Faxi - 01.03.1988, Blaðsíða 31
tök fengu ræðumenn úr undirbún-
ingsstjóminni til að kynna gang
mála. Fyrirtæki og sveitastjómir á
Suðumesjum tóku erindi undir-
búningsstjómarinnar fyrir á fund-
um sínum. Þannig fékk starf undir-
búningsstjómar mikla umfjöllun og
athygli.
Stofnfundur var síðan haldin 29.
nóvember 1987 í Glaumbergi,
Keflavík. Tilgangur félagsins var
samþykktur: að kaupa fiskiskip,
gera þau út frá Suðumesjum og
landa afla þeirra þar til sölu. Að
stofnun félagsins stóðu mörg
hundmð einstaklingar, flest sveita-
félög á Suðumesjum, fiskvinnslu-
og útgerðarfélög, ásamt mörgum
fyrirtækjum úr öðmm atvinnu-
greinum og margir velunnarar
Suðumesja-svæðisins annarsstaðar
af landinu.
I fyrstu stjóm félagsins vom kosn-
ir Jón Norðfjöró, framkvæmdastjóri
Skipaafgreiðslu Suðumesja, sem á
fyrsta stjómarfundi tók að sér
stjómarformennsku. Eiríkur
Tómasson, framkvæmdastjóri Þor-
bjöms hf, Grindavík, varaformað-
ur. Viðar Halldórsson, skrifstofu-
stjóri Saltsölunnar hf, Reykjavík,
ritari. Meðstjómendur vom, Sig-
urður Garðarsson, framkvæmda-
stjóri Voga hf, Vogum og Guðmund-
ur Ingvarsson, forstjóri Garðskaga
hf, Garði. Varamenn í stjóm vom
kosnir Birgir Guðnason, málara-
meistari, Keflavík og Sigurbjöm
Bjömsson, fulltrúi hjá Verkalýðs-
og sjómannafélagi Keflavíkur og ná-
grennis, Keflavík. Löggiltur endur-
skoðandi fyrir félagið var kosinn
Endurskoðunarmiðstöðin N.
Mancher hf, Keflavík. Félagslegir
endurskoðendur vom kosnir Logi
Þormóðsson og Karl Njálsson.
Staðan eftir Qóra mánuði
Nú þegar þetta er skrifað fjórum
mánuðum eftir stofnun félagsins
hafa verið keypt tvö hefðbundin
vertíðarskip til félagsins. Eldeyjar-
Boði, GK 24, sem áður hét Boði GK
24, frá Njarðvík og Eldeyjar-Hjalti
KE 42, sem áður hét Vöttur SU 3,
frá Eskifirði. Skipin vom keypt í
janúar og hafa því verið í útgerð hjá
félaginu í rúma tvo mánuði. Fram-
kvæmdastjóri félagsins er Bragi
Ragnarsson, 36 ára Súðvíkingur og
menntaður útgerðartæknir. Verið er
að leggja síðustu hönd á innheimtu
hlutafjár stofnfélaga, en frestur til
að skrifa sig fyrir hlutum í félaginu
er til 1. maí 1988, svo enn er tæki-
færi til að gerast stofnfélagi.
Framgangur fyrirtækis með jafna
stutta sögu og raun ber vitni segir
meira en nokkuð annað um þann
góða hug og skilning sem stofnun
þess hefur mætt. Mörgum atvikum
og aðilum sem vert væri að minnast
Þess/ mynd var tekin á stofnfiindi Eldeyjar, en hann var haldinn í Glaumbergi 29. nóvember 1987.
Upphafsmenn að stofnun Eldeyjar hf. mœttu á fjölda funda til að kynna málið. Hér
er ÍMgi Þormóðsson á fundi þar sem verið var að rœða við sveitastjórnarmenn o.fl.
á, hefur verið sleppt í þessu stutta
ágripi, enda stiklað á helstu atrið-
um er komu í hugan við skriftina.
Margir hafa verið með okkur frá
upphafi, án þess að mikið bæri á.
Auk þingmanna kjördæmisins,
hafa sveitastjómarmenn og ýmis
þjónustufyrirtæki greitt götu félags-
ins með liðveislu og skjótri þjón-
ustu. Tíminn frá því að hugmyndin
um Eldey hf. kom fram og þar til nú
sýnir okkur, svo ekki verður um
villst, að Suðumesjamenn geta lyft
Grettistaki ef þeim sýnist svo.
Eiríkur Tómasson,
Logi Þormóðsson,
Sigurður Garðarsson
Drög að stofnsamningi fyrir Út-
gerðarfélagið Eldey hf.
Undirritaðir, sem hafa ákveðið að
stofna útgerðarfélag á Suðumesj-
um, gemm hér með svohljóðandi
stofnsamning:
1. gr.
Nafn hlutafélagsins er Útgerðarfé-
lagið Eldey hf. Heimili þess og
vamarþing er í Gullbringusýslu.
2. gr.
Tilgangur félagsins er að kaupa
fiskiskip, gera þau út frá Suðumesj-
um og landa afla þeirra þar til sölu.
3. gr.
Hlutafé félagsins skal vera kr.
100.000.000,-, eitthundrað milljón-
ir króna. Einstakir hlutir skulu vera
að fjárhæð kr. 10.000,-, 50.000,-,
250.000,- og 500,000,-.
Heimilt skal að greiða hlutafé með
jöfnum árlegum greiðslum, bundn-
um lánskjaravísitölu í desember
1987 á 5 ámm.
Hluthafar skulu hafa forgangsrétt
að aukningarhlutum í samræmi við
innborgað hlutafé.
4. gr.
Frestur til að skrifa sig fyrir hlutum
í félaginu skal vera til 1. maf 1988.
Stofnfundur félagsins skal hald-
inn fyrir 1. desember 1987.
5. gr.
Hlutabréf í félaginu skulu gefin út
á handhafa. Engar hömlur em lagð-
ar á meðferð hlutabréfa í félaginu.
Engin sérréttindi fylgja neinum
hlutum í félaginu. Hluthafar em
ekki skyldir að þola innlausn á hlut-
um sínum.
6. gr.
Félagið greiðir ekki annan stofn-
kostnað, en lögboðin skráningar-
gjöld og fyrir lögfræðilega aðstoð við
stofnun þess.
7. gr.
Stofnfundur kýs félaginu stjóm og
endurskoðendur ffam til fyrsta að-
alfundar sem haldinn skal á árinu
1988.
Aths. Endanlegum stofnsamningi
munu fylgja drög að samþykktum
fyrir félagið.
Keflavtk, 7.10. 1987
FAXI 119