Faxi - 01.12.1984, Side 20
Kvenfélag Keflavíkur
Laugardaginn 3. nóvember s.l.
efndi Kvenfélag Keflavíkur til veg-
legs afmælisfundar á Glóðinni, sem
hófstkl. 15.
Soffía Karlsdóttir, formaður fé-
lagsins, setti fundinn og bauð félags-
konur og gesti velkomna á 40 ára af-
mælisfagnaðinn. Meðal gesta voru
María Pétursdóttir form. Kvenfé-
lagasambands Islands, Olöf Guðna-
dóttir form. Kvenfélagasambands
Gullbringusýslu, Sigrún Hauksdótt-
ir bæjarstjórafrú og fulltrúar kvenfé-
laga í sýslunni.
Sigurbjörg Pálsdóttir, ritari, las
fundargerð síðasta fundar, sem var
hinn þrjúhundraðasti frá upphafi.
Því næst lýsti formaður kjöri átta
heiðursfélaga og afhenti þeim
skrautrituð skjöl og blóm. Heiðurs-
félagarnir eru: Eiríka Árnadóttir,
Ólöf Pálsdóttir, Steinunn Þorsteins-
dóítir, Guðrún Bergmann, Ásgerður
Eyjólfsdóttir, Guðbjörg Jónsdóttir,
Sesselja Magnúsdóttir og Vilborg
Ámundadóttir, en hún hefur verið
gjaldkeri félagsins frá fýrstu tíð.
Áður kjörnir heiðursfélagar voru
fjórir, þær Jóna Einarsdóttir, Emilxa
Snorrason, Þorgerður Einarsdóttir
40 ára
og Ágústa Guðmundsdóttir, og voru
þær tvær síðasttöldu mættar á fund-
inum.
Meðal annars dagskrárefnis á
fundinum var þetta helst: Kvenfé-
lagsminningar, gamansamur afmæl-
isbragur saminn og fluttur af Böðv-
ari Þ. Pálssyni; Ágrip af sögu félags-
ins, Guðrún Árnadóttir; Rœða,
María Pétursdóttir form. Kvenfé-
lagasambands íslands.
Færði hún félaginu að gjöf bókina
Margar hlýjar hendur, en sú bók hef-
ur að geyma sögu Kvenfélagasam-
bands Islands. Sjö fulltrúar kvenfé-
laga úr nágrenninu, auk Ólafar
Guðnadóttur form. Kvenfélagasam-
bands Gullbringusýslu, fluttu félag-
inu árnaðaróskir og færðu því
blómaskreytingar og fána sinna fél-
aga. Haukur Þórðarson og Jón
Kristinsson sungu nokkur lög við
undirleik Ragnheiðar Skúladóttur.
Blómaskreyting frá Bæjarstjórn
Keflavíkur prýddi veglegt veislu-
borð afmælisfundarins.
Fundarsljórnin var í höndum Guð-
rúnar Árnadóttur, sem lengi var for-
maður félagsins, en fýrsti formaður-
inn var Guðný Ásberg. Félagið var
stofnað 15. október 1944 af 30 kon-
um, en nú eru um 230 konur í félag-
inu.
Svo sannarlega hafa kvenfélags-
konur hvorki ástæðu til né áform
uppi um að lækka flugið, við þessi
tímamót og fannst tíðindamanni
blaðsins það skemmtilega táknrænt
merki fjörs og frelsis, þegar það upp-
lýstist undir lok fundarins, að for-
maðurinn væri stiginn um borð í
flugvél og floginn á vit nýrra óráð-
inna ævintýra.
Félagslegt framtak kvenna er og
þarf að vera vökult og sterkt afl í
þjóðfélaginu og þjóða í milli.
Kvenfélagi Keflavíkur er hér eftir
sem hingað til treyst til að halda á
lofti og standa vörð um dýrmæt rétt-
indi og skyldur kvenna.
Faxi þakkar Kvenfélagi KeflaviTcur
fjörutíu ára gæfuríkt starf og árnar
félaginu heilla á ókomnum árum.
K.A.J.
MARÍA PÉTURSDÓTTIR
FORMAÐUR KVENFÉLAGASAMBANDS ÍSLANDS
ÁVARP
Fyrstu minnisstæðu kynni mín
af Keflavík urðu eina hráslagalega
ágústnótt árið 1945. Ég var að
koma heim eftir tveggja ára dvöl
vestanhafs við nám og störf. Þetta
var fyrsta flugferðin mín, og þótt
hún væri ekki jafn þægileg og nú
tíðkast, var hún mun auðveldari
en 3ja vikna sjóferðin, er að heim-
an var haldið. Ég kom frá sumar-
hitum og gróðursæld, en okkur
varð hrollkalt þar sem við hímd-
um undir húsvegg, meðan við
biðum morguns og fyrstu rútunn-
ar til Reykjavíkur.
Sennilega höfum við verið eitt-
hvað að spjalla saman og þar með
truflað nætursvefn góðra Keflvík-
inga, er mild karlmannsrödd
heyrðist bjóða góðan dag. Mér
datt strax í hug að nú myndi hann
ætla að skamma okkur fyrir að
raska svefnró manna. En blessað-
ur maðurinn spurði bara hæ-
versklega hvort við vildum koma
inn og sitja í hlýjunni.
Þetta er fyrsta myndin af Kefl-
víkingi sem ég a.m.k. festi í huga
mér og vil geyma sem lengst. A
þessum árum voru kvenfélagsmál
mér ekki enn hugleikin og ég
hafði áreiðanlega ekki hugmynd
um ársgamalt Kvenfélag Kefla-
víkur.
Það var í gegnum stéttarfélag
mitt, Hjúkrunarfélagið, sem ég
smám saman kynntist kvenfélög-
um og Kvenfélagasambandi ís-
lands, en kvenfélögin hafa alla tíð
verið aflvakar til framfara í heil-
brigðismálum og öðrum fremur
veitt íjárhagslegan stuðning til
framkvæmda.
Nýverið kom á skrifstofu K.í.
ung kona, útlendingur, og vildi fá
upplýsingar um sambandið okk-
ar, þar sem hún er að skrifa rit-
gerð um Kvennalistann og fleiri
samtök kvenna. Með mér voru
hinar 2 stjórnarkonurnar. Við
fræddum hana um fyrstu kvenfé-
lögin á íslandi, stofnun Kvenfé-
lagasambands íslands, markmið
þess og stefnu, sögðum henni frá
héraðssamböndunum 22, tölu að-
ildarfélaganna, sem eru sam-
kvæmt síðustu tölu 252, og hefur
þá íjölgað á s.l. ári um 4 félög og
fjölda félaga okkar, sem munu
vera 22,333 að mig minnir. Við
gáfum henni upplýsingar um íjöl-
þætta starfsemi aðildarfélaganna
og samstarf okkar innan Kvenfé-
lagasambands íslands, m.a. í
276-FAXI