Faxi - 01.12.1984, Side 30
18 ár samfellt við sjúkrahúsið.
Hönnuðir að byggingunni voru
Arkitektastofan sf., Örnólfur Hall
og Ormar Þór Guðmundsson.
Ýmsar tafir urðu á framkvæmd-
um viðbyggingarinnar.
Á fundi höldnum í sjúkrahús-
stjórn 1979 sá stjómin sig neydda
til að láta málið til sín taka og
gerði eftirfarandi bókun:
„Stjórn Sjúkrahúss Keflavíkur-
læknishéraðs óskar eftir því við
Innkaupastofnun Ríkisins, að
hún sjái til þess, að byggingar-
verktaki standi við gerða samn-
inga við sjúkrahúsbygginguna,
svo að ekki komi til frekari tafa
við framkvæmdir.“
Verkinu lauk í des. 1981 og 19.
dag þess mánaðar fór fram form-
leg vígsla I. áfanga nýbyggingar
sjúkrahússins, að viðstöddum
heilbrigðisráðherra og fleiri gest-
um.
í júlí 1982 var hafist handa um
byggingu II. áfanga sjúkrahúss-
ins, en þar skyldi heilsugæslu-
stöðin verða að stærstum hluta,
en að hluta til sameiginlega fyrir
sjúkrahús og heilsgæslu, og tæp-
um tveimur ámm síðar, eða í júní
á þessu ári var II. hlutinn form-
lega tekinn í notkun. Við það gjör-
breytist aðstaða heilsugæslu-
lækna, aðstaða skapaðist fyrir
sérlræðinga og aðra þá starfsemi
sem á að vera í tengslum við
heilsugæslustöðvar.
Árið 1982 sendu starfandi
læknar, hjúkmnarforstjóri og
deildarstjórar greinargerð til
sjúkrahússtjórnar með tillögu um
nauðsynlegar og aðkallandi end-
urbætur og breytingar á húsnæði
sjúkrahússins með tilliti til breyt-
inga og aukinnar starfsemi. Eins
og fram kemur í greinargerðinni
er mikil þörf fyrir legurými lang-
legusjúklinga á svæðinu, sem
leiðir til þess að tiltölulega mörg
rúm eru upptekin fyrir aldrað
fólk sem ekki þarf að liggja á
sjúkrahúsi, aðeins ellideild.
Sjúkrahússtjórn samþykkir á
fundi 1982: ,,Að leita leiða til að
leysa þennan vanda: ‘ ‘
A. Hvort mögulegt sé að tak hús-
næði yfirlæknis sem lang-
legudeild.
B. Hvort mögulegt sé að byggja
bráðabirgðahúsnæði.
C. Hvort mögulegt sé að hefja
strax byggingu III. áfanga.
D. Að hafnar yrðu viðræður við
stjóm elliheimilis Garðvangs
um að nýta viðbyggingu við
húsið til bráðabirgða fyrir
langlegudeild.
I kjölfar þessa var óskað eftir
ftindi með heilbrigðisráðherra.
Á fundi í stjórn sjúkrahússins
sem haldinn var í des. 1982 var
lögð fram bókun bæjarstjóra
Keflavíkur svohljóðandi:
„Bæjarstjórn Keflavíkur sam-
þykkir að fara þess á leit við stjórn
Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishér-
aðs að hún leiti heimilda til að láta
hanna næsta áfanga sjúkrahúss-
ins (III. áfanga).
Undirbúningur verksins og að
fjárveitingum verði síðan hafxnn
með það fyrir augum að fram-
kvæmdir geti hafist á næsta ári til
þess að leysa þá miklu þörf sem er
fýrir langlegusjúklinga. Þrátt fyr-
ir þetta haldi stjórnin áfram könn-
un á hugsanlegri bráðabirgða-
lausn þessara mála.“
Á fundi 17. des. 1982 upplýsti
formaður byggingarnefndar,
Framhald á bls. 341.
VELDU
BETRl
KOSTINN
NONNI OG BUBBI
HRINGBRAUT 92
286-FAXI