Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1984, Page 81

Faxi - 01.12.1984, Page 81
Gamall kjarni í liðinu. Margir hafa spurt hvernig það fái staðist að lið úr fámennu byggðarlagi nái svo góðum árangri sem raun ber vitni, án þess að sækja leikmenn í önnur byggðar- lög. Svarið er það, að Víðisliðið byggist á mjög sterkum kjarna pilta sem spilað hafa saman allt frá því þeir hófu keppni í yngri flokkunum og skilja því vel hver annan sem er nauðsynlegt í hóp- íþróttum. Þáttur þjálfaranna er auðvitað mjög stór, — að geta virkjað efniviðinn sem þeir hafa að vinna úr. Marteinn Geirsson, sá langreyndi landsliðsmaður, (með flesta landsleiki alira íslendinga að baki) má vera stoltur af strákn- um í Víði og ánægður með árang- urinn í frumrauninni sem þjálf- ari. Ekki má heldur alveg gleyma öðrum þjálfurum Víðis, sem hafa átt sinn þátt í að móta iiðið, eins og Eggerti Jóhannssyni og Hauki Hafsteinssyni, en hann kom þeim á þröskuid I-deildarinnar í fyrra, — aðeins vantaði herslumuninn og örlitla heppni, til að það tæk- ist. Konurnar, - leggja mikið af mörkum, án knattar. Sigur í seinasta leiknum gull- tryggði Víði sæti í I-deild, en á sama tíma og þeir áttu í höggi við Njarðvíkinga, áttu ísftrðingar og KS, að keppa fyrir norðan, en þau lið höfðu bæði möguleika á því að ,,komast upp“, tapaði Víðir. Af einhverjunt ástæðum var leikn- um frestað um tvo klukkutíma, - sumir sögðu viljandi til að bíða eftir úrslitum í Víðis-UMFN leiknum, — en þau hefðu átt að spara sér ómakið. Víðir sigraði með 2:1. Klemenz Sæmundsson skoraði fyrra markið og Guð- mundur Jenz Knútsson það seinna, fyrir Víði, en Þórður Framhald á bls. 348 MINNING Ingimundur Guðmundsson FÆDDUR 9. NÓVEMBER 1957 DÁINN 3. NÓVEMBER 1984 Þegar mér var sögð sú harma- fregn, laugardagsmorguninn 3. nóv. sl., að þá um nóttina hefði farist af slysförum starfsmaður iriinn og vinur Ingimundur Guð- mundsson, komu fram í hugann margar spurningar sem ekki fást svör við eins og hvers vegna hann í blóma lífsins er kallaður burt svo skyndilega; hann sem átti svo mörg óleyst verkefni. Ingimundur var fæddur 9. nóvember 1957 í Garði, sonur þeirra heiðurshjóna Helgu Sig- urðardóttur og Guðmundar Ingimundarsonar frá Garðstöð- um, Garði. Ingimundur hóf nám hjá mér í rafvirkjun í september 1975 og starfaði hjá mér síðan, eða í rúm níu ár. Það var því mikil breyt- ing þegar mætt var til vinnu á mánudagsmorgni og hann vant- aði í hópinn, það var ekki byrjað eins og venjulega að ræða helstu áhugamál okkar allra, um úrslit leikja í ensku og þýsku knatt- spyrnunni, nei, menn sátu hljóðir og hugsuðu, hvers vegna hann, hann sem var svo gætinn og góður ökumáður sem aldrei hafði neitt komið fyrir í umferð- inni. Ingimundur var vinnu- samur og góður verkmaður, vel liðinn hvar sem hann var, alltaf jafn yfirvegaður. Það skipti hann ekki máli hvað klukkan væri, hann henti ekki frá sér verkfærum vegna þess að komið væri hádegi eða kvöld, nei, hon- um lá aldrei það mikið á, að hann mætti ekki vera að því að ganga frá eftir sig, það var ekki klukkan sem skipti máli heldur vinnan. Hann var heldur aldrei svo veikur að hann mætti ekki til vinnu, jú, hann var stundum lasinn, en það lagaðist sennilega og það tæki því ekki að fara heim, sagði hann. Þannig var hann aldrei óánægður, alltaf jan jákvæður. Hans er nú sárt sakn- að af vinnufélögum og fjölskyld- um þeirra, sem sjá á eftir góðum félaga og vini. Ingimundur vakti snemma at- hygli sem knattspymumaður. Hann var leikinn og lipur með boltann, auk þess að vera að eðl- isfari einstaklega rólegur og yf- irvegaður, með þessa hæfileika er ekki að undra þótt ég minnist margra atvika úr knattspyrn- unni. Mörg glæsimörk gerði hann fyrir okkur og er skemmst að minnast marksins sem hann gerði í leik á móti FH á Kapla- krika í sumar, en þá fékk hann boltann á sínum vallarhelmingi og brunaði upp allan völlinn og lék á hvem mótherjann á eftir öðmm og skoraði með hörku- skoti af 20 m færi glæsilegt mark sem tryggði Víði sigurinn, en þetta mark vó þungt á metun- um til að koma Víði í fyrstu deild. Hann hljóp ekki um-völlinn og barði sér í brjóst, nei, honum fannst þetta sjálfsagt og brosti bara, eins og honum einum var lagið. Eins var þegar í ljós kom, að Víðir léki í fyrstu deild að ári, allir réðu sér ekki fyrir fögnuði, þá sagði Ingi: Hvaða æsingur er þetta, var það ekki þetta sem þið vilduð? Það lýsir best Ingimundi að eftir að hafa leikið á þriðja hundrað leiki með meistara- ilokki, hafði honum aðeins ver- ið sýnt gula spjaldið í tvö skipti. Ég er þakklátur fyrir að hafa eignast svo góðan nema, þakk- látur fyrir störf hans hjá fyrir- tæki mínu og mun minnast hans lengi. Ég og fjölskylda mín biðj- um guð að blessa minningu um góðan dreng. Foreldrum og öðr- um aðstandendum hans biðjum við einnig guðs blessunar og styrks í þeirra miklu sorg. Hafi hann þökk fyrir allt og allt. Sigurður Ingvarsson. Sigurður Pétursson afhendir Róberti Sigurðssyni bikarinn sem ísbor gaf. Víðismenn hylla þjálfarann Marteinn Geirsson með því að , ,tollera‘ ‘ hann rækilega. FAXI-337

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.