Faxi - 01.12.1984, Side 84
Stjóm Í.B.K. Sitjandi frá vinstri: Ragnar Marinósson form. Í.B.K., Ragnhildur
Ragnarsdóttir ritari, Hörður Ragnarsson gjaldkeri. Standandi frá vinstri: Her-
mann Sigurðsson, NikulásBrynjólfsson, Hólmgeir Hólmgeirsson, Einar Bjömsson,
Amar Amgrímsson. Á myndina vantar: Sigurð Valgeirsson, Vilhjálm Grímsson
og Theodór Kjartansson.
íjárstyrk frá bænum, en nú sjá ráðin
og félögin algjörlega um öflun fjár til
félagsstarfsins. Er ekki að sjá á reikn-
ingum að þessi háttur hafi á nokkum
hátt dregið úr fjáröflun félaganna,
heldur sýnis þvert á móti mun betri
afkoma og mun þróttmeira starf nú en
oft áður.
íþróttahús Keflavíkur
Ekki verður skrifað svo um ÍBK að
ekki sé fjaUað um íþróttahúsið. Til-
koma þess hefur verið mikil lyftistöng
öllu iþróttastarfi í bænum. Svo vel
hefur til tekist, að við húsið hefur
ávallt starfað úrvals starfsfólk sem
hefur eignast vináttu og virðingu
íþróttafólksins. Þetta hefur haft í för
með sér einstaklega góðan umgengn-
isanda í húsinu. Má víða um land leita
að öðm eins íþróttamusteri.,
Nokkur orð eiga hér við um önnur
íþróttamannvikri bæjarins. I sumar
hefur verið unnið þrekvirki og verður
þess ekki langt að bíða, að Keflavík
geti státað af efldum flokki íþrótta-
fólks á sviði almennra íþrótta, s.s.
frjálsra íþrótta, trimmi o.fl.
Landsmót UMFÍ
Stærsti viðburðurinn á íþróttasviðinu
síðasta árið var vafalaust Landsmót
UMFI. Mótið tókst í alla staði mjög vel
og var mjög áberandi hversu bæjar-
búar tóku mikinn þátt í öllum undir-
búningi. Skartaði bærinn sínu feg-
ursta þessa júlídaga. Fjöldi þátttak-
enda var mikill og komu þeir hvaðan-
æva af landinu. UMFK náði fjórða
sæti í stigakeppni og var það góður ár-
angur.
Árangur í heild
á íþróttasviðinu var góður
Ekki er hér hægt að telja upp einstaka
árangra, en óhætt er að segja að kefl-
vískir íþróttamenn og konur hafi bor-
ið hróður síns bæjar langt út yfir bæj-
armörkin.
Nægir í því sambandi að nefna ár-
angur meistaraliðs í knattspymu,
sem náði þriðja sæti í íslandsmótinu,
og flestir yngri flokkamir komust í úr-
slit.
í körfunni féll meistaraflokkur nið-
ur í 1. deild, en yngri flokkamir héldu
uppi merkinu og unnu til fjögurra ís-
landsmeistaratitla og tveggja bikar-
meistaratitla.
Mjög góður árangur hefur náðst hjá
júdóiðkendum í Keflavík. Hefur nú
verið tekið til við æfingar í íþróttahús-
inu og fer iðkendum fjölgandi.
Mikill og vaxandi áhugi hefur verið
í öðmm greinum eins og áður hefur
verið minnst á, og verður ekki langt
að bíða, að hægt verði að geta góðs ár-
angurs þaðan.
Athyglisverður árangur
í fjármálum
Að lokum vil ég geta þess þáttar í
starfi ÍBK, sem einna mesta athygli
vakti á ársþinginu. Öll sérráð og
stjómin skiluðu sínum fjármálum
með mikilli prýði. Hvergi var um
skuldasöfnun að ræða, allir höfðu
unnið á.
Heildartekjur þessara aðila námu
7,5 milljónum og hreinn hagnaður
nam rúmlega hálfri milljón. Hug-
myndaauðgi hafði ráðið við hinar
ýmsu fjáröflunarleiðir. M.a. mátti sjá
innkomu af saltfisksstöflun, svo eitt-
hvað sé nefnt. Lýstu reikningar og
skýrslur allar heilbrigðri og öflugri
starfsemi.
Ragnar Marínósson var endurkjör-
inn formaður bandalagsins og fékk
hann til liðs við sig flesta þá sömu að-
ila og áður, þannig að ekki er að efa,
að næsta ár verður eins farsælt og
þetta. Um það íylgja þessari grein
bestu óskir frá Faxa.
H.H.
ÞÆTTIR ÚR SÖGU
STÆRÐFRÆÐINNAR
JAFNAÐARMERKIB OG
HÖFUNDUR ÞESS
Strax í bamaskóla læmm við að nota
jafnaðarmerkið í reikningi og okkur
finnst það svo sjálfsagt í daglegu
amstri, að við leiðum sennilega aldrei
hugann að upphafi þess. En þetta ein-
falda tákn á sér langa sögu og merki-
lega. Að vísu var það með öðm móti
fyrr á öldum en í dag, en jöfnuð sýndi
það eigi að síður.
