Faxi - 01.03.1988, Blaðsíða 45
M/b Bára KE 3.
nes frá Sandgerði, var nærstaddur
og kom eftir u.þ.b. tíu mínútur.
Eins og áður sagði kom eldurinn
upp í vélarrúmi bátsins. Magnaðist
hann skjótt og eftir nokkurn tíma
féll stýrishúsið. Læsti eldurinn sig
fram eftir þilfarinu í lest og lúkar.
Enginn fiskur var í lestinni, því línan
lá í sjónum og var ódregin. Að síð-
ustu liðaðist báturinn í sundur og
sökk. Eldsupptök voru ókunn, en
talið að kviknað hafi í út frá raf-
magni.
Á Ingólfi voru þrír menn. Skip-
stjóri var Bragi Björnsson. Þar var
stjúpsonur hans, Guðni Sigurðs-
son, og Friðrik Sigurðsson, vél-
stjóri. Þeirvoru fráSandgerði. Það-
an var báturinn gerður út þó skrá-
settur væri í Keflavík. Árið 1960'
keyptu Ingólf nokkrir Sandgerðing-
ar og mynduðu hlutafélagið Ál, sem
var skráður eigandi.
Stafnesið lónaði umhverfis Ingólf
i u.þ.b. klst., en þurfti þá að draga
línu sína. Um kl. tiu kom varðskipið
Óðinn að bátnum. Var hann þá mik-
ið brunninn. Þó sprautuðu varð-
skipsmenn miklum sjó á eldinn. En
lengi logaði í Ingólfi. Sökk hann
ekki fyrr en um kl. 3.15 siðdegis.
Varðskipið Sæbjörg var þá í nám-
unda við bátinn.
Ingólfur var eikarbátur, smíðaður
í Danmörku 1918. Lengst af gerður
út frá Sangerði og Keflavik. Bragi
Björnsson, skipstjóri, var einn af
eigendum bátsins. Hann hafði verið
skipstjóri á honum i fimm ár.
(Fréttir um brunann eru í öllum dag-
blöðunum 5. febr. 1965).
V.b. Máni brennur
og sekkur
Um kl. eitt, aðfaranótt föstudags-
ins 14. maf 1965, er v.b. Máni KE
94, var staddur inn á Stapavík, kom
upp eldur i bátnum. Tveir menn voru
um borð: Svavar Ingibersson,
skipstjóri, og Marteinn Jónsson,
báðir Keflvíkingar. Voru þeir eig-
endur bátsins. Reyndu þeir að
hefta eldinn, en án árangurs. Eldur-
inn kom upp í vélarrúmi. Gripu þeir
þá til gúmbátsins, en treystu sér
ekki til að fara í hann vegna þess
hve hann var í lélegu ástandi. Gátu
þeir komið brennandi bátnum nær
landi og settu gúmbátinn þar út. Var
það við Látur, rétt fyrir neðan bæinn
Litlu-Hnausa.
Menn í Breiðuvík sáu reyk frá
Mána, héldu á staðinn, og aðstoð-
uðu tvímenningana. En allt kom fyr-
ir ekki og brann Máni og sökk þarna
á víkinni. Um nóttina gistu Svavar
og Marteinn á bænum Ytri-Tungu.
Vélbáturinn Máni var tólf lesta
eikarbátur, umbyggður í Njarðvík
1962. Hann var með 87 hestafla
BJORGUNARSVEITIN
STAKKUR
Til hamingju með 20 ára afmælið
og kærar þakkir fyrir
gott samstarf á liðnum árum
BÆJARFÓGETINN I KEFLAVÍK,
LÖGREGLAN I KEFLAVÍK
FAXI 133