Frjáls verslun - 01.02.2003, Qupperneq 6
RITSTJÓRNARGREIN
Hafa peningarnir tekið völdin?
„Peningarnir hafa tekið völdin. Ekki stjórnmála-
flokkar. Ekki kjörnir fulltrúar. Ekki samtök
fólksins. Ekki hinn almenni borgari.“ Þannig
komst Ellert B. Schram nýlega að orði í grein í
Morgunblaðinu þar sem hann útskýrir iýrir les-
endum framboð sitt iýrir Samiýlkinguna. Ellert
hafði á orði að sér hefði orðið þetta ljóst við lestur
greinarflokks Agnesar Bragadóttur, blaðamanns
á Morgunblaðinu, um viðskiptalífið. Ekki var
annað á honum að skilja en að hann vildi auka
völd stjórnmálamanna og þá væntanlega á
kostnað „peninganna“. Grein hans var að vísu
skrifuð áður en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hélt fræga ræðu í
Borgarnesi þar sem hún sagði m.a. að stjórnmálamenn ættu
ekki að skipta sér af viðskiptalífinu.
„Lög á tiessa auðhringi“ Ellert er svo sem ekki einn um þá
skoðun að „peningarnir hafi tekið völdin“. Þetta er orðið að eins
konar frasa. Menn eins og Sverrir Hermannsson, Jón Magnús-
son og Guðmundur G. Þórarinsson tala á sömu nótum. Þannig
vill Sverrir Hermannsson, sem í hugum margra gæti talist auð-
maður, að lögum verði komið yiir þessa „auðhringi" án þess að
hann útskýri það frekar hvernig þau lög og þær reglur eigi að
vera. Eg held hins vegar að flestum finnist eðlilegast að við-
skiptalífið búi við almennar leikreglur sem veita öllum frjálsan
aðgang að mörkuðum og hindra einokun, samráð og óeðlilega
viðskiptahætti. Því sértækari sem reglurnar eru þeim mun verri
eru þær. Hvað er t.d. heimamarkaður þegar samkeppnin er
alþjóðleg? A hið opinbera að ákveða stærð iýrirtækja? Hvernig
á að skipta iýrirtækjum upp og bijóta valdablokkirnar niður?
Umfjöllun Frjálsrar verslunar Fijáls verslun ver óvenjumiklu
rými í þessu tölublaði undir umflöllun um valdablokkirnar í
íslensku viðskiptalifi. Við teljum þær vera átta og þeim hefur
Jjölgað um sex á tólf árum. Þeim mun örugglega fjölga áifam.
Skilin á milli þeirra eru oft og tíðum óljós og fýrirferð hverrar
blokkar hefur minnkað. Tveir bankar eru á
meðal þessara valdablokka. Við skilgreinum
lifeyrissjóðina, sem eru í eigu allra landsmanna,
sem valdablokk. Engin valdablokkanna er með
einokun á sínum markaði þótt markaðsstaða
sumra iýrirtækjanna sé mjög ráðandi og sterk
en þau hafa verið lengi í atvinnurekstri í viðkom-
andi atvinnugrein. Valdablokkirnar eru aðeins
hluti af íslensku atvinnulifi og því fer auðvitað
Jjarri að allir Islendingar séu í vinnu hjá þeim og
ofurseldir þeim. I raun er íslenskt hagkerfi keyrt
áfram með eldmóði af sterkri millistétt, um 80 til
90% þeirra sem eru á vinnumarkaði, þar sem aragrúi einyrkja og
smáiýrirtækja kemur við sögu.
Fyrsl og fremst Sterkir fjárfestar Valdablokkirnar eru fýrst og
fremst sterkir ijárfestar sem koma til sögunnar standi til að
gera eitthvað verulega stórt og öflugt í íslensku atvinnulifi.
Samspil þeirra myndar aflið. Það er hins vegar engin ný bóla að
peningum fylgi völd og erfitt sé að bijótast inn á markað þar
sem öflugt fyrirtæki er iýrir. Hluthafar í almenningshluta-
félögum hafa völd í samræmi við eign sína og það er forsenda
þess að hægt sé að halda úti hlutabréfamörkuðum og almenn-
ingshlutafélögum.
Það verður ekki bæði sleppt og haldið. Stjórnmálamenn sem
afsala sér völdum í atvinnulifinu með því að selja ríkisiýrirtæki
geta ekki vænst annars en að völd þeirra minnki. Islendingar
eru ein allra ríkasta þjóð í heimi þótt þeir hafi meira fyrir því að
baka kökuna en aðrar þjóðir. En það fylgir einu sinni markaðs-
öflunum að menn njóta ávaxta erfiðis síns. Væri betra að hafa
litla köku og almenna fátækt?
Það er af hinu góða að fólk fylgist með atvinnulífinu,
umsvifum einstakra valdablokka og hvar þræðir liggja þvers og
kruss í viðskiptalífinu. Til þess þarf upplýsta umræðu. Það er
algjör óþarfi að þetta fari að snúast um gamla frasa í kröfu-
göngum. Jón G. Hauksson
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskiþta-, efnahags- og atvinnumál - 65. ár
Sjöfn Guðrún Helga Geir Ólafsson Hallgrímur
Sigurgeirsdóttir Sigurðardóttir Ijósmyndari Egilsson
auglýsingastjóri blaðamaður útlitshönnuður
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttír
BLAÐAMAÐUR: Guðrún Helga Sigurðardóttir
LIÓSMYNDARI: Geir Ólafsson
UMBROT: Hallgrímur Egilsson
ÚTGEFANDI: Heimur hf.
V heimur
RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA:
Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 512 7575, fax: 561 8646, netfang: fv@heimur.is
ÁSKRtFTARVERÐ: kr 7.700.-10% afsláttur ef greitt er með kreditkortí.
LAUSASÖLUVERÐ: 799 kr.
DREIFING: Heimur hf., sími 512 7575
PRENTVINNSLA; Gutenberg hf.
LJÓSMYNDIR: © Heimur hf. - Öll réttíndi áskilin varðandi efni og myndir
ISSN 1017-3544
6