Frjáls verslun - 01.02.2003, Blaðsíða 40
Guðmundur Ó. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Áleininga ehf., fyrir utan nýbyggingu Lækjarskóla í Hafnarfirði, en Áleiningar
ehf. smíða alla áiglerveggi hússins sem eru um 2.000 fermetrar. Myndir: Geir Ólafsson
Áftiningar
- uiðhaldsfritt byggingarefni
Inútíma arkitektúr er mikið um glugga. Gler er skemmtilegt efni að
uinna úr, setur léttan blæ á bygginguna og gefur marga möguleika
á útfærslum. Það að vera með marga glugga og marguíslega,
krefst gluggakarma uið hæfi og undanfarið hafa álgluggakarmar og ál-
prófílar uerið efst á baugi, enda er ál uiðhaldsfrítt efni sem hægt er
að móta hvernig sem þörf krefur.
„Áleiningar eru í fararbroddi á þessum markaði," segir Guðmundur
Guðjónsson, framkvæmdastjóri Áleininga, en fyrirtækið flutti nýlega í
nýtt húsnæði að Stórhöfða 25. Hjá fyrirtækinu starfa nú 13 manns.
„Viðskiptavinir okkar eru allt frá því að vera einstaklingar sem eru
að loka svölunum hjá sér eða kaupa nýja útihurð, upp í stór verkefni
eins og Hótel Selfoss og Össurarhúsið að Grjóthálsi."
Álið er viðhaldsfrítt
Stærstu álgluggar sem Áleiningar hafa haft með að gera eru engin
smásmíði, 1000 fm. í Lækjarskóla í Hafnarfirði og segir Guðmundur
það verða æ vinsælla að hafa slíka veggi þar sem ál og gler sé ódýrt
byggingarefni og alveg viðhaldsfrítt. „Við erum með verskmiðju á
Hellu og getum þannig brugðist hratt við ef einhverjar breytingar eiga
sér stað. Það hefur oft komið sór vel og byggingaverktakar kunna vel
að meta það enda talsverður munur á því að hafa allt við höndina og
á þvt að þurfa að bíða eftir afgreiðslu frá erlendum birgjum. Stærsti
samvinnuaðili okkar er Reynaers Aluminium sem eru einn þekktasti
gluggakerfishönnuður í heimi en fyrirtækið er frá Belgíu þar sem það
var stofnað árið 1965 og hefur æ síðan verið í fararbroddi hvað
hönnun á álgluggum snertir."
Staðlar og tölvuvæðing
Reynaers hefur búið til forrit sem notað er við að teikna verkið. Þegar
það hefur verið gert eru allar upplýsingar fyrirliggjandi, útreikningar
á efni, hvernig á að saga og setja saman og svo framvegis. Skjalið er
sent til verksmiðjunnar á Hellu í gegnum tölvukerfið og þar er verkið
fullunnið án þess að mannshöndin þurfi mikið að koma að. í þessu
kerfi er lítið rúm fyrir mannleg mistök og þó talsvert sé um staðlaða
próffla, er það samt þannig að í stærri verkefnum er oft búið til nýtt
útlit sem hentar húsinu ef enginn stöðluðu prófílanna passar inn í.“
Stærri verkefni
Af stærri verkefnum Áleininga má nefna nokkur þekkt hús: Hótel Sel-
foss, Lækjarskóla, nemendagarða MA á Akureyri, Nesskóla I
Neskaupstað, Össurarhúsið að Grjóthálsi og verslanir Skífunnar í
Kringlunni og Smáralind. „Það eru ekki bara gluggar, heldur er ál og
40