Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2002, Blaðsíða 44

Frjáls verslun - 01.02.2002, Blaðsíða 44
NÆRMYND HREINN LOFTSSON Hreinn tók þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík árið 1990 en náði ekki miklum árangri. Síðustu árin hefur áhugi hans einkum beinst að einkavæðingu ríkisfyrirtækja. Hefur hann litið á vinnu sína í þeim efnum sem sitt pólitíska framlag til þjóðfélagsþróunarinnar. kvæmur, skipulagður í hugsun og vinnu og gengur rösklega til verks þegar hann tekur eitthvað að sér en verður að hafa mikinn áhuga til að setja kraft í málið. Hann er nákvæmur og hefur ákveðnar skoðanir, sérstaklega á stjórnmálum, og er þar mikill og vinnusamur hugsjónamaður. Hann vinnur mikið, yfirleitt langt fram á kvöld og um helgar. A yngri árum var hann mjög feiminn maður, svo feiminn að segja má að það hafi háð honum framan af ævi, en í dag honum lýst sem dulum manni. Hann er maður sem er frekar innhverfur en úthverfur, - maður sem vill vinna sín verk hávaðalaust en vílar ekki íyrir sér að standa í pólitísku hávaðaroki ef málin þróast þannig. Metnaðargjarn er hann án þess þó að ætla sér sér- stakan frama í stjórnmálum annan en þegar er. Hann hefur mikinn fræðilegan áhuga og hefur unnið af krafti að sínum hugmyndum í stjórnmálunum, þá fyrst og fremst einkavæð- ingu ríkisíyrirtækja, með miklum árangri. Hreini verður ekki auðveldlega snúið með rökræðum en hann kann þó að taka rökum. Hann er afar áreiðanlegur, segja þeir sem til hans þekkja. Arni Sigfússon, bæjarstjóraefni sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ, er einn af æskuvinum Hreins úr Vestmanna- eyjum. Hann segir að allt sem Hreinn segi standist og því sé honum treyst fyrir mörgum mikilvægum verkefnum. Hreinn er ijölskyldukær maður og ijölskylda hans er mjög samheldin og góð. Magnús, bróðir hans, segir að Hreinn sé opinn gagn- vart þeim sem hann þekkir, en það taki nokkurn tíma að komast inn fyrir skelina. Þegar þangað sé komið sýni hann á sér nýjar hliðar, húmor og skemmtilegheit. „Eg hef heyrt að hann sé skemmtilegur í góðra vina hópi og haldi iýndnar Fæðinyardagur: 12. janúar 1956. Foreldrar: Loftur Magnússon kaupmaður og Aðalheiður Steina Guð- jónsdóttir Scheving hjúkrunai'ffamkvæmdastjóri. Fjölskylda: Kvæntur Ingibjörgu Kjartansdóttur, meinatækni og heild- sala. Þau eiga þijú börn, Ernu, Loft og Kjartan. Menntun: Stúdentspróf ifá MH. Cand. juris. frá Háskóla íslands 1983. Framhaldsnám í réttarheimspeki við University of Oxford 1984-1985. Ferill: Blaðamaður á Vísi og Morgunblaðinu með námi og á sumrin. Deildarstjóri í viðskiptaráðuneytinu 1983-1984. Aðstoðarmaður við- skiptaráðherra frá júní til október 1985, aðstoðarmaður utanríkisráð- herra Jfá janúar 1986 til júlí 1987 og aðstoðarmaður samgönguráð- herra 1987-1988. Rak eigin lögmannsstofu 1988-1989. Hefur síðan starfað á lögmannsstofunni, Höfðabakka 9, að undanskildu rúmu ári 1991-1992 þegar hann var aðstoðarmaður forsætisráðherra. Stofnaði nýja lögmannsstofu á sama stað í ársbyijun 2000. Áhugamál: Stjórnmál og þá sérstaklega einkavæðing ríkisiýrirtækja, bækur, líkamsrækt og veiðiskapur. við framhaldsnám í réttarheimspeki við Oxford háskóla í Bretlandi 1984-1985. Hann hlaut réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi 1988 og fýrir Hæstarétti 1993. Ferill Hreinn var blaðamaður á Vísi og Morgunblaðinu með námi og sumarið 1983 og hafði þá m.a. skrifað bókina Valdatafl í Valhöll, sem vakti mikla athygli því að hún ljallaði um átökin milli Gunnars Thoroddsens og Geirs Hallgríms- sonar í Sjálfstæðisflokknum. Hreinn var deildarstjóri í viðskiptaráðuneytinu í rúmt ár frá haustinu 1983. Hann var nokkrum sinnum aðstoðarmaður ráðherra, iýrst aðstoðar- maður viðskiptaráðherra frá júní til október 1985, svo utan- ríkisráðherra frá janúar 1986 til júlí 1987 og loks var hann aðstoðarmaður samgönguráðherra í rúmt ár frá júlí 1987. Hreinn rak eigin lögmannsstofu í Reykjavík frá október 1988 til desember 1989 að hann gerðist meðeigandi lögmannsstof- unnar að Höfðabakka 9. Hann hefur starfað þar síðan ef undan er skilið tímabilið frá júní 1991 til september 1992 þegar hann starfaði sem aðstoðarmaður forsætisráðherra. Hreinn stofnaði nýja lögmannsstofu á sama stað í ársbyrjun 2000. Sem lögmaður hefur hann sérhæft sig í störfum fyrir fyrirtæki, þ. á m. Landsvirkjun, Vífilfell o.fl., en einnig verið með nokkurn málflutning þó að úr því hafi dregið hin síðari ár. Persúna Hreinn er sam- viskusamur, greindur og vel lesinn, tryggur, greið- vikinn, sjálfum sér sam- Nafn: Hreinn Loftsson. 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.