Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1984, Qupperneq 51

Faxi - 01.12.1984, Qupperneq 51
ÁRNAÐ HEILLA ARNI G. MAGNUSSON VÉLSTJÓRI SJÖTUGUR Arni G. Magnússon vélstjóri átti 70 ára afmæli 3. nóv. s.l. Árni fæddist að Húsatóftum í Grinda- vík, sonur hjónanna Kristínar Gísladóttur, ættaðri af Álftanesi og Magnúsar Árnasonar, sjó- manns, er drukknaði ásamt tveimur bræðrum sínum, 18 vik- um eftir fæðingu Árna. Kristinn Reyr - Árni og Kristinn eru syst- kinasynir - segir þá sorgarsögu í einu besta ljóði sínu, ,,Þann aprfldag* ‘, sem er í ljóðabók hans Vegferð til vors. Kristinn fær fyrir sjónir sér glögga mynd af afa sín- um, Árna Jónssyni, þar sem hann stendur á fjörukambinum og norfir á bát sona sinna fatast sigl- ing og hverfa í djúpið. Karlmenn- ið þjóðkunna, bændahöfðinginn frá Krísuvfk, þá búsettur að Vindheimum í Grindavík, var ekki að flíka hugarkvöl sinni þótt hann ætti þann apríldag þrjá syni í sjó. Arni Jónsson átti þá eftir tvo syni og margar dætur. Stór af- komendahópur hans er nú dreifð- ur víða um land. Hann flutti síðar til Reykjavíkur. En það er af ekkjunni, Kristínu móður Árna, að segja að hún hélt áfram að búa á Húsatóftum og giltist aftur þremur árum síðar Guðmundi yngri Jónssyni frá Hópi og bjuggu þau á Húsatóft- um. Guðmundur gekk Árna í föð- ur stað. En hans naut ekki lengi við. Hann dó úr lungnabólgu nokkrum árum síðar frá stjúpsyni og tveimur börnum, Magnúsi bónda í Borgarfirði og Guðfinnu frú í Reykjavík. Kristín hélt áfram búskap af miklum dugn- aði, við erfiðar aðstæður. Árið 1926 flutti hún úr Staðar- hverfi austur í Járngerðarstaða- hverfi, lét byggja lítið hús á klöppinni fyrir ofan Baldurshaga og nefndi húsið Hellur. Barna- skólinn var þar nálægur, en skólaganga úr Staðarhverfi löng fyrir börnin, sem þá höfðu hafið skólagöngu. Einnig var meiri von um lausavinnu í því hverfi, þótt augljóst megi vera að afkoma var erfið fyrir fyrirvinnulausa konu með þrjú börn. Kröfurnar voru ekki miklar og Kristín var hag- sýn, vinnusöm og dugleg. Á Hellum var alltaf hreinlegt og snyrtilegt og þangað gott að koma. Vegna frændsemi við Magnús og Guðfinnu, yngri börn Kristín- ar á IJellum, og þó einkum vegna þess að við jafnaldrarnir Árni, elsta barn Kristínar, gerðumst mjög samrýndir um og eftir ferm- ingu, var ég mjög tíður gestur á Hellum. Árni var ákaflega hand- laginn og fékkst við ýmis konar föndur, sem ég hafði áhuga á að fylgjast með. Hann kenndi mér t.d. að saga út muni úr krossvið og rammasmíði úr rekaviðarfjöl- um — mahóní og öðrum kjörviði. I lann var líka töluvert forframað- ur í augum okkar ungmennanna, þar sem hann var stundum sum- arlangt hjá Árna afa sínum á Grímsstaðaholtinu í Reykjavfk. bar fór hann í smiðju hjá gamla manninum, sem var smiður góð- ur, og réri með honum til hrogn- kelsaveiða út á Skerjaijörð. Auk þess hafði hann frá ýmsu að segja af unglingum borgarinnar og hátt- erni þeirra, sem gaman var að hlýða á, enda hafði hann góðan frásagnarmáta. Af þessum ástæð- um tók það okkur oft langan U'ma á haustkvöldum að fylgja hvor öðrum heim — var gangan milli Krosshúsa og Garðhúsa stundum margfarin sama kvöldið og bar þá margt á górna. Sjálfsagt