Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2002, Blaðsíða 80

Frjáls verslun - 01.02.2002, Blaðsíða 80
Borgmeister (bæjarstjórinn) í Stupferich sem er úthverfi í Karlsruhe fær sérfyrsta bjórinn á götuhátíð ásamt kollegum sínum úr nœstu hverfum. Myndir: Vigdís Stefánsdóttir. Þýskaland með Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Sumir elska Frakkland. Aðrir elska Spán eða Mexíkó eða jafnvel Austurlönd og allt þar á milli. Mér leið eins og ég væri komin heim eftir langt ferðalag þegar ég kom fyrst til Þýskalands. Þetta var skrítin tilflnning og kannski enn skrítnari fyrir það að alla ævina fram til þess hafði ég þráð að heimsækja þetta land, sjá með eigin augum alla kastalana, sólblómin, útihá- tíðirnar og skemmtilegu gömlu steinhúsin með trérömmunum. Allt þetta og miklu meira fann ég í Þýskalandi. Baharí 09 apótek Flestir kannast við Köln og Hannover, tvær ólíkar stórborgir í norðurhluta landsins. í gegn um Köln rennur Rín og yfir hana eru margar brýr. Sumar ótrúlega fallegar, eldgamlar og anda frá sér sögu. Aðrar bara venjulegar brýr sem skila sínu og enginn tekur eftir. Dómkirkjuna í Köln þarf varla að kynna. Hún stendur í miðborginni - auðvitað eins og góðum dómkirkjum sæmir. í kring um hana liggja gamlar götur sem margar hveijar eru göngugötur. Þar er að finna vinaleg lítil kaffihús eða bakarí sem bjóða þvílíkt úrval af brauðum og kökum að manni stendur ekki á sama. Og kemur mörgum kílóum þyngri heim fyrir vikið. Reyndar er það tvennt sem er áberandi allsstaðar í Þýskalandi. Það er annars vegar Jjöldi bakaría og hins vegar apótekin sem eru bókstaflega allsstaðar. Mjög er mismunandi hvað selt er í apótekunum og sum þeirra sérhæfa sig í náttúrulyijum á meðan önnur eru algerlega sótthreinsuð og bjóða eingöngu hávísinda- lega innpökkuð lyf sem afgreidd eru af starfsfólki í hvitum sloppum með alvarlegan andlitssvip. Enda ekkert gamanmál að selja kannski rangt lyf og eiga þar með á hættu að viðkomandi veikist. Það er algengt að íbúar í Köln vinni í Bonn og öfugt. Um það bil 20 mínútur tekur að komast á milli sé farið í hraðlest en það getur tekið allt að klukkustund ef farið er í lest sem stoppar á öllum stöðvum. Þvi eru lestirnar á milli oft þétt setnar fólki sem er að fara í vinnu eða úr og jafnvel skólakrökkum sem eru í skóla á öðrum hvorum staðnum en búa annars staðar. Þar sem allir eru jafnir Borgin Bielefeld, sem liggur miðja vegu milli Hannover og Köln, lætur ekki mikið yfir sér. Enda er svo sem ekkert sérstakt við hana annað en að þetta er borg í norðurhluta Þýskalands, borg sem er á stærð við Reykjavík og býður upp á margskonar afþreyingu. Þó er eitt þar sem hvergi annars staðar finnst. Það er útborgin eða úthverfið Bethel sem byggir á rúmlega 100 ára gamalli hugsjón aðalsmannsins von Bodelschwing. Sá mæti maður sá fyrir sér stað þar sem allir væru jafnir, öllum væri gert kleift að búa og vinna og síðast en ekki síst, þeim sem sjúkir væru og vanmáttugir ættu sér þar hæli. Hann bað, sníkti og kvartaði ásamt því að leggja sjálfur til fé þar til draumurínn rættist. Bethel varð til á landsvæði sem er hæðótt, fullt af trjám og liggur upp af miðborg Bielefeld. Er raunar í göngufjarlægð frá miðborginni. í Bethel eru allir jafnir. Það er svo einfalt. Þar er algengast að sjá saman fatlaða og heil- brigða og allir hafa möguleika og eru raunar skyldugir til að leggja sitt til samfélagsins. Vinna í bakaríinu, búa til snæri, afgreiða í búðinni sem selur notaða hluti eða aðstoða slátrar- ann. Þeir sem ekkert geta annað en verið til vegna mikillar fötlunar, eru það bara. Og um þá hugsar fólk sem veit og skilur að maður er alltaf maður. Þó hann geti sig hvergi hreyft og jafn- vel ekki gert sig skiljanlegan. Nú er í Bethel miðstöð rannsókna og lækninga flogaveikra og læknar og hjúkrunarfólk kemur allsstaðar að til að taka þátt í þessu ævintýri. Það var frábær upplifun og raunar ein af dýrmætari minn- ingum mínum frá Þýskalandi að hafa fengið að taka þátt í Haus- fest, hátíð sem haldin var í einu sambýlishúsanna þar sem búa um 300 manns, 2/3 af þeim fatlaðir á einn eða annan veg. Og finna hvað allir skemmtu sér vel - frá minnstu börnunum til elstu karlanna. 80
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.