Faxi - 01.12.1984, Page 21
gegnum landsþingið annað hvert
ár og þess á milli formannafund-
ina, sem einnig eru annað hvert
ár. Við kynntum henni líka Hall-
veigarstaði, sem er sameign
Kvenfélagasambands Islands,
Kvenréttindafélags íslands og
Bandalags kvenna í Reykjavfk,
sem er 3. eignaraðilinn, en er þó
stærsta sambandið í KÍ. Sögðum
við henni frá Leiðbeiningastöð
húsmæðra, og ársijórðungsriti
okkar, Husfreyjunni og fræðslu-
ritunum, þátttöku okkar í bæði
norrænu og alþjóðlegu sambönd-
um húsmæðra og samstarfi við
ýmis önnur samtök og stofnanir.
Má þar nefna Bréfaskólann, Frið-
arhreyíingu kvenna, framkvæmda-
nefnd um launamál kvenna og
1985 nefhdina. Unga konan hafði
á mjög skömmum tíma náð nokk-
uð góðum tökum á íslenskunni,
en þegar við vorum of hraðmæltar
fyrir hana urðum við að grípa til
enskunnar, því móðurmál hennar
kunnum við alls ekki. Hún virtist
nú skilja okkur allvel auk þess
sem við gáfum henni rit og greinar
um KÍ, þannig reyndum við að
gefa henni sem gleggsta mynd af
þessum stærstu samtökum
kvenna í landinu.
En viti menn, eftir allt þetta
spurði hún: Til hvers er eiginlega
KÍ? Mér fannst þetta ágæt spurn-
ing hjá henni, því mergur málsins
er, að Kvenfélagasambandið er
fyrst og fremst til að mynda tengsl
milli allra þessara kvenfélaga, til
að sameina þau og veita þeim all-
an þann stuðning er fylgir því að
vera í heildarsamtökum og efla
kynni innbyrðis.
Framundan er lokaár kvenna-
áratugarins. Þá er í ráði að gefa út
ritverk um hvað áunnist hefur á
þessum áratug í launa- og at-
vinnumálum, listum, menntun-
armálum, heilbrigðismálum o.fl.,
og verður forvitnilegt að vita hvort
einhverjar marktækar framfarir
hafa orðið. Ég vek á því athygli að
í næsta eintaki af Húsfreyjunni
okkar segir frá, að skýrsla gefin út
af einni starfsnefnd Sameinuðu
þjóðanna hvetur eindregið til að
haldið verði áfram í auknum mæli
að athuga kjör kvenna, þótt
kvennaáratugurinn líði undir lok.
Þessi nefnd er ein þeirra fjöl-
mörgu nefnda S.b. sem íjallað
hafa, á þessum áratug, um mál-
efni kvenna. Evrópudeild Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar skipaði þessa þriggja
kvenna nefnd. í skýrslunni er
fullyrt að þótt heilsufar hafi tví-
niælalaust farið batnandi í Evr-
ópu, sé stigmunur mikill milli
landa. Yfirleitt hafi konur í þess-
um löndum betri laun en áður,
meiri og betri næringu, heilsu-
Guðrún Árnadóttir, stjómandi afmælisfundarins, tekur við gjöf frá Kvenfélagasam-
bandi fslands. Það er formaður sambandsins, María Pétursdóttir, sem afhendir
gjöfina. Lesendum til fróðleiks er kærkomin ástæða til að segja frá því að María teng-
ist Suðumesjum sterkum tryggðarböndum m.a. vegna þess, að Finnbogi heitinn
Guðmundsson útgerðarmaður frá Gerðum var maður hennar.
Stjórn Kvenfélags Keflavíkur Rut Lárusdóttir, Guðrún Ámadóttir, Vilborg
Ámundadóttir gjaldkeri, Soffía Karlsdóttir formaður, Valgerður Halldórsdóttir, Sig-
urbjörg Pálsdóttir ritari og horbjörg Pálsdóttir.
