Faxi - 01.12.1984, Síða 61
Jón Bjarnason, 32 ára.
Benóný Þorsteinsson, 36 ára.
Ólafur Gíslason, 25 ára.
(Fjallakonan 10. des. 1897. MVJ.:
..Minningar frá Keflavík". Faxi. des. 1955,
bls. 96. Prestþjónuslubók Útskála 1892-
1917, bls. 349).
1899
ÞilskipiS Málfríður
strandar.
Aðfaranótt 14. nóv. 1899 um kl.
4 strandaði þilskipið Málfríður,
eign Duusverslunar í Keflavík, á
svokölluðum Bjeringstanga á
Vatnsleysuströnd. Skipið var með
salt. Skipstjóri var danskur. Olsen
að nafni. Hinn 23. nóv. var haldið
uppboð á farminum og braki úr
skipinu. Uppboðsandvirði nam
2,305 kr., en vinnulaun til þeirra
sem unnu við strandið námu kr.
494,70. Tekjuafgangur varð því
1140 kr. við endanlegt uppgjör.
Málfríður var skráð í Kaup-
mannahöfn (skv. strandreikning-
um). Skipið var 63,48 lestir að
stærð. Duusverslun keypti skipið
1889. Fór það fyrstu ferð sína með
saltfisk (1679 skpd.) frá Keflavík
til Kaupmannahafnar 5. okt. s.á.
Skipstjórinn var þá danskur, Níel-
sen að nafni. Hér virðist um sama
skipið að ræða og strandaði á Eski-
firði 1893.
(Almanak Þjóðvinafél. 1901. Árbók
1899. Skipakomubók Gullbringusýslu
1889. Þjódskjalasafn. Strandskjöl Gull-
bringusýslu 1899-1905. Þjódskjala-
safn.).
1903
Maður fellur útbyrðis.
Hinn 16. apríl 1903 drukknaði
Helgi Valdimar Jónsson af þil-
skipi. Hann var 29 ára gamall og
búsettur í Keflavík. Kona hans var
Júlíana Sigríður Jónsdóttir. Þeirra
synir: Jón Jónas, síðar bóndi á
Ytrihúsum í Dýrafirði, og Jón er
drukknaði af m.b. Óskari í
Reykjavíkurhöfn 1923. (sjásíðar).
(MVJ.: ..Minningarfrá Keflavík. Faxi,
maiblad 1961, bls. 62. Prestþjónustuhók
Útskála 1892-1917, bls. 357).
1904
Þilskipið Asta strandar í
Keflavík.
í stað Ástu sem strandaði í Pat-
reksfirði 1897, keypti Duusverslun
nýtt skip, sem bar sama nafn.
Einnig það skip rak upp í fjöru í
Keflavík, 4. maí 1904. Vildi það til
á áttunda tímanum um morgun-
inn. Skipið var nýlega komið frá
útlöndum og röskum þriðjungi af
vörum hafði verið skipað á land.
Skipshöfnin bjargaðist greiðlega
en skipið eyðilagðist.
Ásta þessi var 79,42 lestir að
stærð, og seinasta skipið í eigu
Duusverslunar, sem bar þetta
nafn.
Isafold 5. maí 1904. Gögn vardandi
strandid, þar á medal skýrsla hrepp-
stjóra, eru í bréfasafni Gullbringusýslu í
Þjódskjalasafni, frá árinu 1904).
1905
Keflvtkingur drukknar
við Austfirði.
Sumarið 1905 drukknaði Sigur-
jón Arnbjörnsson frá Keflavík, í
sjó við Austfirði. Hafði hann farið
þangað til sjóróðra.
Sigurjón var fyrri maður Guð-
rúnar Jónsdóttur í Holti í Kefla-
vík. Áttu þau fjórar dætur. Guð-
rún bjó seinna með Kristjáni
HAFSKIP SUÐURNES
^SML
JNL
NEW YORK GDYNIA VESTERVIK
"M'
J41
NORFOLK*»*«„lt,,t<j£
!*1«*»*#»**•»******«*«#*
>*
IPSWICH
IM,
! »**
!***»*
HELSINKI
*K**lf*«i#(»i*K*lt*t***
ALABORG
ANTWERPEN
KEFLAVIK ^
FREDRIKSTAD
ROTTERDAM
Á
v.
HAMBORG
'M'
JML,
HALMSTAD
V
GAUTABORG
Okkar menn á Suðurnesjum hafa nú opnað
vöruafgreiðslu í Keflavík.
Með því einföldum við málin fyrir hina
fjölmörgu viðskiptavini okkar á Suðurnesjum
og gerum vöruafgreiðsluna fljótvirkari og
hagkvæmari.
Varan leyst út á staðnum eftir tollafgreiðslu
í Keflavík.
Okkar menn,- þinir menn
HAFSKIP
SUÐURNES
Iðavöllum 5-Sími: 3320, Keflavík.
KAUPMANNAHÖFN
T
«1
itL,
JK l_ .
HAFSKIP
FAXI-317