Frjáls verslun - 01.02.2003, Blaðsíða 32
LIF
EYRISSJÓÐIRNIR
Það er mjög klifað á því að lífeyrissjóðirnir í
landinu - mesta aflið á íslenskum hlutabréfa-
markaði - séu ekki valdablokk. Það er um-
deilt. En hvað sem tautar og raular þá setjum við
þá hér inn sem valdablokk. Það er ekki síst vegna
þess hve stóran hlut þeir eiga í Islandsbanka og
hve virkan þátt þeir tóku í þeirri varnar- og valda-
baráttu sem þar var háð þegar Jón Asgeir og Þor-
steinn Már gerðu atlöguna að bankanum.
HIIMS 1IEGAR DYLST ENGUM hvað
Lífeyrissjóðurinn Framsýn og
Lífeyrissjoður verslunarmanna eiga
stóra eignarhluti í íslandsbanka og
hlutfallslega miklu stærri en í öðrum
fyrirtækjum. Það veit á gott, segja
sumir, en á völd, segja aðrir.
Lífeyrissjóðirnir eru í eigu allra lands-
manna. Forsvarsmenn sjóðanna segja
sjálfir að þeir hugsi fyrst og fremt um
ávöxtun en ekki völd í fyrirtækjum.
Þeir komi og fari inn í fyrirtæki
eftir þvi hvernig vindar blása.
Hins vegar dylst engum
hvað Lífeyrissjóður-
inn Framsýn og
Lífeyrissjóður
verslunar-
manna eiga stóra eignarhluti í íslandsbanka og
hlutfallslega miklu stærri en í öðrum fyrirtækjum.
Það veit á gott, segja sumir, en á völd, segja aðrir.
Þetta hefur ævinlega verið skýrt þannig að lífeyr-
issjóðirnir hafi verið svo stórir hluthafar í forver-
um Islandsbanka, þ.e. Iðnaðar-, Verslunar-. Al-
þýðu- og Utvegsbanka sem sameinaðar voru í Is-
landsbanka árið 1990.
Hitt er rétt að lífeyrissjóðirnir eru ekki kjöl-
festufjárfestar í neinu fyrirtæki, nema þá kannski
Islandsbanka, þar sem þeim ber skylda til að
dreifa áhættu sinni sem mest. Þau rök mæla gegn
því að flokka lífeyrissjóðina sem valdablokk. Þeir
eru þó með mjög stóran hlut í Framtaki ijárfest-
ingarbanka (EFA+Þróunarfélagið). Sömuleiðis
starfa þeir mjög sjálfstætt og hver þeirra hefur
sína eigin skýru Ijárfestingastefnu.
Lífeyrissjóðir eru ekki með fulltrúa sína í
stjórnum margra hlutafélaga. Helgi Magnússon
og Víglundur Þorsteinsson sitja í stjórn Islands-
banka fyrir hönd Lífeyrissjóðsins Framsýnar og
Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Þá eru lífeyris-
sjóðirnir í landinu með flóra fulltrúa í stjórn Fram-
taks ijárfestingarbanka en Asmundur Stefánsson
er þar forstjóri. Þá er fulltrúi lífeyrissjóðs í stjórn
Kaupþing banka. Lífeyrissjóður verslunarmanna
er ekki lengur með fulltrúa sinn í stjórn Flugleiða.
Það breytir því ekki að það er talsverður „fjöl-
skyldubragur" á lífeyrissjóðunum um þessar
mundir og „hjörtu þeirra slá býsna mikið í takt“
þótt örugglega verði deilt á okkur fyrir að skil-
greina þá sem valdablokk. S3
Lífeyrissjóðirnir eru með mesta fjármagnið
og eru því mesta aflið á hlutabréfamark-
aðnum - og í eigu fólksins í landinu.