Heiðurfélagar Kvenfélags Keflavíkur, er sátu afmælisfundinn: horgerður Ein-
arsdóttir, Steinunn horsteinsdóttir, Ólöf Pálsdóttir, Guðbjörg Jónsdóttir, Guðrún
Iiergmann, Eiríka Ámadóttir, Vilborg Ámundadóttir, Ásgerður Eyjólfsdóttir og
Ágústa Guðmundsdóttir.
Félagið hefur kjörið þrjá heiðursfélaga auk þeirra níu, sem em á myndinni, em það
Emilía Snorrason, Jóna Einarsdóttir og Sesselja Magnúsdóttir. Er Sesselja í hópi
hinna átta nýkjörnu heiðursfélaga, en hún var því miður forfölluð vegna lasleika.
Ljósmyndir: Heimir.
samlegra húsnæði, en séu þó verr
settar en karlar, Ijárhagslega,
þjóðfélagslega og pólitískt og það
endurspeglist í heilsufari og vel-
ferð kvenna. Því skipti jafnrétti
kynjanna miklu máli, ef markmið
Alþjóðaheilbrigðismálastofnun-
arinnar fyrir árið 2000
brigdi öllum til handa“ á að nást.
í fyrrnefndri nefndarskýrslu er
spurt hvort launuð störf séu holl
fyrir konur. Svarið er afdráttar-
laust já, vegna bættra lífskjara er
fylgja í kjölfarið, einnig vegna
þess að þau gefa aukið sjálfstæði.
Ekki má þó gleyma, segir þar
ennfremur, neikvæðum þáttum
s.s. takmarkað starfsval er flest-
um konum gefst, og starfss'kipt-
ing kynja við heimilisverkin, sem
enn er við lýði, valdi því, að kon-
ur gegna oft tvöföldu starfi. Rann-
sóknir sýna að mæður sem vinna
utan heimilis nota þrefalt fleiri
klukkustundir við húsverkin og
helmingi fleiri til bárnagæslu en
faðirinn.
Þess vegna verður marki Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar aðeins náð, segir í skýrsl-
unni, ef jafnrétti ríl<.ir, þannig að
laun og vinnuskilyrði verði söm
fyrir bæði kynin, innan sem utan
heimilanna.
í fréttatilkynningu frá undir-
búningsnefnd fyrir lokaár
Kvennaáratugarins segir:
Nú eru liðin níu ár frá þeim stór-
viðburði er íslenskar konur lögðu
niður vinnu á degi Sameinuðu
þjóðanna á kvennaári 1975 til
þess að leggja áherslu á mikilvægi
vinnuframlags kvenna í þjóðfé-
laginu.
Við lok kvennaárs 1975, var
ákveðið að næstu 10 ár á eftir
yrðu sérstaklega helguð barátt-
unni fyrir jafnrétti kvenna og
karla undir kjörorðunum: Jafn-
rétti — Framþróun — Friður.
Nú þegar líður að lokum
kvennaáratugarins og árið 1985
nálgast óðum, hafa kvennasam-
tökin í landinu tekið höndum
saman um að helga árið 1985 bar-
áttunni fyrir áframhaldandi
vinnu aðjafnrétti kynjanna, frarn-
þróun og friði. Verður ýmislegt
gert á árinu til þess að minnast
þessara tímamóta, litið yíir farinn
veg og skipulagt fyrir framtíðina.
Baráttunni er engan veginn lokið.
Stofnaður hefur verið sam-
starfshópur 23 félagasamtaka,
þar á meðal KÍ til þess að vinna að
þessu verkefni, og hefur hópur-
inn hlotið nafnið '85 nefndin —
samstarfsnefnd í lok kvennaára-
tugarins. Valinn hefur verið 5
manna framkvæmdahópur til
þess að hafa yfirumsjón með að-
gerðum en einstakir starfshópar
munu vinna að sérstökum mál-
FAXI-277