Fréttablaðið - 16.12.2010, Blaðsíða 78
16. desember 2010 FIMMTUDAGUR
Bækur ★★★
Forngripasafnið
Sigrún Eldjárn
Forngripasafnið er ný skáldsaga
eftir Sigrúnu Eldjárn og segir af
Rúnari sem flytur ásamt föður
sínum út á land og inn í byggða-
safn sem faðir hans hefur tekið
að sér. Á safninu reynist ekki
allt með felldu og smám saman
afhjúpa Rúnar og vinir hans þús-
und ára gamlan leyndardóm.
Dampurinn í sögunni er dálít-
ið ójafn og ráðgátan ekki í fyrir-
rúmi allan tímann. Sagan af því
hvernig Rúnar reynir að koma
sér fyrir í nýjum landshluta er
brotin upp með hugleiðingum
skúrksins í sögunni, en lengi vel
eru þær svo ómarkvissar að þær
kveikja ekki forvitni. Umræddur
skúrkur er einnig dreginn afar
óljósum dráttum sem veldur því
að áhuginn á gátunni verður tak-
markaðri en ella.
Lausnir sögunnar eru oft með
allnokkrum ólíkindum. Stund-
um er þetta skemmtilegt, eins og
þegar hópur sænskra fornleifa-
fræðinga finnur upp sérstakt tæki
sem getur kallað fram heilmynd-
ir af fortíðinni, með nokkrum
haganlega staðsettum geislum.
Langsóttara er þó að fornleifa-
fræðingarnir sænsku ákveða á
síðustu stundu, þegar tækið er
einmitt ný tilbúið,
að drífa sig til kol-
lega síns á Íslandi
og prufukeyra app-
aratið þar!
Þó er Forngripa-
safnið ein þeirra
sagna þar sem
nútímatækni er
mikið til hundsuð.
Það virkar þving-
að og óeðlilegt í
bók sem kemur út
árið 2010 að pilt-
ur geti ekki náð í
foreldra sína um
lengri tíma vegna þess að annað
þeirra „þrjóskist við“ að fá sér
GSM-síma og hitt sé utan þjón-
ustusvæðis.
Rúnar er skemmtilegur strák-
ur og félagar hans, tveir krakk-
ar úr næsta húsi, líka. Sigrún
hefur lengi skrifað skemmti-
lega samsetta barnahópa – hér
er til dæmis ein þriggja sögu-
hetja nokkrum árum yngri en
hinar sem eykur á fjölbreytnina
án þess að virðast þvingað. Feður
barnanna eru líka vel skrifaðir.
Þó má setja spurningarmerki við
að leyfa sjónarhorninu að flakka
frá Rúnari með þeim hætti sem
hér er gert – lesendur sjá nokkr-
um sinnum í hugskot pabba Rún-
ars og fleiri persóna, án þess að
það virðist framvindunni nauð-
synlegt.
Textinn í bókinni
er brotinn upp með
teikningum Sigrún-
ar sem lífga mikið
upp á hana. Þær eru
ekki jafnlíflegar og
maður á að venjast
frá henni, eins og til
dæmis í hinum stór-
skemmtilegu Árstíð-
um sem þau Þórarinn
Eldjárn sendu frá sér
í haust, en þær eiga
heldur ekkert að vera
það – hér er textinn í
aðalhlutverki.
Sigrúnu ferst raun-
ar líka vel að lýsa með orðum
– óreiðan á forngripasafninu
stendur lesendum auðveldlega
fyrir hugskotssjónum og maður
þarf ekki að hafa ferðast víða
um landsbyggðina til að brosa í
kampinn þegar vinkona Rúnars
leiðir hann um þorpið og segir
„þetta skrýtna geimskip þarna
er kirkjan“ (bls. 44).
Það er margt vel gert í þessari
bók og hún er greinilega skrifuð
af fagmanni – en fléttan er veik-
asti hlekkurinn í skáldskapar-
keðju þar sem sögusvið, persónur
og lýsingar eru öll með ágætum.
Arndís Þórarinsdóttir
Niðurstaða: Haganlega skrifuð saga
sem líður fyrir heldur þunglamalega
fléttu.
Leyndardómar fortíðar
Sveppabókin – íslenskir
sveppir og sveppafræði –
byggir á hálfrar aldar rann-
sóknum Helga Hallgríms-
sonar náttúrufræðings á
sveppum í íslenskri náttúru.
Í henni er um eitt þúsund
tegunda getið og 700 þeirra
lýst. Bókin er ein þeirra
sem tilnefndar hafa verið
til Íslensku bókmenntaverð-
launanna í flokki fræðirita.
„Okkar skrautlegasti sveppur er
berserkjasveppur, sem ég kalla
berserk. Það er eins og að koma
í ævintýraland að hitta á hann,“
segir Helgi Hallgrímsson sem
hefur farið vítt og breitt um land-
ið að rannsaka sveppaflóruna. Nú
er afraksturinn kominn út á 632
síðna bók sem prýdd er ótal mynd-
um og aðgengilegum upplýsingum.
Þar eru ekki bara matsveppir held-
ur líka fúasveppir, ryðsveppir og
fléttur, meira að segja sjálflýsandi
sveppir enda á bókin eflaust eftir
að verða mörgum leiðarljós.
