Sólskin - 01.07.1932, Blaðsíða 40

Sólskin - 01.07.1932, Blaðsíða 40
38 Við komum úr Öskju og ætluðum að ná til Lind- anna um kvöldið. Par vissum við af högum fyrir hestana. Alt fóður var þrotið. Síðustu heytugguna hafði Jón gefið um morguninn, áður en við lögð- um af stað. Og seinustu deigbitunum hafði hann stungið upp í klárana, hjerna vestur í hrauninu, þar sem við áðum. Þá hafði mjer hepnast að hnupla hálfu rúgbrauði frá Jóni, og nú var Gráni annað slagið að gera sjer gott af því. Leiðin frá öskju og austur að Jökulsá, er alls ekki slæm, þegar út úr opinu er komið. Þess skal þó gætt, að beygja ekki of snemma til norðurs, en halda þvert austur að ánni, sunnan við Töglin. Norður með ánni eru greiðfærar eyrar. En leiðin varð lengri en okkur virtist af Dyngjufjöllum. Hver hraunald- an tekur við af annari og leggja þær drjúgum und- ir sig. Loksins komum við þó í Lindirnar. Jeg þreif hnakkinn af hestinum og við Gráni veltum okkur báðir þarna í grasinu. Frá tjaldstað að rótum Herðubreiðar, er röskur hálftíma gangur. Hraunið er hjer úfið og ilt yfir- ferðar. Dr. Sorge athugaði þá um kvöldið, hverja leið við skyldum fara til fjallsins, að morgni. Því að þá skyldum við þreyta til uppgöngu. Hlóð hann vörður nokkrar okkur til leiðbeiningar. Á meðan elduðum við hin matinn. Suðum við nú við hvanna- rætur og víðitágar, því hjer var gott til eldfanga. Jeg skyldi, að rjettu lagi, vaka þessa nótt og- gæta hestanna, en dr, Lamprecht bauðst til að skifta við mig, svo jeg gæti óþreyttur lagt á fjallið. Yið Sorge
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sólskin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.