Sólskin - 01.07.1932, Blaðsíða 32

Sólskin - 01.07.1932, Blaðsíða 32
30 Stríð við óvini. Hversu mjög' sem dýravernd og mannúð fara í vöxt, eru þó til þau dýr og' aðrar lífverur, sem sið- aðir menn verða að kappkosta, að útrýma. Má þar nefna lýs og flugur og sóttkveikjur. Sem betur fer, er nú búið að útrýma lúsinni af öllum góðum heimilum á fslandi. I þeirri baráttu var verst að eiga við hugsunarháttinn. Margir trúðu því, að það væri heilsubót að lúsabiti, og að við það hreinsuðust vessar úr blóðinu. Sumir trúðu jafn- vel að lúsin kviknaði undir skinninu og skriði svo út um það. Nú vita menn, að lífvera kviknar aldrei, heldur fæðist altaf af foreldrum. Pegar Öll þessi andstyggilega hjátrú hvarf úr sögunni, var ljett verk að útrýma lús af heimilum. Ekki þurfti annað en að sjóða allan þvott og láta dálítið af steinolíu í þvottavatnið. Jeg býst við, að með vaxandi þrifnaði muni bráð- um hepnast að útrýma lús að mestu hjer á. landi. En það er annað dýr, sem er engu minni óvinur heilsu og hréihlætis, sem sje flugan. En skilnings- leysi og rangur hugsunarháttur valda því, að sumir kunna því ekki svo illa, að hafa flugur í húsum sín- um. En þessi meinvilla þarf að hverfa. Flugur eru ávalt óvinir manna og ættu hvergi að eiga friðland í bústöðum Jjeirra. Þær eru sjálfar óhreinar og flytja með sjer óþverra. Þær verpa eggjum sínurn eða vía, sem kallað er, í hræjum og skarni og eru ávalt með löðrandi fætur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sólskin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.