Faxi - 01.03.1988, Blaðsíða 6
IÁ þessari mynd md sjú alla þá, er voru ú stoftifundi Stakks, nema þann sem tekur myndina, en það var að sjálfsögðu Heimir Stígsson. Ef fyrst eru ncfndir
þeir sem standa lengst til vinstri, þú eru þar fyrstur Jón Tómusson. Þú koma Þórarinn lirynjar Þórðarson, Knútur Höiriis, Hrafn Sveinbjörnsson, Jónalan
Einarsson, Sveinbjöm Davfðsson, Hjörleifur Ingólfsson, Karl G. Scevar, Jón Stígsson, /brmaðurinn Garðar Sigurðsson, Herbert Árnason, Ellert Skúlason,
Bjöm Kristinsson, Pór Magnússon, Emil Sigurbjörnsson, Friðrik Magnússon og Þorleifur Sigurþórsson. Fyrir framan ftú vinstri standa: Gunnar Mattason,
Skafti Friðftnnsson, Bjöm Stefánsson, Þórður Þórðarson, Guðmundur Lámsson, Ágúst Guðjónsson, Högni Kristinsson og Níels E. Söring.
Eflaust ber hæst leitin mikla að
Geirfinni Einarssyni, sem aldrei
bar árangur þrátt fyrir gífurlega
mikla fyrirhöfh af hálfu sveitarinn-
ar. Var leitin ávallt gerð eftir beiðni
lögregluyfirvalda og var leitum
þessum stjómað af leitarstjóm
Stakks með höfuðstöðvar í húsi
sveitarinnar á Bergi. Lögðu félagar á
sig gífurlega mikla vinnu og erfiði
við leitir þessar enda var Geirfinnur
vinur og starfsfélagi margra okkar
félaga. í sumum þessum leitum
vom kvaddar til aðstoðar sveitir úr
nágrannabyggðarlögunum og
Reykjavík, og var leitað á landi, í sjó
og tjömum. Ýmsar kyndugar
ástæður vom fyrir sumum þessum
leitum, eins og sjáendur, skyggnar
manneskjur og draumspakir aðilar,
en eins og áður var minnst á var
Stakkur reiðubúinn að leggja sitt af
mörkum hvenær sem lögregluyfir-
völd töldu sig hafa ástæðu til að gera
leit. Sá árangur náðist þó af öllum
þessum leitaraðgerðum, að Stakks-
menn öðluðust mikla reynslu við
stjómun og skipulagningu björgun-
araðgerða ásamt því að góð æfmg
hlaust af við samstarf hinna ýmsu
björgunaraðila á suðvesturlandi. Þá
em einnig eftirminnilegar leitir á
Reykjanesi að manni er farið hafði í
skotferðalag og horfið sjónum félaga
sinna, ásamt leit að dreng sem horf-
ið hafði frá heimili sínu í Njarðvík-
um, en þessar leitir báðar tengdust
saman og lögðu gífurlega margir
fram krafta sína við þær báðar. Leit-
in á Reykjanesi hófst að kvöldi dags
í marsmánuði árið 1971 og var leitað
alla nóttina af Stakksfélögum og
hjálparsveit skáta í Njarðvíkum án
árangurs. Morguninn eftir var leitað
til hjálparsveitar skáta í Hafnarfirði
um aðstoð sporhunds þeirra og kom
hann á svæðið. Starfsfélagar
mannsins buðu fram aðstoð sína og
komu til aðstoðar og vamarliðið
bauð fram herflokk til landleitar,
sem einnig var þegin. Leitað var all-
an þann dag án árangurs og var hver
fermetri lands skoðaður á stóm
svæði og fjörur gengnar. Þegar leið á
daginn barst tilkynning frá lögregl-
unni í Keflavík um að 5 ára drengs
væri saknað í Ytri-Njarðvík og
sveitimar beðnar um aðstoð þá þeg-
ar. Vom allar leitarsveitir á svæðinu
utan nokkurra manna, þegar send-
ar til leitar í Ytri-Njarðvík og ráð-
stafanir gerðar til að fá sporhund
skátanna aftur suður. Drengur sá er
saknað var hafði farið að heiman frá
sér í Ytri-Njarðvík upp úr hádegi og
síðan ekkert til hans spurst. Var far-
ið að óttast um hann, einkum eftir
að reiðhjól hans fannst á enda hafn-
argarðsins í Njarðvík. Er sporhund-
urinn kom á vettvang, fann hann
strax slóð eftir drenginn og rakti
hana út á hafnargarðinn. Þótti þá
líklegt að drengurinn hefði dottið í
sjóinn og var þá leitinni beint að
fjömm ásamt því að froskmenn fóm
til leitar í sjónum við hafnargarðinn.
Var leitað fram á kvöld án árangurs.
Daginn eftir var hafin leit að fullum
krafti í sjó og á landi. Sömu sögu var
að segja daginn þar á eftir, enginn
árangur og var það ekki fyrr en þar
næsta dag að drengurinn fannst í
sjónum út af hafnargarðinum, lát-
inn. Samhliða þessari miklu leit að
drengnum höfðu flokkar ffá Stakki
og HSSN haldið áffam leit úti á
Reykjanesi að manninum sem þar
var saknað og nokkmm dögum síð-
ar fann flokkur frá HSSN lík
mannsins rekið við tanga þann er
síðast hafði sést til hans á.
Ef til vill gefur frásögn þessi ein-
hverja hugmynd um það hve störf
björgunar og hjálparsveita geta orð-
ið umfangsmikil og tímafrek og hve
mikilsvert það er að sveitir sem
þessar hafi innan sinna vébanda
áhugasama og vel þjálfaða meðlimi
ásamt því að tækjabúnaður þeirra
sé ávallt sem bestur og í fullkomnu
lagi. Þessar tvær björgunaraðgerðir
em einungis tvö dæmi af mörgum
slíkum sem sveitin hefur tekið þátt
á starfsferli sínum og sem betur fer
hafa þær margar orðið til að bjarga
lífi fólks og í flestum tilfellum orðið
árangursríkar. Þá má ekki gleyma
þeim ótalmörgu tilvikum er sveitin
hefur getað aðstoðað fólk vegna
ófærðar og illviðra hér á svæðinu.
Áfram mætti lengi halda og um
margt mætti íjalla, svo sem endur-
nýjun og aukningu á bflakosti sveit-
arinnar, endumýjun hnúsnæðis,
samstarf um almannavamir,
skemmtiferðir, starfsemi kvenna-
deildarinnar sem studdi sveitina
með ráðum og dáð, árshátíðimar
sem em sérkapítuli út af fyrir sig og
svo mætti lengi telja, en um þetta
munu eflaust aðrir fjalla. Læt ég hér
því staðar numið að sinni og nota
þetta tækifæri til að færa Björgunar-
sveitinni STAKKl hugheilar ham-
ingjuóskir á 20 ára afmælinu með
ósk um að gæfa og gróska megi
fylgja starfsemi sveitarinnar um
ókomin ár.
94 FAXI