„Ég byrjaði að fást við sveppi
fyrir um fimmtíu árum en hóf ekki
að skrifa þessa bók fyrr en um 1990
og tók þriggja ára hlé upp úr alda-
mótunum meðan ég skrifaði bók
um Lagarfljót. Undanfari þessar-
ar sveppabókar var kver um mat-
sveppi sem Garðyrkjufélagið gaf
út eftir mig og
kom út 1979. Það
er dálítill munur
á stærð þess og
nýju bókarinn-
ar sem ég vona
að auki áhuga
Íslendinga á
sveppum.“
Bókin skiptist
í megindráttum í
tvo hluta. Fyrri hlutinn er almennt
efni um sveppi og þar er drepið á
flest sem kemur þeim við, lifnaðar-
hætti, nýtingu og hættur en í seinni
hlutanum eru lýsingar
á tegundum og flokk-
um. „Langmest er
um íslenska sveppi en
fáeinar útlendar teg-
undir fljóta með. Þær
eru frægar á einhvern
hátt, annað hvort ban-
eitraðar eða þær eru
góðir matsveppir,“
útskýrir höfundurinn.
Helgi segir mikið
hafa fjölgað í sveppa-
flórunni hér á landi síð-
ustu ár. Það geri skógræktin.
„Sveppirnir fylgja svo mikið trján-
um og koma í kjölfar þeirra, sér-
staklega hattsveppirnir. Okkar
bestu matsveppir eru þannig til-
komnir eins og lerkisveppur og
furusveppur.“
Helgi er fæddur og uppalinn á
Fljótsdalshérðaði og búsettur þar
eystra. Hann hlýtur því að vera í
kjörlendi sveppafræðingsins. „Já,
hér í meginlandsloftslaginu fyrir
austan og norðan hafa fundist flest-
ar tegundir, annars vaxa sveppir
hvar sem er þegar viðrar fyrir þá.
Þeir spretta bara seinni part sum-
ars og á haustin og þá þarf helst að
vera dálítið rakt og sæmilega hlýtt
líka. Það geta komið ár sem lítið
ber á þeim.“
Helgi hefur ekki bara þurft að
finna sveppina heldur líka nöfn á
þá. „Það voru afskaplega fá nöfn til
á sveppum hér á landi. Mátti telja
þau á fingrum annarrar handar,
þannig að ég þurfti að
búa til nokkur hundruð
nöfn. Sum komu fram í
sveppakverinu en flest
eru að koma í fyrsta
skipti á prenti núna. Ég
er líka alltaf að breyta
þeim því ég er sjaldnast
alveg ánægður með þau.“
Helgi viðurkennir að
dálítils tómarúms gæti nú
þegar yfirlegu yfir þessu
stórvirki sé lokið. Í for-
mála bókarinnar kemur
fram að upp úr 1960 ætl-
aði hann að taka stórsveppaflóru
Íslands til doktorsprófs en kennar-
ar hans við háskólann í Göttingen
sáu ýmis tormerki á því og báru við
þekkingarskorti. Dembir hann sér
ekki bara í doktorinn núna? „Nei,“
segir hann og hlær við. „Ég er nú
orðinn 75 ára og hef ekki mikinn
áhuga á gráðum.“ - gun
EINS OG Í ÆVINTÝRALANDI
HELGI
HALLGRÍMSSON
EINIREYNIRYÐ Úr Eldborgarhrauni á
Mýrum. MYND/ÁSTA DAVÍÐSDÓTTIR
HVERFISSKRÝFA Mörkin Hallormsstað
24.8. 1988 (H.Kr).
BERSERKJASVEPPUR Hið óvenjulega litarfar og glæsileiki, að viðbættum vímu-
áhrifum, hefur skapað honum sérstöðu meðal sveppa um allan heim og um hann
hafa spunnist óteljandi munnmæli og þjóðsögur. (Ólafur Jónsson, Kópavogi.)
Geggjaðir aukavinningar!
Sendu SMS skeytið ESL
JOL á númerið 1900. Þú
færð spurningu og svarar
með því að senda SMS
skeytið ESL A, B eða C á
númerið 1900.
Þú gætir unnið!
Aðalvinningur:
iPhone 4 + 10.000 kr.
inneign hjá Tónlist.is
*Aðalvinningar dregnir úr öllum
innsendum skeytum 23.desember.
Vinningar verða afhentir í ELKO Lindum,
Kópavogi. Með því að taka þátt ertu
kominn í SMS klúbb. 149 kr./SMS-ið.
Þú færð 5 mínútur til að svara spurningu.
Leik lýkur 22.desember 2010
10. HVER
VINNUR!
Viltu vinna
iPhone 4?
DVD myndir og margt fleira...
T.
d.
þ
es
sa
r
ddddddddd..dddddd..dddddd.d.d.ddddddddddddddddd.dddddddddddddddddddddTT.TTTT.T.T.TTTTTTTTTTTTTTTTT
þe
s
þe
sesesssesssssssssssssssssssssssssssssessssssssssssesssssssssesesssþe
sssssss
þe
sssssesssseseseeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeþeeþeþeeeeeeeþeþeþeþeþeeeeeþeþeþeþeþeeþeeþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþ
rrrrrrrrarsa
rrrrrrrarsa
r
sasaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaasasaaaaasasaassssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss
Og margt fleira...
Tölvuleikir
T.d
. þ
es
si
r
Kippa af Malti
og Appelsíni