Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1984, Page 57

Faxi - 01.12.1984, Page 57
Skúli Magnússon: Sjóslysaannáll Keflavíkur 4. HLUTl 1880 Áraskipi hvolfir í Garðssjó Á öskudag 11. febr. 1880 gerði mikinn norðaustan storm víða um land sem olli miklu tjóni. Skip frá Suðurnesjum réru mörg og sexmannafar frá Keflavík náði ekki landi er veðrið skall á, en hvolfdi í Garðssjó. Fimm menn komust á kjöl en tveir drukknuðu. Barst skipið að landi fyrir vestan Naustarif í Garði, fullt af sjó, gegnum freyðandi sælöður og stór- brim. Stundum sáust ekki nema skipsstafnarnir. Menn í Garðinum fylgdust með og voru tilbúnir til bjargar í fjör- unni. Bæði mönnum og skipi var bjargað á land og brotnaði skipið furðulítið. Einn mannanna dó hálftíma eftir landtöku. Fjórir náðust mjög aðþrengdir og nærri dauða komnir. Hresstust þó fljót- lega og héldu lífi. Tvö önnur áraskip hröktust á land í Garðinum í þessu veðri. Þeir sem fórust hétu: Jón Bjarnason, 41 árs. Kvænt- ur. Húsmaður í Keflavík. Eyjólfur Helgason, 39 ára. Okvæntur. Vinnumaður í Kefla- vík. Ólafur Helgason, 29 ára. Ókvæntur. Sjómaður í Keflavík. Var frá Borgarholti. Mennirnir voru jarðaðir á Út- skálum 15. febr. 1880. (Sudurnesjaannáll. Rauðsk., III, bls. 114. Prestþjónustubók Útskála 1850- 1880, bls. 320). 1881 Skonnortan Dragsholm strandar Hinn 9. sept. 1881 var sunnan stormur í Keflavík fram eftir degi, en vindinn herti er á daginn leið, og aðfaranótt 10. sept. var komið afspyrnurok. Danska skonnortan Drags- holm, eign Knudtzonsverslunar, lá þá á Keflavík. Skipverjar, sem voru um borð, sáu að í óefni myndi fara og forðuðu sér til lands á skipsbátnum. Skömmu síðar slitn- aði skipið upp og rak upp undir Hólmsberg. Ymislegt náðist af varningi úr skipinu og var síðar selt á uppboði, eins og siður var, til að fá upp í kostnað sem af strandinu leiddi. Hluti af farminum var seldur á 400 kr. í Byggðasafni Suðurnesja er til veggklukka, sem sögð er hafa ver- ið í káetu Dragsholm. (Sitdimiesjaimnáll. Rtutðsk. III. bls. 127. P.G.: Atmáll 19. aldar. IV. bindi. bls. 359). Sonur lók við af föður. Hans Peler Duiis (1829 - 1883) tók við verslun í Keflavík, og átli skip, sem strandaði 1882. 1882 Skipsstrand í Keflavík Aðfaranótt 15. sept. 1882gerðií Keflavík mikið vestanlandssunnan óveður með miklu hafróti. Lá þá á höfninni 70 lesta fisktökuskip á vegum Duusverslunar. Slitnaði skipið upp og rak á land. Drukkn- aði skipstjórinn ásamt þremur skipverjum. Einn komst lífs af til lands á plankabroti um morgun- inn, en matsveinninn hafði farið í land daginn áður. Skipið var fárra ára gamalt. Síðar var haldið upp- boð á brakinu. Einn þeirra sem drukknaði, var Jens Gaarm Paulsen, 24 ára háseti, ættaður frá Lossöe í Danmörku. Nöfn hinna sem fórust finnast ekki í Kirkjubók Útskála. Annáll 19. aldar segir að strand- ið hafi orðið í október 1882, en Suðurnesjaannáll og prestþjón- ustubók nefna 15. sept., og ber heldur að taka það til greina. (P.G.: Annáll 19. aldar, III, bht. 391. Suðurnesjaannáll. Rattðsk. III, bls. 134. Preslþjónuslubók Úlskála 1881-1891, bls. 204). 1882 Þilskipið Ásta Málfriður strandar Aðfaranótt 13. des. 1882strand- aði þilskip Duus-verslunar í Kefla- vík, Ásta Málfríður, á skerjum undan Brunnastaðatanga á Vatns- leysuströnd. Klukkan var um fjög- ur og veður var allskaplegt. Skipið var á leið til Keflavíkur með salt frá Spáni eða Englandi. Komst áhöfn greiðlega á land og á fjöru mátti ganga þurrum fótum út í skipið. Síðar var skipið selt á uppboði. Bundust Strandaringar og Voga- menn samtökum um að bjóða í skipið og farminn og fengu hvort tveggja fyrir 78 krónur. „Þótti svo lítið verð nýlunda hér við sjó“, segir Suðurnesjaanndll. (P.G.: Annáll 10. aldar, Lbs. 2777, 4to. Bls. 206. Suðurnesjaannáll. Rauðsk. 111, bls. 136). 1887 Árabátur ferst í róðri Hinn 29. mars 1887 fórust fjórir menn á árabát frá Keflavík, er þeir vitjuðu um net sín. Voru þeir á siglingu er slysið varð: Mennirnir hétu: Ólafur Þorleifsson, 26 ára. Veit- ingamaður í Keflavík. Kvæntur og átti börn. Meðal þeirra var Magn- ús, síðar útgerðarm. í Höskuldar- koti í Njarðvík. Stefán Þorvarðarson, 18 ára. Fyrirvinna aldraðs föðurs, Þor- varðs beykis Helgasonar í Kefla- vík. Ásbjörn Guðmundsson, 34 ára. Lausamaður í Keflavík. Jón Jónsson, 26 ára. Vinnumað- ur í Keflavík. í prestþjónustubók segir að lík þeirra hafi ekki fundist. Suðurnesjaannáll getur þess að slysið hafi orðið í apríl, en trúlega er það misminni annálshöfundar, sr. Sigurðar, sem þá var mjög tek- • GETRAUN Tengið alla punktana saman með 4 beinum línum, án þess að lyfta pennanum frá pappírnum. Lausn á bls. 321. ,,Þegar ég lýg,“ sagdi stjórn- málamaður nokkur í rœðu, ,, þá geri ég það einungis í þágu sannleik- ans. “ __________ McNeill flulti inn í ódýrustu íbúð-' ina, sem lutnn fann í bœnum. Dag- inn eftir kom vinur hans McAber í forvitnisheimsókn. ,,Reglulega liugguleg íbtið hjá þér. En hvers vegna hefurðu fest veggfóðrið upp með teiknibólum?" ,,Það er vegna þess, að ég œtla ekki að búa hérna œvilangt. “ L FAXI-313

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.