Jafnaðarmerkið hefur verið til í ein-
hverri mynd allt frá því hinar fomu
Austurlandaþjóðir fóm að nota tákn
til að mæla fjölda, vegalengdir, og síð-
ast en ekki síst verðútreikning og
stærð lands, sem nauðsynlegt var í
þjóðfélögum sem byggðust á verslun
og landbúnaði.
Egyptar
Eitt elsta handrit sem varðveist hefur
með útreikningi er Ahmes papýms-
örkin egypska, sem nú er í British
Museum í Lundúnum. Hún er frá því
um 1650 f.Kr. Þarernotaðtákn, beint
strik með punkti yfir, sem merkir , ,til
samans“ eða „jafnt og“ í
samlagningardæmum. Það var
skammstöfun á sérstöku tákni í
egypska myndletrinu, sem var líkt og
eldspýtustokkur sem liggur á hlið,
séður á brennisteinsflötinn. En uppi
yfir fletinum var táknið W. Aðrir
egypskir skrifarar notuðu annað tákn
í sama tilgangi. Var það líkt og hálfop-
inn munnur.
Gríski stærðfræðingurinn
Diofantus notaði árið 275 tvo fyrstu
stafina í gríska orðinu isos, sem þýðir
jafn, fyrir jafnt og. Á svipaðan hátt
notuðu nemendur á miðöldum stafina
ae úr latneska orðinu aequalis, sem
merkir jöfnuð, í skrifum sínum.
J afnaðarmerkið
sem við notum í dag, er komið frá
breska stærðfræðingnum Robert
Recorde. í algebrubók hans „Hvatn-
ingu viskunnar“, sem út kom 1557,
segir hann m .a.: „Eg mun nota tvær
jafnlangar samsíða línur, þvf engir
tveir hlutir geta verið jafnari".
Recorde var upphafsmaður algebr-
unnar í Englandi, og áðumefnd bók
hans, ein fyrsta prentaða kennslubók
í algebm þar í landi. Hún var skrifuð
í samtalsformi, eins og þá var títt með
fræðirit, og með mörgum skýringar-
dæmum. Hún var notuð í heila öld
eftir dauða Recorde. Jafnaðarmerki
Recorde var ekki tekið mjög vel í
fyrstu, og um 200 ár liðu þangað til
það festist í sessi í stærðfræðinni.
Robert Recorde var fæddur um
1510 og dó í Lundúnum 1558. Auk
stærðfræði stundaði hann eðlisfræði
og lækningar. Kenndi einnig í Cam-
bridge. Var seinna í þjónustu
Edwards konungs 6. og Maríu drottn-
ingar. Skrifaði fyrstur manna rit á
ensku um stærðfræði og stjömufræði.
Eitt þekktasta rit hans var „Undir-
stöðuatriði tölfræðinnar", sem kom
fyrst úr 1540. Hún var rituð í samtals-
formi og ætluð til sjálfsnáms. Hún
kom út í 29 útgáfum, og var notuð í
um 150 ár. 1551 gaf Recorde út rit um
stjömufræði þar sem hann kynnti
Englendingum í fyrsta sinn kenningar
Kopemikusar um snúning jarðar um
sólu. Seinna staðfesti Galileo þessar
kenningar Kopemikusar, eins og
kunnugter. (Heimildir: Kennslubókí
algebm, útg. 1982. Breska alfræði-
bókin, útg. 1982. Minniútg. 8. bindi,
bls. 455).
Skúli Magnússon.
Tvœr yfirspenntar og hysterískar
konur mœttusl í dyrunum hjá geð-
lœkni.
,,Er ég að koma eða fara?"
spurði önnur.
,,Efég vissi j>aö nú, “ svaraði hin,
,, þá væri ég alls ekki hér. “
Eldri kona, sem var í þann veg-
inn að stofna hœnsnabú hringdi í
landbúnaðarráðuneytið og spurði
hversu lengi hún œtti að hafa han-
ann inni hjá hœnunum.
,,Aðeins andartak, “ svaraði
stúlkan við skiptiborðið. ,,Þakka
yður kærlega fyrir," svaraði sú
gamla og lagði tólið á.
,, Hvers vegna í ósköpunum hafið
þér orðið svona magaveikur?"
spurði lœknirinn.
,,Jú, skiljið þér, að ég er nefni-
lega prófdómari í matreiðsludeild
húsmæðraskólans. “
Andvarp föður, sem á einbýlis-
hús, bíl, sumarbústað, hefur alls
konar tryggingar og á þrjú börn í
framhaldsskóla. ,,Ef fjölskyldan á
að geta lifað áfram með öllum j>ess-
um kostnaði, hef ég alls ekki efni á
því að deyja á eðlilegan hátt. Það
verður að ske slys. “
XiiWL Úrval jólagjafa
Vönduð úr, klukkur, barómet,
/ti / ' gullskartgripir, silfurskartgripir
* V£_!L1/ og ýmsar gjafavörur
’yyyyý.: Georg V. Hannah
Úra- og skartgripaverslun, Keflavík.
340-FAXI