Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1984, Page 38

Faxi - 01.12.1984, Page 38
Stuttur sólargangur veldur því aö viö verðum af vítamínum sem okkur eru nauðsynleg til að halda góðri heilsu. En við getum bætt okkur þetta upp með því að taka lýsi daglega. Lýsi inniheldur náttúruleg Aog D víta- mín. Þau styrkja vöxt tannaog beina, hafa góð áhrif á sjónina og byggja upp vörn gegn ýmsum kvillum. En lýsið gerir meira, - í því er einnig mikið af fjölómettuðum fitusýrum, sem fullyrt er að dragi ur líkunum fyrir því að menn fái hjartasjúkdóma og of háan blóðþrýsting. Er þetta ekki næg ástæða fyrir ykkur til að byrja strax - heilsan er það dýr- mætasta sem við eigurn. Grandavegi 42, Reykjavík. Hollur er heima- fenginn baggi Túnið sem ég hef nytjað gefur af sér í mesta lagi 45 hesta af heyi, en fóðurþörfin er áætluð 2 1/2 hestburður á kind, hef ég því ætíð þurft að kaupa mikið af heyi og graskögglum. A síðastliðnum vetri keypti ég t.d. 4 tonn. Heykögglar og þess háttar kostaði mig þann vetur um 65 þús. kr. Vanalega hef ég verið með á bil- inu 30—50 kindur á fóðrum, en nú undir lokin var komið kvóta- kerfi á minn ijárstofn eins og hjá öðrum. Fyrstu búskaparárin mín sló ég hér víða bletti með orfi og ljá og heyjaði allt af handaíli með fjöl- skyldunni og vinum, en seinni ár- in hef ég fengið lánaðar heyvinnu- vélar hjá vinum og kunningjum, sem búnir voru að hirða. Um tíma verkaði ég vothey, eftir að ég hafði kynnt mér þá verk- unaraðferð norður á Ströndum. Reyndist það afbragðs fóður og þau árin hafði ég best upp úr kindunum. Nikolai Elíasson sálugi, bóndi á Bergi, var hér í nábýli við mig lengst af, með svínin sín. Það var nú gott að vera í nábýli við þann ágæta mann og góða dýralækni, þó ég hafi að vísu ekki þurft mikið á dýralækninum að halda, því fé mitt var mjög heilsuhraust. Ég hef alltaf notað húsdýra- áburð á túnið. Mitt álit er, að hey af slíku túni sé hollara en það sem fæst, þar sem loftáburður er not- aður svo til eingöngu. Ef kindur eru fóðraðar rétt og vel og drykkjarvatn er nægjanlegt, er ekki svo mikil hætta á að þær verði heilsuveilar. * Eg hef reynt að hjálpa þeim sem fegra vilja bæinn Þó kindur hafi nú verið bann- aðar hér í bæ um árabil, þá hafa margir af frammámönnum bæjar- ins átt erindi til mín og spurt mig hvort ég gæti ekki hjálpað þeim um sauðatað. Ég hef aldrei sagt nei, en ég hef alltaf spurt þá hvað þeir ætluðu að gera við taðið. En þeir hafa sagt mér að það ætti að notast í blómagarða. Þá hef ég ávallt sagt að það væri númer eitt að þeir fengju skítinn því þá hefðu þeir hug á að fegra bæinn og ekki veitti nú af. Þú veist það líka eins vel og ég að llestir blómagarðar, hér í bæ eru gerðir af mönnum, sem eru aðílutlir frá stöðum, þar sem meiri ræktunaráhugi hefur verið ríkjandi, en hér tíðkaðist til 294-FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.