Frjáls verslun - 01.02.2002, Blaðsíða 104
LE SOMMELIER - KflUPIVIflNNflHÖFN ■ REYKJflVÍK
Eigendur Le Sommelier í Kauþmannahöfn, Erik Gemel, Jesþer Boel-
skifte og Francis Cardenau.
arinn franskur að nafni Francis Cardenau. Matreiðslan var ein-
föld og hráefhið fékk að njóta sín til fullnustu. Sósurnar voru
léttar og bragðmiklar, það sem einkenndi réttina var hversu
bragðgóðir þeir voru, miklu fremur en hversu fagurlega
skrejdtir diskarnir voru. Matreiðslan var suður-frönsk eða hið
nýja Miðjarðarhafseldhús sem margir vilja kalla eldhús nútím-
ans. Réttirnir eru bragðmiklir en umfram allt hollir.
Jesper Boelskifte Jesper Boelskifte er nafn hugmynda-
smiðsins og aðaldrifijöðurinnar í þessu ljómandi góða veitinga-
húsi. Jesper er einn frægasti vinþjónn eða „sommelier" Dana.
Hann á og rekur veitingahúsið ásamt Erik Gemal og
matreiðslumeistaranum Francis Cardenau. Le Sommelier var
opnaður árið 1997 og tekur staðurinn 180 manns í sæti. Það
sem athyglisverðast er við þetta góða veitingahús er hvað verð-
lagið er hagstætt miðað við gæði. Dýrasti forrétturinn, sem var
gæsalifur, kostaði 2.000 krónur en hægt var að fá ágætan
forrétt á 900 krónur. Meðal aðalrétta, sem hægt er að mæla
með, var steikt dúfa eða dúfnabijóst, safaríkt og bragðmikið á
2.520 krónur. Glas af góðu rauðvíni kostaði 770 krónur.
Þjónustan var afar lipur og þægileg, þjónustufólkið virtist hafa
töluverða þekkingu á vínum og útskýrði matseðilinn mjög
skilmerkilega. Fyrir þá lesendur sem eru á leið til Kaupmanna-
Vín og tilfinningar
Le Sommelier er í hugum margra
framandi orð en þetta er franska
og þýðir vínþjónn. Vínþjónar hafa
til skamms tíma verið óþekktir i reyk-
vískum veitingahúsum. Sem betur fer
er það nú að breytast. A flestum okkar
betri veitingahúsa eru nú starfandi
þjónar með ágæta þekkingu á léttum
vínum. En það er ekki nóg að vín-
þjónninn hafi víðtæka þekkingu á létt-
vínum, hann þarf einnig að kunna að
velja rétta vínið með matnum sem
gesturinn velur. Vínþjónninn verður
eiginlega að vera mikill mannþekkjari
eða sálfræðingur því hann þarf ekki bara að fmna rétta vínið
með tilteknum rétti heldur þarf hann einnig að komast að því
hvaða tegund af víni falli viðskiptavininum í geð. Það getur oft
verið erfitt því oft á tíðum veit viðskiptavinurinn eiginlega ekki
sjálfur hvaða vín honum líkar, góður vínþjónn eða „sommelier“
getur hins vegar hjálpað honum að komast að því.
Le Sommelier í Kaupmannahöfn Danir kunna að njóta lífsins
og hvergi á Norðurlöndunum er eins mikið úrval af góðum
vínum og í Kaupmannahöfn. Einn af vinsælli veitingastöðum í
Kaupmannahöfn í dag er veitingahúsið Le Sommelier og það
er engin furða. Eg átti frábæra kvöldstund á Sommelier, eina
ánægjulegustu kvöldstund á veitingahúsi í nokkra mánuði.
Auðvitað var mikið úrval af yndislegum vínum og hvorki fleiri
né færri en 50 tegundir sem hægt var að fá í glasavís. Á mat-
seðlinum eru 24 réttir og svo er boðið upp á matseðil dagsins.
Hér er það franska eldhúsið sem gildir enda matreiðslumeist-
hafnar get ég svo sannarlega mælt með
Le Sommelier sem margir segja að sé
eitt best varðveitta leyndarmál Kaup-
mannahafnar. Þeir sem hyggjast heim-
sækja þetta ágæta veitingahús skal
bent á að nauðsynlegt er að panta borð.
Le Sommelier
Bredgade 63-65
Sími: 33 11 4515
Fax: 33 11 5979
Netfang: mail@lesommelier.dk
Myndir: Geir Óiafsson Heimasíða: www.lesommelier.dk
Le Sommelier í Reykjavíh Og það er einnig til veitingahúsið
Sommelier í Reykjavík, að Hverfisgötu 46. Veitingamaður þar
er vínþjónninn Haraldur Halldórsson. Sommelier var opnað í
mars árið 2000 og fljótlega varð staðurinn vinsæll á meðal
vínáhugafólks. Haraldur er eigandi Sommelier ásamt Vigni
Þormóðssyni veitingamanni á Akureyri, þar sem hann rekur
veitingahúsið Karólínu. Heimspeki þeirra félaga er að reka
veitingahús þar sem er lögð jafn mikil áhersla á vínin og
matinn. Matur og vín þarf að vera ein heild og skapa ljúfar til-
finningar á þann hátt að vínið og maturinn styrki bragðupp-
lifunina. Haraldur segir að áhugi sinn á víni hafi kviknað þegar
hann var að læra á Hótel Holti.
„Vínáhugann get ég þakkað Toffa eða Þorfinni Guttorms-
syni sem þá var þjónn á Holtinu. Hann hvatti mig á alla lund og
aðstoðaði mig við að komast út til Frakklands á uppskerutím-
anum og heimsækja fræg vínhús."
Haraldur útskrifaðist sem þjónn árið 1989. Hann varð
Hvaða vín myndirþú bjóða elsk-
unni þinni efþú hefðirsært hana
og vildir biðjast jyrirgefningar?
Haraldur Halldórsson, vínþjónn á
Le Sommelier og einn 140 alþjóða-
dómara á A-lista í vínsmökkun,
veit svarið við því.
Eftír Sigmar B. Hauksson
104