Frjáls verslun - 01.02.2003, Blaðsíða 87
JEPPflR
sem best í ferðalögum. Með því færist td. þyngd bílsins jafnar
og betur á báðar hásingar og þá sérstaklega þegar búið er að
smiða auka eldsneytistanka á milli hásinga. Þetta skiptir t.d.
sköpum þegar ekið er upp brattar brekkur eða jökla. Bíllinn
sest ekki eins niður á afturhjólin en ella. Síðan er skipt um drif-
hlutföll, settar í driflæsingar og jafnvel auka millikassi, svo
niðurgírun verði sem best Það er nefnilega hálfskrítið að segja
frá því að þeir sem komast hægast drífa mest í snjó. Svo eru
menn að selja alls konar dót utan á bflana, eins og ljóskastara,
dráttarspil, skóflur, drullutjakka og geymsluhólf ýmiss konar.
Inn í bflana setja menn staðsetningartæki og jafnvel tengja við
tölvur. Fjarskiptabúnaður eins og MNT farsími og VHF tal-
stöðvar. Bönd og búnaður ýmiss konar þarf að vera til staðar, ef
allt í einu hættir að vera gaman. Þegar ég var ungur drengur sá
maður í erlendum tímaritum breytta jeppa með fullt af skrauti
utan á, en væntanlega hafa þeir bílar verið meira til skrauts, en
til notkunar. Við jeppafólkið hér á klakanum erum að breyta
þessum bflum til að nota þá og ferðast
Loftið úr dekkjunum Til marks um áhugann erlendis má geta
þess að í hinu fræga París Dakar ralli, sem Mitsubishi Pajero
jeppinn hefúr unnið oftast, var í Jýrsta skipti í síðasta ralli jeppi
með þeim útbúnaði að hægt er að hleypa lofti úr dekkjunum
innan úr bílnum sjálfum á ferð. Slíkur búnaður hefur verið þró-
aður hér heima í nokkur ár og eflaust hafa þeir sandökumenn
séð að það gilda nefnilega sömu lögmál í sandinum og í snjón-
um, að bílar drífa betur ef hleypt er úr hjólum.
Dýrt sport Fjölmargir fagmenn eru hér á landi sem breyta
bílum en flestir eru þeir tengdir einhveijum umboðum og sér-
hæfa sig í tegundum. Ætla má að lágmarksbreyting á nýjum
jeppa á 38“ hjólum kosti á bilinu 1,2 og upp í 2 mifljónir króna
en Páfl segir bestu kaupin vera í breyttum jeppum, um það bil
tveggja - þriggja ára gömlum. „Þegar menn kaupa notaðan
breyttan bíl, má segja að sá sem kostaði breytinguna í byijun,
fái sjaldnast mikið af þeim kostnaði til baka þegar bíllinn er
seldur. Að minnsta kosti örugglega ekki það sem breyting-
arnar kostuðu í upphafi,“ segir Páll. „En þetta hefur reyndar
verið að breytast síðustu ár, seljandanum í hag. Eg mæli því
með þessari leið, ef fólk hefur ekki aura í að kaupa nýja bfla.“
Páll hvetur fólk til þess að kynnast félaginu, bæði á heima-
síðu þess www.f4x4.is og einnig að prófa að koma á félagsfundi
sem eru haldnir á Hótel Loftleiðum Jýrsta mánudagskvöld í
hveijum mánuði. 33
Jeppar, jeppar og meiri jeppar. Óvíða eru jafnmargir jeppar til og á íslandi, sé miðað við hina frægu höfðatölu.
Jeppar eru hentugir til aksturs í óbyggðum og á Jjöllum en
líka þegar veður eru vond og snjórinn er yfir öllu. Hvort
þeir eru nauðsynlegir í borgum og bæjum skal ósagt látið
en hitt er annað að góður jeppi er stöðutákn. Sá sem á fallegan
jeppa, nýlegan og vel útlítandi hlýtur að vera þokkalega
stæður og í góðri stöðu og þannig hefur jeppinn að sumu leyti
fengið status sem yfirmannabíll. Það er þó ekki algilt því gífur-
legur Jjöldi jeppa selst hér á landi til fólks á öllum aldri og í
ýmsum atvinnugreinum. Verð á minni jeppum er ekki hærra
en á góðum fólksbílum og þeir sem kunna að meta eiginleika
jeppanna, að geta farið víða um land þó veður séu válynd og
vegir ekki upp á aflra besta máta, kaupa sér gjarnan jeppa.
Henta vel hér „Ég held að jeppar séu ekki „forstjórabílar" á
Islandi þar sem svo gífurlegur Jjöldi jeppa selst að fólk úr
öllum atvinnugreinum, af báðum kynjum og á öllum aldri, er
að kaupa þá,“ segir Bogi Pálsson., Jeppar einfaldlega henta vel
á Islandi sem er grundvöllur vinsælda þeirra. Ég held að for-
stjórar velji jeppa af sömu ástæðum og aðrir.“
Það er nokkuð til í þessu hjá Boga. Auðvitað eru forstjórar
ekki meirihluti kaupenda jeppa en þvi má þó ekki gleyma að
þeir sem eru í hæstu stöðunum, hafa mestar tekjurnar, eru
líka á dýrustu bílunum og stórir jeppar eru dýrir á mælikvarða
almennings.
Ferðaklúbbar í kringum jeppa hafa myndast skemmtilegir
ferðaklúbbar og er skemmst að minnast 4x4 klúbbsins. Þessir
klúbbar fara gjarnan í ferðir saman og eiga góðar stundir og
dellulkarlarnir og konurnar ræða um kosti og galla bíla sinna.
Hvernig best sé að breyta þeim, hvernig þeir eru í þessari eða
hinni færðinni, hvaða tegunda er að vænta og svo framvegis.
Þannig virkar jeppaeignin ekki aðeins sem bíll heldur gegnir
félagslegu hlutverki líka. Það er að minnsta kosti lítið um slika
klúbba hvað aðrar bíltegundir snertir og aldrei sést auglýst
mót þeirra sem aka Skoda svo dæmi sé tekið.
Það er því ekki hægt að slá því föstu að jeppar sem slíkir
séu forstjórabílar en víst er að forstjórar aka á jeppum - alveg
eins og allir hinir. B5
87