Frjáls verslun - 01.02.2002, Blaðsíða 25
/s
Sagt um Jón
• „Jón er góður stjórnandi. Hann hefur
byggt upp fyrirtækið og rekið það vel, séð
réttu móguleikana og beitt sér þar sem
réttu markaðirnir eru. Þeir eru annars
staðar en margir myndu haida, ekki á
stríðshrjáðum svæðum heldur í velmegun
Vesturlanda þar sem menn borða á sig syk-
ursýki og aðra velmegunarsjúkdóma. Þar
hafa menn efnin. Ég held að Jón hafi rekið
fyrirtækið mjóg vel."
• „Það er mikið afrek að koma upp stór-
veldi á heimsvísu í lækningatækjum. Jón
hefur sótt út og gert sig gildandi á alþjóða-
markaði. Það virðist ætla að ganga upp.
Eitt er að leggja af stað, annað er að kom-
ast í höfn eins og þeir tveir, hann og Kári,
virðast ætla að gera. Það er ekkert erfitt að
fara út í heim og eyða peningum en að láta
það ganga upp, það er alltaf erfitt. “
• „Ússur hefur náð miklum vexti en fyrir-
tækinu hefur líka tekist að halda uppi hagn-
aði. Þegar mörg fyrirtæki eru keypt og
sameinuð þá fá menn oft timburmenn sem
lýsa sér í því að erfiðlega gengur að vinna
úr kaupunum og samrunanum. Jóni hefur
tekist það. Hann hefur hvorki misst niður
sö'lu né framlegð. Hann vinnur í öðru
umhverfi en við þekkjum hér heima því að
það er allt annað að reka fyrirtæki á íslandi
við íslenskar aðstæður en fyrirtæki sem er
að kljást við aðrar aðstæður erlendis. Mér
finnst hann hafa náð miklum árangri. Hann
kom á sínum tíma inn í einkafyrirtæki í
ákveðnum sárum og leiddi fyrirtækið í
gegnum það, fékk inn áhugaverða stjórnar-
menn og náði að vinna sig í gegnum for-
tíðina, eignarumhverfið og á nýjan markað.
Hann fór í gegnum umtalsverða stækkun á
fyrirtækinu og rekstrinum og hefur haldið
vel utan um þessa þróun."
„Ég ætlaði alltaf að ná á toppinn þó að ég gerði
mér ekki grein fyrir því þá. Ég sé núna að ég var
tilbúinn til að leggja mikið á mig fyrir starfið og
einkalífið hefur borið keim af því. Öllu hefur alltaf
verið fórnað fyrir starfið,“ segir Jón Sigurðsson.
- Hvernig skapar maður svona fyrirtækjamenningu?
„Með því að marka ákveðna stefnu, skrifa hana niður og gera
öllum ljóst hvert hlutverk fyrirtækisins er og hvaða gildi séu
við lýði í fyrirtækinu. Þetta er það sama og gerist í menningu
þjóðríkja. Menning þjóðríkja er miklum breytingum háð og
það verður sífellt að halda henni við. Hún er stöðugt að breyt-
ast og þróast og á að gera það. Það sama gerist hjá fyrirtækj-
um. Menningin breytist og þróast með tilliti til stefnumörkun-
ar fyrirtækisins sjálfs.“
- Hvernig er fyrirmyndarstjórnandi?
„í fyrsta lagi er leiðin grýtt og maður þarf að vilja þetta mjög
mikið, mann þarf að langa mikið til að komast á toppinn og
vera reiðubúinn að láta allt annað víkja. í öðru lagi þarf maður
að hafa breiðan bakgrunn, ekki vera sérfræðingur á þröngu
sviði heldur vita lítið um nánast allt. I mínu tilviki hefur
„Ég var í tvö sumur í Heysholti í Landssveit. Par svaf ég í bað-
stofu og atvinnuhættir voru ákaflega fornir. Pegar ég var 12
ára gamall man ég eftir því að við vorum eitt sinn að slá með
orfi og Ijá. Það var erfið vinna. Ég fékk orf og Ijá og var látinn
slá þó að ekki væru gerðar miklar kröfur um afköst. Ég var
alltaf að kvarta yfir mínum „græjum" og man eftir því að
bóndinn skipti umorðalaust við mig á „græjum". Ég man að
hann sló og sló með mínum „græjum" en ég réð náttúrulega
ekkert við hans. Ég þrjóskaðist við og lærði mikið á þessu, t.d.
það að maður gerir það sem manni er sagt og á ekkert að
mögla. Maður verður bara að klóra sig út úr verkefnunum."
1. sæti Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, er athyglisverðasti for-
stjórinn að mati 40 forstjóra helstu fyrirtœkjanna í landinu. Um hann
er sagt: „Þegar mörg Jýrirtæki eru keyþt og sameinuð þá fá menn oft
timburmenn sem lýsa sér í því að erfiðlega gengur að vinna úr kauþ-
unum og samrunanum. Jóni hefur tekist það. “
menntun mín hjálpað til því að ég hef bæði viðskiptamenntun
og tæknimenntun. í þriðja lagi þarf maður að geta umgengist
fólk. Manni má ekki líða illa innan um annað fólk því að
stjórnun er eðlilega meira eða minna samskipti við fólk. Það
er ekki þannig að menn fæðist inn í þetta hlutverk. Eg hef þá
trú að flestir geti þetta,“ svarar hann.
- Margir segja að eitt sé að eyða peningum, annað að kom-
ast í höfn.
„Eg er sammála þessu. Við keyptum fyrirtæki fyrir tæpa 13
milljarða árið 2000 og ég er stoltastur af því að hafa skilað
árangri árið 2001 því að það er það sem skiptir máli, ekki það
að hafa keypt öll þessi fyrirtæki. Það geta allir eytt pening-
um,“ segir hann og telur árangur fyrirtækisins byggjast m.a.
á því að stefna fýrirtækisins hafi alltaf verið ljós auk þess
sem samstarfið innan fýrirtækisins og stjórnarinnar sé mjög
gott. „Þetta gerist ekki nema með því að það sé gagnkvæmt
traust á milli manna.“ B!1
25