Frjáls verslun - 01.02.2002, Blaðsíða 37
Ragnar Onundarson, forstjóri Europay Islandi, Gísli Guðmundsson, forstjóri B&L, Hreggviður Jónsson, þá-
verandi forstjóri Norðurljósa, og Einar Benediktsson, forstjóri Olís, undirrita samninga um kostun vegna
HM. Á fótbolta. Hvað annað?
við ætlum að „tækla“ þetta á
fjórum mánuðum,“ segir
Hermann.
Þrenns konar fjármögnun
Ekkert hefur verið gefið
upp um samningsupp-
hæðina vegna HM-réttarins
en Hermann segir að í
fyrstu samningaviðræð-
unum hafi Kirch Media
krafist 3 milljóna dollara,
eða um 300 milljóna króna.
„Það þurfti að benda þeim á
að við værum bara þorp
norður í Atlantshafi," segir
hann. Samkvæmt áreiðan-
legum heimildum Frjálsrar
verslunar má búast við að
HM-útsendingarrétturinn
hafi kostað Norðurljós 85-
90 milljónir króna. Þar af fara um 25 milljónir í gervihnatta-
kostnað og er um flata upphæð að ræða, öll fyrirtækin greiða
sömu upphæðina hvar sem þau eru i heiminum. Rétturinn að
keppninni í Þýskalandi 2006 er dýrari en að keppninni 2002
enda verður hún sýnd á besta sjónvarpstíma. Gróflega áætlað
má búast við að sýningarrétturinn á HM 2002 geti kostað
Norðurljós samtals um 40 milljónir króna, sem á að greiða i
sumar, og HM 2006 þá um 45-50 milljónir. Við bætist svo
markaðskostnaður og framleiðslukostnaður ýmiss konar.
Margir hljóta að spyrja sig þess hvernig HM-veislan verði
fjármögnuð. Meginijármögnunin felst í kostun og segir
Hermann að þeir hafi sjálfir séð um að fá fyrirtæki í kostunina,
hann og Hreggviður. Áhugi hafi reynst mikill og fljótlega hafi
tekist samningar við fiögur fyrirtæki; KPMG, Europay, B&L
og Olis enda féll HM-kostunin ágætlega að kynningaráformum
þessara fyrirtækja. „Þetta þýðir ekki aukinn auglýsingakostnað
fyrir félagið en birtingarnar fara í auknum mæli á þessar tvær
stöðvar, Sýn og Stöð 2. Þetta er mjög hagstæður samningur.
Við fáum mikið fyrir peningana og gripum því boltann á lofti
sama dag og tilboðið kom,“ segir Thomas Möller, fram-
kvæmdastjóri hjá Olís. Ekkert er gefið upp um það hve háa
Jjárhæð fyrirtækin reiða af hendi hvert um sig en Hermann
segir þó að þar sé um hærri tölur að ræða en áður hafi þekkst
í kostun á íslandi, nema ef til vill í tengslum við þriggja ára
kostunarsamninga vegna ensku knattspyrnunnar. Samkvæmt
heimildum Fnálsrar verslunar má gera ráð fyrir um 6 milljón-
um króna frá hverju fyrirtæki og eru hugsanlega einhveijar
auglýsingabirtingar inni í þeirri tölu.
Velvild og bætt ímynd Til að auka tekjurnar ætla Norðurljós
að gera átak í auglýsingasölu og er þegar hafin sala á auglýs-
ingapökkum, sem kosta um 3 milljónir króna hver. Innifalið í
þessum pökkum eru auglýsingar í kringum keppnina, hvort
sem það eru beinar útsendingar, þáttaraðir eða endursýningar.
I hverjum pakka eru hátt í 200 birtingar, frumsýningar og
endursýningar, eða um 100 mínútur samtals. Salan á þessum
pökkum hefur gengið samkvæmt áætlun þó að sjónvarpsáhorf
sé kannski ekki upp á sitt besta fyrir hádegi á virkum dögum
og því útsendingartíminn óhagstæður, auk þess sem SAU,
Samtök auglýsingastofa, hefur varað auglýsendur við því að
ekkert sé vitað um það hvert áhorfið verður og ekki sé gert
ráð fyrir að það verði mælt af óháðum aðila. En auðvitað er
dýrmætt fyrir auglýsendur og ekki síður kostunaraðila að
græða velvild og bætta ímynd með því að gera boltaunnendum
kleift að fylgjast með HM í beinni.
í þriðja lagi er svo stefnt að því að ijölga verulega áskrif-
endum að Stöð 2 og Sýn og halda þeim betur yfir sumarið en
alltaf hefur verið nokkuð um að áskrifendur neiti sér um
áskriftina á sumrin. AskrifendaJjöldi Norðurljósa náði hámarki
árið 2000 þegar áskrifendur voru 24 þúsund heimili. í dag eru
áskrifendur um 23 þúsund og er stefnt að því að setja nýtt met
og Jjölga áskrifendum um að minnsta kosti 1.000. Mánaðar-
áskrift að sjónvarpsstöðvunum tveimur kostar 6.250 krónur
svo að tekjuaukningin þar getur hæglega numið allt frá 10
milljónum króna og upp í 24 milljónir ef vel tekst til og 1.000
heimila áskrifendaaukning helst í Jjóra mánuði. Tekið er fram
að hér er einungis um grófar áætlanir Fijálsrar verslunar að
ræða.
Hefta Okhur ekki Sagt er að sérstakt félag hafi verið stofnað
til að semja við Kirch Media þar sem Norðurljós sé í kyrrstöðu-
samningum og félagið hafi ekki mátt semja sjálft. Þegar þetta
var borið undir Hermann Hermannsson, framkvæmdastjóra
sjónvarpssviðs, sagði hann að kyrrstöðusamningarnir ættu
eingöngu við helstu lánardrottna Norðurljósa. „Kyrrstöðu-
samningarnir hafa engin áhrif á daglegan rekstur félagsins.
Þeir hefta okkur ekki á neinn hátt. Við erum í viðskiptum og
kaupum það sem við teljum að við getum breytt í peninga. Ef
við teldum okkur tapa stórum Jjárhæðum á þessu þá hefðum
við ekki gert þetta.“
- Samkvæmt nýlegu tölublaði Business Week er talið að Kirch
Media sé á leiðinni í gjaldþrot.
„Eg hef enga trú á að fyrirtækið verði gjaldþrota í ár. Ef eitt-
hvað slíkt gerist þá fara réttindin til Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins, FIFA sem verður þá okkar samningsaðili, ekki
Kirch. Það skiptir okkur engu máli og myndi ekki hafa nein
áhrif á HM-útsendinguna.“ 5D
37