Sólskin - 01.07.1932, Síða 49

Sólskin - 01.07.1932, Síða 49
47 nautn veiklar alla krafta þjóðanna, svo að þeim er hættara við, en ella, að bíða ósigur í samkepn- inni. Fátt mun það vera, sem villir mönnum jafn herfi- lega sýn, og' vínið, því að undir áhrifum þess, get- ur maður ekki trúað sínum eigin augum. Pegar drukkinn maður drafar og reikar og vek- ur meðaumkun þeirra er sjá hann, þá finst hon- um sjálfum hann vera allra manna vitrastur og voldugastur. Vísindamenn hafa mai'gsinnis rannsakað krafta, vit og getu manna á undan og eftir alkohol skamti, og það hefir ávalt komið í ljós, að vín veiklar kraft- ana, ruglar hugsun, dregur úr dug og dáð og- öll- um mannkostum, jafnvel þótt þess sje neitt i smá- um stíl. Hvolpar, sem gefið er vín að staðaldri, ná litl- um þroska, geta lítiö vaxið og fátt lært fyrir heimsku. Peir verða og- skammlífari en aðrir hundar. Vínið gerir þá að ljelegum einstaklingum, eins og það ger- ir menn að mannleysum. Áður fyr hjeldu menn, að í vínanda væri næring- arefni, sem gott væri veikluðum mönnum og sjúlc- um. Nú er það vitað, að menn með víneitur í blóði sínu, eru ver undir það búnir en aðrir, að mæta veikindum og öðrum áföllum. Peim er og' hættara við smitun. Sumir halda, að vín hjálpi þeim til að þola kulda. Vísindarannsóknir hafa sannað hið gagnstæða. Menn

x

Sólskin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.