Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1984, Side 12

Faxi - 01.12.1984, Side 12
Jón Thorarensen: Þegar konan reis upp í rúminu Síðasta veturinn, áður en að ég fermdist í Kirkjuvogskirkju, var kennari sveitarinnar, Vilhjálmur Ketilsson, þá óðalsbóndi á höfuð- bóli sveitarinnar, Kirkjuvogi. Hann var góðum gáfum gæddur eins og ættfólk hans. Hjá honum fengum við krakkarnir fyrst að heyra um skáld og ritverk þeirra. Að vísu var ég eins og aðrir krakk- ar búinn að læra ýmis kvæði úr skólaljóðum, sem við sungum oft, en Vilhjálmur sagði okkur frá Grími Thomsen, sem hann var hrifinn af. Hann sagði okkur frá Gesti Pálssyni, Steingrími og Kristjáni Fjallaskáldi o.fl. Þetta var nýtt og gaman. Má segja, að þetta hafi verið fyrsti vísir að bók- menntasögu þjóðarinnar, sem við fengum á ævinni. Af sálmaskáld- um minntist hann einungis á Hallgrím og Passíusálma hans. Svo kom að því, þegar hann hafði frætt okkur um Hallgrím og sagt okkur, að Kirkjuvogskirkja hefði einu sinni verið ,, Annexía' ‘ hans, og hér hefði hann verið sóknar- prestur forðum í fjögur ár á Hvalsnesi, að hann sagði : Þess vegna er það skylda ykkar að læra eitthvað af sálmum hans. Nú fundum við, að vandast tók mál- ið, þegar hann sagði: Ég læt ykk- ur læra 44. sálminn fyrst, sem er sjálfsagðastur af öllum, en ef, aft- ur á móti, það gengur vel og þið verðið dugleg, getur verið, að ég bæti einhverju við af sálmunum, því allt er, hvað öðru betra hjá Hallgrími. Við vorum ekkert hress yfir þessu, því þetta var reglan að læra þetta utan að. Þegar ég kom heim, sagði ég frá þessu, en fósturforeldrar mínir, settu strax Kristínu Gísladóttur, vinnukonuna, sem var Guðsorða- lesari heimilsins mér til höfuðs að fylgjast með að ég lærði þetta. Ég var nú ekki sem ánægðastur með þetta, því Kristín var látin hafa eftirlit með mér við lærdóm Helga- kvers. Kristín var ströng og sagði oft við mig: Það er ekki nóg Nonni minn að kunna utanbókar. Þú verður alltaf að kunna að raða ritningargreinunum í réttri röð í huganum. Þá er þetta sómasam- legt. Sjálf kunni hún Helgakver og ritningarstaði í réttri röð. Hún þurfti ekki að nota kverið, þegar hún hlýddi mér yfir. Eins var þetta með 44. passíusálminn. Þegar ég kunni sálminn og versin öll í réttri röð, þá var hún ánægð. En það er frá Vilhjálmi kennara okkar að segja, að þegar þetta hafði gengið vel hjá okkur með 44. sálminn, þá herti hann á klónni sem kallað er og sagði: Ur því þið eruð búin að læra 44. sálminn, — megið þið endilega til að læra svolítið meira hjá honum sr. Hallgrími í þessu dásamlega Guðsorði. Það er bæði gott og nauðsynlegt að læra í Passíusálm- unum, þið finnið það, þegar þið verðið stór. Svo lét hann okkur læra 25. og 48. sálminn. Okkur fannst þetta mikið þá, en svo varð að vera. Kristín Gísladóttir var látin sjá um utanaðlærdóm minn í þessu öllu. Svo leið tíminn, svo liðu árin. Alltaf kunni ég Helgakver og passíusálmana þrjá. Svo varð ég prestur, og þá þegar ég fór sjálfur að búa börn undir fermingu, þá fann ég hve gott var, að ég kunni þetta í passíusálmunum. Þá datt mér oft í hug orð Vilhjálms kenn- ara míns, þegar hann sagði: Þið finnið það, þegar þið verðið stór. Já, ég fann það og mat það mik- ils í sambandi við starf mitt. Eg gerði það að reglu minni að láta öll fermingarbörn hjá mér alla tíð læra 10 valin vers úr Passíusálm- unum, undir fermingu. Það var Jön Thorarensen. ekki