Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1984, Síða 7

Faxi - 01.12.1984, Síða 7
Titilblad hinnar veglegn Biblíu Guðbrands Þorldkssonar, sem var 1584fullprent- ud (Hólaprentsmiðju. um orðréttar setningar að ræða, þá er ómurinn frá honum þráfald- lega mjög skýr. Þegar Guðbrand- ur biskup settist á Hólastól var honum frá upphafi ljóst, að til þess að takast mætti að rótfesta hinn nýja sið í meðvitund manna, þyrfti að veita bæði kennimönn- um og alþýðu næga fræðslu um hin helgu sannindi trúarinnar eft- ir evangelískri kenningu. I þeim efnum var fáfræðin erfiðasti þröskuldurinn. En eins og til hag- aði í hinu mikla strjálbýli hér á landi, varð þessu takmarki best náð með því að gefa út góð, upp- byggileg og fræðandi rit. Þess vegna réðst Guðbrandur í að kaupa hið áðurnefnda prentverk Jóns Matthíassonar á Breiðabóls- stað. En það hefir hann vafalaust kynnt sér vandlega þann tíma sem hann sjálfur var þjónandi á Breiðabólstað, eftir lát síra Jóns svenska. Þetta prentverk, sem frá upp- hafi mun hafa verið ærið fjöl- skrúðugt og án efa orðið úr sér gengið þegar Guðbrandur kom til skjalanna, fékk hann með aðstoð Páls Sjálandsbiskups, hollvinar síns, endurbætt og aukið svo, að hann gat notað það og komið í framkvæmd áformum sínum um útgáfu góðra bóka til fróðleiks og leiðbeiningar, bæði alþýðu og prestum. í kirkjusögu Finns biskups Jónssonar eru taldir upp 85 bóka- titlar, sem Guðbrandur biskup gaf út. Fullyrða má, að þar komi ekki öll kurl til grafar, þó að flest sé fram talið. Auk þess voru end- urprentaðar a.m.k. 27 bækur, þannig að alls hafa prentgripir frá prentsmiðju Guðbrandar verið 112, — og þó sennilega nokkru fleiri. Er hér um ótrúlegt afrek að ræða, þegar aðstæður allar eru hafðar í huga. Fyrsti prentarinn, sem Guð- brandur hafði í þjónustu sinni, var Jón Jónsson frá Breiðabóls- stað, sonur áðurnefnds Jóns Matthíassonar. Ilefir hann vafa- laust numið prentlistina hjá föður sínum. Fyrsta bókin sem Guð- brandur lét prenta, var „Lífsins vegur“ eftir Níels Hemmingsen kennara hans og vin frá námsár- unum. Bókin var þýdd af biskupi sjálf- um og er ekki ósennilegt, að hann hafi valið hana til þess að auðsýna höfundi þakklæti sitt og votta honum virðingu sína og vináttu. Kom bókin út í árslok 1575. Eftir það rak hver bókin aðra, — og liðu fá ár svo, að ekki kæmi einhver bók út næstu 50 árin, nema á meðan prentun Biblíunnar stóð yfir, þá varð nokkurra ára hlé. Tvímælalaust má telja prentun Biblíunnar meginafrek Guð- brandar biskups í bókagerð hans, og mun það halda uppi nafni hans á meðan kristin þjóð byggir þetta land. Eins og frá var greint í upp- hafi var hún fullprentuð, sam- kvæmt eigin vitnisburði, hinn 6. júní 1584. Reyndar má geta þess að ég hefi í fórum mínum aðra heimild, alltrausta að því er ætla mætti, sem telur útgáfudaginn ekki 6. heldur 29. júní. En rök fyrir þeirri staðhæfingu hefi ég hvergi getað grafið upp. Talið er að prentun Biblíunnar hafi tekið allt að tveimur árum og að sjö menn hafi unnið að verkinu — undir yfirumsjón biskups. Er það ótrúlega skammur tími — enda mun ekki hafa verið slegið slöku við. Guðbrandsbiblía er 1242 blaðsíður. Upphafsstafir eru yfirleitt útskornir, sumir af Guðbrandi sjálfum að því er talið er. 29 myndir eru í bókinni og myndskreytingar á þremur titil- síðum hennar, auk þess sem fremsta titilblaðið er prentað í tveimur litum, rauðum og svört- um. Hluta af upplaginu sendi biskup utan til bókbands, en síð- ar fékk hann erlendan bókbind- ara, danskan eða þýskan, Jurin að nafni, hingað til lands til að halda verkinu áfram. Hann kenndi fyrsta íslenska bókbind- aranurn eftir siðbót — Jóni Arn- grímssyni, og lauk, Jón við að binda það sem eftir var af upp- laginu. Að ytra útliti er Guðbrandsbibl- ía stórglæsilegt verk. Letrið er skýrt og bandið hið fegursta. Fag- urkerar í hópi hinna bókfróðustu manna fullyrða að Guðbrands- biblía sé tvímælalaust fegurst allra bóka, sem út hafa komið á Islandi. Talið er nokkurn veginn víst að JÓLASÖNGVAR f KEFLAVÍKURKIRKJU Sunnudaginn 16. des. verðajólasöngvaríKeflavíkurkirkjuogheijast þeir kl. 15. Eins og á fyrri aðventu og jólasöngvum verður nú um að ræða íjöl- breyttan söng og hljóðfæraleik, er veita á birtu og yl í hjörtu bæjarbúa í skammdeginu. Kór Keflavíkurkirkju mun syngja nokkra jóla- og aðventusöngva. Þá munu nemendur úr Tónlistarskóla Keflavíkur leika bæði einleik og samleik og einsöngvarar syngja einir og saman nokkur lög. Má þar nefna þá félaga Sverri Guðmundsson, Stein Erlingsson og Guðmund Ólafsson, en þeir eru allir félagar í Kór Keflavíkurkirkju. Þá mun Kvennakór Suðumesja syngja undir stjóm Guðrúnar S. Frið- bjömsdóttur og Bamakór Keflavíkurkirkju mun einnig syngja nokkur lög. Umsjón og stjórnun tónleikanna annast organisti kirkjunnar, Siguróli Geirsson. Verið öll hjartanlega velkomin. FAXI-263
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.