Faxi - 01.03.1988, Blaðsíða 27
STAKKSMENN ERL
SAMSTILLTLR HÓPUR
MÆFILEIKAEÓLKS
Það var áhugasamur hópur
manna er kom saman í skátahúsinu
í Keflavík þann 28. apríl 1968. Þó
áhugamálið sem þjappaði mönnum
saman til fundar væri eitt og hið
sama má hins vegar segja að hópur-
inn hafi verið ákaflega fjölbreyttur.
T.d. voru þama lögreglumenn, sjó-
menn, iðnaðarmenn, verslunar-
menn, verkamenn, nemar, slökkvi-
liðsmenn, verkstjórar, ljósmyndari
(konunglegur), forstjórar, ritstjórar,
skrifstofumenn, skátar og fleiri og
fleiri.
Ur þessum hópi varð svo til Björg-
unarsveitin Stakkur.
Eg undirritaður var einn í þessum
hópi. Var nú hafist handa, því mörg
vora verkefnin framundan. Ymis-
legt gekk nú á fyrst í stað, enda held
ég að enginn okkar hafi haft nokkra
reynslu af björgunarstörfum. En við
áttum víða hauka í homi því allir
voru boðnir og búnir við að aðstoða
okkur og fræða. Þar á meðal var
Slysavamafélag íslands, Hjálpar-
sveit skáta og Flugbjörgunarsveitin.
Fljótlega kom í ljós að þessi bland-
aði hópur var orðin einstaklega
samhent björgunarsveit. Allir vom
sem einn í uppbyggingu sveitarinn-
ar og hreint ótrúlegt hvað menn
lögðu á sig við sköpun hennar.
Einnig ber að þakka bæjarsjóði
Keflavíkur og sveitarsjóði Njarð-
víkurhrepps fyrir góða aðstoð, svo
og fyrirtækjum og einstaklingum,
sem sýndu sveitinni velvilja.
Næstu árin óx sveitin ört og dafn-
aði undir formennsku Garðars Sig-
urðssonar. Tfel ég ekki á neinn hall-
að þó ég fullyrði að Garðar hafi verið
aðalburðarás sveitarinnar alla sína
formannstíð, sem var 9 fyrstu árin.
Þær em margar minningamar,
sem koma upp í huga minn þegar ég
lít nú til baka yfir 20 ára feril sveit-
arinnar. Sérstaklega verða þær þó
áleitnastar minningamar frá fyrstu
ámnum, eins og t.d. ferð sem farin
var út á Reykjanes. Þar skyldi æfa
meðferð fluglínutækja o.fl., jafnvel
Karl G. Sœvar.
bjargsig. Þama sem jafnan áður
kom betur og betur í ljós að í sveit-
inni vom kunnáttu og hæfileika-
menn, hver á sínu sviði, en hæfi-
leikamir komu ekki upp á yfirborð-
ið nema við ákveðnar aðstæður og
vom þeir þá ótrúlega fjölbreytilegir.
Einmitt á þessari æfingu hafði kom-
ið til tals að kanna getu manna í
bjargsigi og viti menn, einn sérfræð-
ingur var í hópnum. Það var Her-
bert Amason. Var nú útbúinn vaður
og kannað hugrekki manna við að
síga í björg. Minnir mig að við höf-
um byrjað í gjánni út við Sandvík og
síðar í Hafnabergi og Reykjanesi.
Allir vom skikkaðir til að síga í
gjána og það furðulegasta var að
enginn lét sinn hlut eftir liggja í því
efni, burtséð frá því hvort menn
vom lofthræddir eða ekki. En við
þetta urðum við, sem einstaklingar
og samstillt sveit, reynslunni ríkari.
Seinna átti þessi kunnátta eftir að
koma okkur vel.
í því sambandi minnist ég t.d.
samæfingar nokkurra sveita, sem
haldin var í Saltvík og vomm við þar
þátttakendur. Þama var m.a. áætl-
að klifur og sig í björgum með slas-
aðan mann í bömm. Við Stakks-
menn tókum að okkur þetta verk-
f
efni og tókst það allt stórslysalaust
og engum varð meint af, nema ef til
vill þeim ,,slasaða“ sem í bömnum
var. Ég held að hann hafi verið
nokkra daga að jafna sig.
Ýmiss konar fjáraflanir hefur
Stakkur haft í gegnum árin. í því til-
efni má nefna sjúkrapokasölu, flug-
eldasölu, auk þess sem staðið hefur
verið fyrir torfæmaksturskeppnum
o.fl.
Einni svolítið sérstakri fjáröflun
man ég eftir. Þannig var að halda
átti útisamkomu vestur í Vatnsfirði
um verslunarmannahelgi. í þessu
tilfelli tók Stakkur að sér heilsu- og
sjúkragæslu og að mig minnir
öryggisgæslu líka.
Allstór hópur Stakksfélaga fór
vestur, sumir með maka og böm. Úr
þessu varð bráðskemmtileg og eftir-
minnileg ferð, en því miður er hún
nú glötuð dagbókin, sem haldin var
á meðan mótið stóð yfir. í dagbók-
ina vom skráð öll tilfelli, sem komu
til kasta þeirra er í sjúkratjaldinu
störfuðu. Sem betur fer komu ekki
fyrir nein alvarleg tilfelli, en mörg
allspaugileg. í einstaka tilfelli
reyndi á lækniskunnáttu Stakksfé-
laga, sem brást ekki ffemur en flest
annað, þegar á hefur reynt.
Björgunarsveitarstarfið hefur
skapað með félögum trausta vináttu
sem eflir og styrkir tryggðabönd.
Ekki síst þess vegna lítum við
stofnfélagamir ávallt á okkur sem
sanna Stakksmenn, þó þungi
starfsins hvíli nú á yngri mönnum.
Kannski hefur það svolítið nagað
mig og sjálfsagt fleiri að hafa fjar-
lægst ungu mennina eins mikið og
raun hefur á orðið.
Á hinn bóginn má segja með sanni
að styrkur 20 ára bjöigunarsveitar
fellst ekki hvað síst í því að í sveitina
komi ungir menn til að halda uppi
merkinu.
Nú á tímamótum þakka ég
Stakksfélögum holl og góð kynni
um leið og ég áma björgunarsveit-
inni okkar alls velfamaðar. — Einu
sinni Stakksmaður alltaf Stakks-
maður.
Karl G. Sœvar
STAKKUR 20 ÁRA
Við óskum
öllum
Suðwmjabúum
im sumars
Útvegsbanki íslands hf.
HAFNARGÖTU 60 KEFLAVÍK
FAXI 115