ræddum við um fallegu stúlkurnar, jafn- öldrur okkar, kosti þeirra og ynd- isleik. Mestur tími lór þó í bolla- leggingar um þá framtíð sem við horfðum til — annars var ekkert málefni okkur óviðkomandi þá. Sjávarstörf voru eini atvinnu- möguleiki grindvískra pilta á þeim árum. Árni var traustur og tápmikill strákur og hann var því kominn í ágætis skipsrúm stuttu eftir fermingu. Hann var margar vertíðir með Guðjóni Klemenssyni, sem talinn var ágætur formaður og vinsæll af öllum er honum kynntust. Á vor- og sumarvertíðum leitaði Árni at- vinnu á öðrum slóðum og ævin- lega við sjómennsku. Okkur hafði komið saman um það á kvöld- göngum æskuáranna, að einfald- ur hásetahlutur væri ekki það sem keppa bæri að þótt góður þætti okkur hann á táningsárun- um. Við töldum að vélstjóra- menntun væri spor í rétta átt og fórum því saman í nám hjá Fiski- félagi Islands, sem þá stóð fyrir mótorvélstjórafræðslu er við vor- um tvítugir. Árni vann vel að þessu námi, eins og öðru er hann tók sér fyrir hendur og hefur vél- gæsla verið hans starf síðan. fyrst á mótorbátum en síðastliðin 42 ár hjá Hraðfrystihúsi Grinda- víkur. Kunnugir segja mér að járna- kramið' í H.G. væri varla uppi hangandi ef Árna hefði ekki notið við. Um það skal ég ekki dæma, veit hins vegar, að hann hefur unnið þar mikið og gott starf af einstakri samviskusemi og stakri umhyggju fyrir þeim tækjum er honum var trúað fyrir og eru slag- æð þess fyrirtækis er hann hefur þjónað heila starfsævi., Einnig var Árni kjörinn endurskoðandi Hraðfrystihúss Grindavíkur um árabil. Árni giftist 18. des. 1942 Guð- rúnu Jonsdóttur ættaðri frá Hólmavík. Hun átti einnig sjö- tugsafmæli á þessu ári, er sléttum 6 mánuðum eldri eivbóndinn. Guðrún var áður gift Guðmundi Guðmundssyni, skipstjóra, er drukknaði í mars 1938, fórst með Fossanesi við Færeyjar. Þau höfðu eignast eina dóttur, Ernu, og gekk Arni henni í föður stað og varð afar kært milli þeirra. Hún var greind og vel gerð stúlka. Mikill söknuður var hjá þeim hjónum og öðrum vandamönnum er hún lést 2. janúar 1964. Hún hafði lokið námi í Flensborg og vann í prentsmiðjunni Guten- berg. Hún var mjög listhneigð og notaði frístundir til listiðkana, sótti námskeið í Tónlistarskólan- um og einnig leiklistarnámskeið. Guðrún og Árni eignuðust ekki börn. Þau bættu sér upp barn- leysið með því að ferðast mikið um landið og eiga margar ljúfar minningar úr þeim ferðum. Einn- ig hefur laxveiðin veitt þeim margar ánægjustundir, því að bæði eru þau mestu veiðiklær og samvera með laxveiðimönnum er ávallt skemmtileg upprifjun á æv- intýralegri viðureign við þann stóra. En það sem hefur verið þeirra stærsta áhugaelni í áratugi hefur verið starf í þágu slysavarna. Slysavarnafélag íslands á tvær deildir í Grindavík. Slysavarna- deildin Þorbjörn er löngu lands- kunn fyrir björgunarafrek, en björgunarsveit Þorbjarnar hefur bjargað íleiri mannslífum frá drukknun en nokkur önnur björgunarsveit hér á landi. Árni hefur verið félagi í þeirri sveit frá unglingsárum og verið skytta björgunarsveitarinnar síðan 1942. Hann hefur því oft verið í sviðs- Framhald á bls. 344. FAXI-307
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.