932, Page 13

Sólskin - 01.07.1932, Page 13
11 Nú heyri jeg sáran barnsgrát. Þar er enn einn- máJleysinginn. Hann er ekki farinn að læra að hugsa og tala, en hann finnur sáran til þess, að vera minst- ur og geta minst allra, og verða að sitja einn eftir„ þegar öll hin börnin hlaupa burtu, til þess að leika sjer. Nei, hann þarf ekki að vera einn eftir. Þarna kemur lítil stúlka hlaupandi, til þess að hugga hann.. Hún þerrar tárin og bráðum fer sá litli að brosa.. ÍJr litlu augunum skín gleðin og þakklætið: »Þakka þjer fyrir, að þú gleymdir ekki lítilmagnanum. Ein- hvern tíma verð jeg miklu stærri en þú, og- þá skal jeg hjálpa þjer.« S. A. Fuglar. Eitthvert yndislegasta námsefni er að kynnast lífí fuglanna. Það er mikið verk. 15 þúsund tegundir eru taldar auk ótal afbrigða. Því betur sem menn athuga, því meira er að sjá og ótal margt til undr- unar og- aðdáunar. Ekki hefir náttúran móðir vor verið löt eða nísk, þegar hún bjó þessi börn sín úr garði. Það sjáum við, þegar við athugum, að ein einasta fjöður getur verið sett saman af miljón pört- um, og þar er enginn hlutur óþarfur. Flug. Við dáumst að þeim dýrðlega sigri mannsins, að geta lyft sjer frá jörðinni og svifið út í geiminn, og ráðið þar ferðum sínum. En til þess þarf mað-

x

Sólskin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.