Frjáls verslun - 01.02.2002, Blaðsíða 98
Sérblað um Þýskaland
Eygló Gísladóttir og Margrét Pétursdóttir. Margrét er annar eigenda Tískuverslunarinnar
Guðrúnar. „Við flytjum allar okkar vörur inn sjálfar oggœtum þess að vera eingöngu meðfatnað
sem er vandaður og hentar vel íslenskum markaði," segir Margrét.
kvæmisfatnað. Við kaupum frábærar
buxur með margskonar sniði og
lögun frá Michéle og síðast en ekki
síst ýmsar vörur frá Ariori og Janard
sem framleiða vörur sem hentar
fremur yngri aldurshópnum.
Margrét segir þýsku fötin smekk-
leg og vönduð og í stærðum sem
henta íslenskum konum. „Við höfum
reynt að fara til annarra landa að leita
að vörum en alltaf lent aftur í Þýska-
landi. Það er einhvern veginn þannig
að þær vörur henta okkur best og þá
er auðvitað eðlilegt að við endum þar
aftur og aftur,“ segir hún. „Við gætum
þess einnig að panta ekki of mikið af
hverri tegund heldur látum eitt
stykki í stærð duga - nema auðvitað af
hversdagsfatnaði eins og buxum og
peysum. Þar pöntum við meira.“
A sama stað í hálfa öld
Þessa ágætu búð reka þær Margrét
Pétursdóttir og Ester Jóhanns-
dóttir og hafa gert síðustu níu árin
með miklum ágætum. „Við Ester
höfum þekkst lengi,“ segir Margrét og
brosir um leið. „Við unnum saman á St.
Jósefsspítala um margra ára skeið, ég
sem röntgentæknir og hún sjúkraliði,
og okkur féll ákaflega vel að vinna
saman.“
Það er nú ekki hefðbundinn
grunnur undir verslunarrekstur að ---------
vinna á sjúkrahúsi en þær stöllur fengu upp í hendurnar tæki-
færi sem þær vildu ekki sleppa. „Ég frétti af því að það ætti að
fara að loka versluninni og mér þótti það vondar fréttir," segir
Margrét. „Því var það að ég bar undir Ester þá hugmynd að við
keyptum verslunina saman og hún sló til.“ Þar með voru þær
orðnar verslunareigendur og lögðu ótrauðar af stað á þessa
nýju braut.
Tískuverslunina Guðrúnu á Rauðar-
árstíg 1 þekkja allir. Hún hefur verið
kyrr á sama stað i tæplega hálfa öld,
eða 49 ár, ogþriðja kynslóð farin að
kaupa þar vandaðan þýskan fatnað
sem alla tíð hefur verið aðalsmerki
verslunarinnar.
Skemmtilegt starl Það virðist litlu
breyta fyrir tiskuverslunina Guðrúnu
þó að verslunarkjarnar opni hér og þar
á höfuðborgarsvæðinu. En fmnur
Margrét ekkert fyrir samkeppninni?
„Það er lítið,“ svarar hún. „Okkar
viðskiptavinir þekkja okkur vel og
einhvern veginn er það svo að það er
ekki mjög mikið um samskonar
verslanir og því er samkeppnin ef til vill
ekki eins mikil og maður myndi halda.
------- Auðvitað er hún fyrir hendi en við
höldum okkar striki og viðskiptavinum og þeir kunna vel að
meta það sem við bjóðum upp á. Með árunum höfum við
komið okkur upp lista yfir viðskiptavini sem við sendum bréf
þegar við bjóðum sérstök tilboð í stað þess að auglýsa þau
mikið. Það skilar sér vel en svo erum við auðvitað með hefð-
bundnar útsölur tvisvar á ári líkt og aðrar verslanir."
ÞýSkll fötin vönduð „Við erum með fatnað fyrir konur á öllum
aldri en leggjum aðaláhersluna á að vera með vörur fyrir konur
á aldrinum frá um það bil 30 ára og uppúr,“ segir Margrét. „Við
flytjum allar okkar vörur inn sjálfar og gætum þess að vera ein-
göngu með fatnað sem er vandaður og hentar vel íslenskum
markaði. Fyrirtækin sem við verslum við eru öll þýsk og við
förum tvisvar á ári út til að kaupa inn á vörusýningum en þess
á milli kemur fyrir að við þurfum að skreppa til að bæta ein-
hverju við.“
Merkin sem verslunin Guðrún leggur mesta áherslu á
eru til að mynda Trumpf, en þeir framleiða t.d. blússur,
toppa og boli undir merkinu Tru og dragtir, staka jakka,
buxur og pils undir merkinu DUO. Einnig má nefna Janard
sem framleiðir sérlega vandaðar dragtir og staka jakka og
ekki síður Murek + Murek með fallegan spari- og sam-
Tískan framundan Tískan er síbreytileg og það er að æra
óstöðugan að halda í við hana. Margrét gerir þó lítið úr því og
segir ganga vel að fýlgjast með. „Við fáum auðvitað talsvert
mikið upp í hendurnar þegar við förum á sýningar,“ segir hún.
„Svo hjálpar það að vörurnar okkar eru mjög klassískar og því
ekki eins miklar breytingar og hjá þeim sem skipta mánaðar-
lega. En auðvitað breytast bæði litir og snið reglulega og við
fylgjum því.“
- Og hvernig skyldi svo sumartískan verða?
„Það verður mikið um gallaefni, bæði í buxum og blússum,
vestum og jökkum og svo sjáum við talsvert koma af köflóttu
og rósóttu. Skyrtur og blússur taka mikið til við af bolunum
sem hafa verið undanfarið en auðvitað hverfa þeir ekki
alveg,“ segir Margrét og lætur þetta duga af spádómum fýrir
sumarið.SH
98