Frjáls verslun - 01.02.2002, Blaðsíða 90
Sérblað um Þýskaland
Þorvarður Guðlaugsson, forstöðumaður sölustjórnar Flugleiða á ís-
landi: „Fótboltaferðirnar eru uþþlagðar jýrir hjón oghóþa. Boðið eruþþ
á skoðunarferðir oggóða fararstjórn sem gerir að verkum að fríið verð-
ur notalegt og gott. “
„Við stílum á helgarleiki í Miinchen, Stutt-
gart og Kaiserslautern og reynum að velja
leikina vel. Leikirnir eru allir á laugardögum
en flogið er út á fimmtudegi og heim á
sunnudegi/' segir Þorvarður Guðlaugsson.
meira,“ bætir hann svo við og brosir út í annað. „Við stílum á
helgarleiki í Miinchen, Stuttgart og Kaiserslautern og reynum að
velja leikina vel. Leikirnir eru allir á laugardögum en flogið er út
á fimmtudegi og heim á sunnudegi." Það er auðvelt að láta sér
liða vel í Þýskalandi. Stutt er í fallega staði frá Frankfurt og
Miinchen og má nefna Heidelberg sem er eins og klippt út úr
ævintýri, Freiburg og Baden Baden, Bæjaraland og Svörtuskóga.
Að vetrinum er hægt að bregða sér á skíði í leiðinni því stutt er í
skemmtilega skíðastaði og vinsmökkun er víða á þessu svæði.
Kaiserstuhl er í nágrenni Freiburg og Furstenberg-bjórgerðin
líka en á báðum stöðum er mikil vingerð og íjölbreytt og sérlega
gaman að skoða sig um. I þorpinu Reindierbach, þar sem
Furstenberg-bjórgerðin er, eru einnig upptök Dónár í fallegum
garði furstasetursins í göngufæri við bjórgerðina. „Flug og bíll
hefur orðið æ vinsæfla í Evrópu og ekki síst í Þýskalandi,“ segir
Þorvarður. „Sé til að mynda flogið til Frankfurt, en þangað er
flogið allt árið, er stutt til Frakklands, Hollands, Belgíu, Sviss og
svo auðvitað um allt Þýskaland þar sem fljótlegt er að aka um
hraðbrautir hvert sem farið er. Sýningar eru margar í Þýskalandi
og oft gott að sameina ferð á sýningu og skemmtiferð. Upplýs-
ingar um sýningar er að finna á Netinu og auðvelt að nálgast þær
og svo getur sölufólk okkar verið innan handar við það.“
Með fótboltann í
farteskinu
Sérferðir af ýmsu tagi njóta mikilla vinsælda hjá hópum, bæði
stórum og smáum. Saumaklúbbar skreppa í helgarferðir
sem eru sérstaklega samsettar iýrir þá. Starfsmannafélög
halda árshátíðir erlendis og golfáhugamenn flykkjast á erlenda
golfvelli þar sem veðrið er notalegt og lífið ljúft. Flugleiðir hafa í
vetur boðið upp á fótboltaferðir til Þýskalands með fararstjórn
þekktra fótboltakappa á borð við Atla Eðvaldsson, Asgeir Sigur-
vinsson, Lárus Guðmundsson og Pétur Ormslev sem aflir gera
sitt tíl að kynda undir áhuga og ánægju þeirra sem með fara.
Upptöh Dónár „Þessar ferðir eru reyndar ekki bara fótbolta-
ferðir," segir Þorvarður Guðlaugsson, forstöðumaður sölu-
stjórnar Flugleiða á Islandi. „Við bjóðum upp á skoðunarferðir,
vínsmökkun og verslunarferðir þannig að þetta er upplagt fyrir
hjón sem vilja breyta tíl. Fótboltínn sem slíkur tekur auðvitað
ekki nema einhveija tvo tíma eða svo - eða kannski aðeins
Einfalt að fá gistingu Þeir sem ekki vilja gista á hótelum eiga
auðvelt með að finna sér gistingu. Hvarvetna er að finna Gaste-
haus eða gistíhús sem bjóða hrein herbergi og frábæran morg-
unmat iyrir lítið fé. Yfirleitt þarf ekki að panta með fýrirvara og
þegar komið er inn í bæina er oft tafla sem sýnir staðsetningu
þeirra og hvort laust er rúm eða ekki. Mjög er mismunandi
hvort sjónvarp fylgir en alltaf er aðgangur að snyrtingu, þó
ekki alltaf inni í herbergjum en verðið endurspeglar þjónust-
una. „Við höfum gert samninga við þýsku lestirnar - Deutsche
Bahn - og getur fólk nú keypt sér miða í lestír um leið og það
kaupir farmiðann,“ segir Þorvarður. „Það einfaldar mjög
tilveruna ef fólk er með það á hreinu hvert það ætlar að fara og
þá veit það líka heildarkostnað ferðarinnar. Á Netínu er hægt
að sjá kostnaðinn við lestarferðirnar en þess ber að gæta að oft
er hægt að ferðast mjög hagstætt, til dæmis um helgar og ef
fleiri ferðast saman í hóp.“ S9
90