Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2002, Blaðsíða 51

Frjáls verslun - 01.02.2002, Blaðsíða 51
ORRAHBÍÐIN í KRINGUM LflNDSSÍIVIflNN vita. Segið frá því ef þið teljið t.d. að forstjórinn hafi gert mistök í fjárfestingum í öðrum fyrirtækjum og hafi rekið fyrirtækið eins og óábyrgan hlutabréfasjóð; gert mistök við kaup og sölu fast- eigna; óhlýðnast skipunum ykkar um að segja sig úr stjórnum líf- eyrissjóða eða stjórnum annarra fyrirtækja, eða verið klaufi í mannlegum samskiptum. Fram kom í viðtali við forsætisráðherra í Kastljóssþætti nýlega að megn óánægja hafi verið af hans hálfu með störf Þórar- ins og stjórnun Símans talsvert áður en honum var sagt upp. Svo rammt kvað að þessari óánægju að Þórarinn óskaði sl. vor eftir sérstökum fundi með Davíð til að útskýra sín mál. Varla er hægt að segja að skoðun stjórnar Landssímans á vinnubrögðum og ár- angri Þórarins í starfi hafi komið fram. Enda var það ekki stjórn- in sem sagði honum upp - og þar var hún ef til vill samkvæm sjálfri sér því hún réð hann í raun ekki í starfið. Það veittu því all- ir athygli þegar uppsögnin var tilkynnt að notast var við orðalag- ið að þetta væri sameiginleg niðurstaða eiganda félagsins, (þ.e. ríkisstjórnarinnar), einkavæðingarnefndar og ráðgjafans í Lund- únum sem önnuðust söluna - sem svo raunar varð aldrei neitt af. Það kom hins vegar í hlut stjórnar Landssímans að „vera sendi- boði“ og gera starfslokasamning við Þórarin, ganga í mál sem aðrir höfðu tekið ákvörðun um. Ræðum örlítið um aðdraganda að uppsögnum forstjóra og annarra starfsmanna, þ.e. gulu spjöldin svonefndu. Sú skoðun hefur margoft komið fram í Frjálsri verslun á undanförnum árum að ef eigandi fyrirtækis og forstjóri finna að þeir ná ekki lengur saman þá eigi þeir að setjast niður og ræða opinskátt um fram- haldið, t.d. hvort þeir geti komið sér upp eðlilegum samskipta- máta þar sem traust ríki á milli þeirra þótt þeir finni að þeir séu ekki alltaf sammála. Eða þá að þeir komi sér saman um að leiðir muni skilja eftir ákveðinn tíma, enda blasi við hvert stefni, og ræði málin af einurð og gagnkvæmri virðingu, þeirra og fyrirtæk- isins vegna. Ef forsljóri vill hætta þá á hann að koma því áleiðis til eigandans með góðum fyrirvara. Og öfugt. Það hefði átt að ræða við Þórarinn fyrir meira en ári síðan og gefa honum gula spjaldið og segja honum að ekki yrði beðið með að veita honum rauða spjaldið áður en nýr eigandi, hinn fyrirhugaði kjölfestuijárfestir með 25% hlut í félaginu og þrjá menn af fimm í stjórn, tæki við. Það var alls ekki hvetjandi fyrir Þórarin að segja sjálfur upp því hann hafði ráðningarsamning til fimm ára og hefði ekki fengið 37 milljónir króna við starfslok. Enda valdi Þórarinn þá leið að pressa á það að hann yrði settur aftur í starfið efdr hið „tíma- bundna leyfi“, vitandi af óánægju forsætisráðherra og einkavæð- ingarnefndar með störf hans og að þessir aðilar gætu ekki fallist á að hann kæmi aftur. Úr því sem komið var setti hann þá pressu á að annaðhvort yrði sér formlega sagt upp, svo rétturinn yrði Styrkleiki 16D þús. fastlfnutengingar. 148 þús. farsfmanotendur tGSM). 26 þús. NMT-áskrifendur. 50% af Internetviðskiptum einstaklinga. 32% af Internetviðskiptum fyrirtækja. Reynslumikið starfsfólk. Veihleiki: Þörf er á frekari niðurskurði í útgjöldum. Skuldir hafa meira en tvöfaldast á þremur árum. hans megin í starfslokasamningnum, eða hann yrði settur í starfið aftur. Raunar hefur það vakið mikla athygfi hvað Þórarinn hefur verið yfirlýsingaglaður og fyrirferðarmikill í tjölmiðlum um mál- efni Símans eftír að hann hvarf út stófi forstjóra; jafnvel svo að spyrja má sig að því hvort það hafi ekki skaðað hann. Að vísu hefur að honum verið vegið og eðfilega hefur hann orðið að bera hönd fyrir höfuð sér; koma sínum skoðunum að. Og tæplega áttu nokkrir von á einhverri heiðríkju í kjölfar uppsagnar hans. 33 Góð lexía: Sýnið ekkert hik og útskýrið uppsögnina ná- kvæmlega í fréttatilkynningu, klárið málið. Þannig sendi Hreggviður Jónsson, forstjóri Norðurljósa, út fréttatilkynn- ingu um brotthvarf sitt frá fyrirtækinu nýlega. Hann lagði spil- in á borðið og útskýrði hvers vegna hann væri að láta af störf- um. Það var trúverðug tilkynning og fyrir vikið kom hann út sem mikill prinsippmaður; maður sem væri með allt á hreinu. Hann kláraði málið. Eigið fé (í milljörðum króna) í árslok 1998 1999 2000 2001 Skuldir (í milljörðum króna) Hagnaður (í milljonum króna) 1.800 (Áætlun) 1.044 140 1.039 i __J 1999 2000 2001 2002 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.