mikið móts við heila sálma, en ég lét börnin læra þessi vers ut- an að. Svo var það einu sinni, eftir að Neskirkja í Reykjavík var risin, að ég var búinn að starfa þar lík- lega um tíu ára skeið, að ég var vetur einn að spyrja fermingar- börnin þar sem oftar. Var ég að hlýða þeim yfir versin úr Passíu- sálmunum, sem þau áttu að læra. Þá datt mér allt í einu nokkuð í hug, og ég sagði við þau: Nú skul- um við-gera nokkuð nýtt að gamni okkar. Ég er alltaf að hlýða ykkur yfir. Nú skulum við snúa þessu einu sinni við, og þið skuluð hlýða mér yfir. Þið skuluð öll fletta upp 44. sálminum í Passíu- sálmunum og hafa hann fyrir framan ykkur og vita, hvort ég fer með hann réttan allan sálminn og öll versin í réttri röð. Þið megið ekkert leiðbeina mér eða minna mig á. Þið eigið bara að segja mér, þegar ég er búinn að fara með hann allan, hvort hann hafi verið réttur og versin í réttri röð. Nú varð uppi mikill áhugi, allir urðu á augabragði vel vakandi og áhugasamir. Það hefði mátt heyra nál detta. Nú ætluðu þau að hlýða mér yfir. Nú var enginn annars hugar á þessari stundu. Ég byrj- aði, stillti mig vel af og fór með versin, en aðalhugsunin fór í það að raða þeim rétt, en versin sjálf kunni ég svo vel, að ég þurfti ekk- ert að hugsa um þau. Én með því að fara rólega með þau, tókst mér þetta. Þegar ég spurði börnin, hvort þetta hefði verið rétt, þá sögðu þau: Já, alveg rétt. Krökk- unum þótti ákaflega gaman að þessu, og þau færðust nær mér við þetta. Nú kem ég að lokaatriðinu í þessum hugleiðingum: Á fyrstu prestsárum mínum hér í Nessöfn- uði í Reykjavík, líklega 1942—43, var einu sinni hringt til mín og ég beðinn að koma til deyjandi konu í Kaplaskjóli. Ég fór og kom í lítið hús og inn í hreinlega og smekk- lega litla stofu á móti suðri, þar sem gamla konan lá. Loftið inni var gott og hreint, og einhver frið- ur og alúðarblær yfir öllu. Gamla konan lá í rúminu við gluggann. Hún hreyfðist ekki og þagði, en þegar ég hafði sest hjá rúmi hennar, sagði hún lágt og dauft, svo að það heyrðist varla: Syngdu passíusálm. Á ég ekki að lesa hann? Syngdu, bað hún. Ég varð að byrja. Ég valdi nú 44. sálminn, kunni öll versin í réttri röð, lagið er fallegt og syngst vel. Ég byrj- aði, söng lágt, mjög hægt og skýrt sem bezt ég gat, svo hún nyti Guðsorðsins. Þegar ég var búinn með sálminn, stundi hún upp: Æ, byriaði aftur á Sálminum. Ég var, Guði sé lof, vel fyrir kallaður á allan hátt, svo ég byrjaði aftur á sálminum og söng hann allan eða raulaði hann lágt. Gamla konan gaf aldrei hljóð frá sér annað en: Aftur. Er ekki að orðlengja það frekar, að ég söng þennan sálm alla nóttina, hvað eftir annað til , klukkan að ganga níu um morg- uninn. Þá allt í einu rís gamla konan upp í rúminu, en við höfð- um haldið, að hún myndi skilja við þá og þegar. Okkur brá mjög, sem inni vorum hjá henni og héld- um, að hún væri að taka svona hastarleg andvörp. Nei, málróm- ur hennar var nú gjörbreyttur orðinn, skýr og sterkur og hún mælti: Nú vil ég fá gott og sterkt kaffi strax. Það fékk hún og tók hraustlega á móti því. , Hún lifði 3—4 vikur eftir þetta- Jón Thorarensen- = 1 illlil'i ■■ » _ <m —^ V i TRÉ Óska öllum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsœldar á komandi ári TRESMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR Iðavöllum 6 — Keflavík — Sími 3320 268-FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.