Frjáls verslun - 01.02.2003, Blaðsíða 30
BANKI
r
Islandsbanki er orðinn að sterkri, sjálfstæðri
valdablokk. Bankinn er í raun miklu meiri
blokk en ætla mætti í fyrstu og hann er sömu-
leiðis orðinn miklu sjálfstæðari en flestir gera sér
grein fyrir. Sjálfstæði hans felst í því að hann
heyrir ekki undir aðrar blokkir.
Ymsir kynnu að halda að bankinn væri hluti af
Kolkbrabbanum þar sem Eimskip og Sjóvá-
Almennar eiga 10% hlut í honum, en svo er ekki.
Það er af og frá að Kolbrabbinn ráði yfir Islands-
banka. Það þarf ekki annað en að horfa á eignar-
hlut lífeyrissjóðanna í bankanum til að sjá að það
eru lífeyrissjóðirnir sem ráða þar ferðinni ásamt
TM og Kolkrabbanum.
FLESTIR TELJA að með kaupunum séu
eigendur Islandsbanka „að taka þátt í
leiknum um Búnaðarbanka" komi til sölu
hans á næstu tveimur til þremur árum.
Líkt og er hjá Kaupþing banka þá á Islands-
banki (í gegnum Straum) sig að nokkru leyti
sjálfur og gefur það Bjarna Armannsson, forstjóra
bankans, líklega meiri völd en ætla mætti við fyrstu
sýn. Að vísu vakti verulega athygli þegar Islands-
banki seldi Landsbankanum urn 20% í Straumi.
Margir túlka það þannig að þar hafi íslandsbanki
fundið sér meðleikara og samstarfsaðila - hvort
sem það leiðir til einhvers frekar eða ekki.
Lífeyrissjóður verslunarmanna og Lífeyris-
sjóðurinn Framsýn eru stærstu hluthafarnir í
íslandsbanka. Straumur er í þriðja sæti. Þar á eftir
kemur Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Banka-
stræti 7. Síðan kemur Tryggingamiðstöðin, Sjóvá-
Almennar, Eimskip og þá er Jón Snorrason, jafnan
kenndur við Húsasmiðjuna, kominn með hlut og
sestur í bankaráðið.
Islandsbanki var einn þeirra flárfesta sem sýndi
því áhuga að kaupa hlut ríkisins í Landsbankanum
og Búnaðarbankanum á síðasta sumri. Þar kom
Islandsbanki fram sem sjálfstæð viðskiptablokk.
Það gerði hann líka þegar meirihlutinn í Islands-
banka hratt yfirtökutilraunum Jóns Asgeirs og Þor-
steins Más á síðasta ári. Sumir hafa nefnt þá hörðu
baráttu, sem þar fór fram, sem baráttu „nýrra pen-
inga við gamla“. Kjarni málsins í þeirri þaráttu var
sá að meirihluti Islandsbanka treysti ekki þeim Jóni
Asgeiri og Þorsteini Má til að yfirtaka bankann af
ótta við að þeir notuðu hann í eigin þágu til fjárfest-
inga og „eyðilegðu hann“.
Afar mikill seljanleiki hefur verið með bréf í
Islandsbanka og hafa menn raunar furðað sig lengi
á hvers vegna gengi bréfa í bankanum er ekki
hærra en það er.
Islandsbanki, Straumur, nokkrir þeirra lífeyris-
sjóða sem standa að bankanum og Sjóvá-Almennar
voru fyrirferðarmikil í útboði ríkisins á 9% hlutnum
í Búnaðarbankanum sem eftir var eftir söluna til S-
hópsins. Náðu þessir aðilar til sín um 7% hlut.
Flestir telja að með kaupunum séu eigendur
Islandsbanka „að taka þátt í leiknum um Búnaðar-
banka“ komi til sölu hans á næstu tveimur til
þremur árum. Valur Valsson, fyrrverandi forstjóri
Islandsbanka, sagði t.d. í viðtali við tímaritið Ský
íslandsbanki
Tíu stærstu hluthafarnir
1 Lífeyrissj. verslunarm. ...10,0%
2 Lífeyrissj. Framsýn......... 8,3%
3 Fjárfestingarf. Straumur... 6,4%
4 Lífeyrissj. Bankastr. 7 ... 5,6%
5 Tryggingamiðstöðin hf....... 5,5%
6 Sjóvá Almennar................. 5,3%
7 Burðarás ehf. (Eimskip) ... 4,9%
8 íslandsbanki .................. 3,5%
9 Lífeyrissjóður sjómanna ... 2,1%
10 Alnus ehf ................... 1,7%
Kristján Ragnarsson, stjórnarformaður
íslandsbanka.
Helgi Magnússon, stjórnarmaður í
íslandsbanka.
30