Frjáls verslun - 01.02.2003, Blaðsíða 105
Inga Jóna Þórðardóttir viðskiptafræðingur, Guðný
Björnsdóttir lögfræðingur og Guðrún Pétursdóttir
forstöðumáður.
til umhugsunar. Ég hef staðið fyrir átaki sem gengur út á það að
þekking og færni kvenna séu auðlind sem beri að nýta í þágu
samfélagsins. Reynsla þeirra og sjónarhorn er annað en karla
og það er mikilvægt. Ég fagna því að konur taka sæti í stjórnum
þessara fyrirtækja og bíð eftír því að önnur fyrirtæki vakni til
meðvitundar um að þetta sé eðlileg skipan mála. Ég vona að ég
eigi eftir að lifa þann dag að enginn velti því fyrir sér hvort það
eru karlar eða konur sem stjórna fyrirtækjurn," svarar Guðrún.
Þátttaka kvenna er að breytast Athygli vekur að í tveimur
fyrirtækjum af þremur er sami maður stjórnarformaður.
Þetta er Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Heims
hf., og leiðir hann stjórn Eimskips og Skeljungs. „Umræða
hefur verið um þátttöku kvenna í stjórnum fyrirtækja bæði
hérlendis og erlendis. Hlutur kvenna hefur smám saman
verið að aukast og það má segja að viðskiptin fylgi á eftir. Þátt-
taka kvenna í atvinnulífinu er almennt að aukast og það er
eðlilegt að það komi að því að konur fari yfir þennan þröskuld
eins og aðra. Þessar þrjár konur eiga það sameiginlegt að
vera allar mjög hæfar og hafa góða hæfileika til stjórnunar-
starfa. Þegar kostur er á svo góðum fulltrúum þá er það mjög
gott fyrir félögin. Þátttaka kvenna í stjórnum fyrirtækja hefur
ekki verið almenn en ég sé fyrir mér að það muni breytast á
næstu árum. Einn vandinn er sá að það er alltaf verið að leita
að fólki með reynslu en reynslu fá menn ekki nema með því
að fá tækifæri til þess að vinna við verkefnin. Þess vegna er
það fagnaðarefni að þessar hæfileikaríku konur fá tækifæri til
stjórnarstarfa," segir Benedikt. 33
Inga Jóna
Guðný Björnsdóttir
Guðrún Pétursdóttir
Inga Jóna Þórðardóttir viðskiptafræðingur
hefur víðtæka reynslu úr atvinnulííi og
stjórnmálum. Hún hefur unnið ýmis verk-
efni á síðustu misserum en var áður oddviti
borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna
fram á vorið 2002. Inga Jóna er ekki
ókunnug sjávarútvegi því að hún starfaði
við fiskverkun og útgerð foreldra sinna
jafnhliða námi á sínum tíma og í Skipa-
smíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi
eftir það. Síðar var hún m.a. í átta ár í stjórn
Reykjavíkurhafnar. Inga Jóna er gift Geir
H. Haarde fjármálaráðherra. Þau eiga
fimm börn. m
Guðný Björnsdóttir lögfræðingur hefur
starfað hjá Sjóvá-Almennum trygg-
ingum hf. í tíu ár og sinnir þar alhliða lög-
ffæðistörfum. Hún rak áður lögmanns-
stofu í sex ár með Hafsteini Hafsteinssyni
forstjóra Landhelgisgæslunnar. Guðný er
formaður úrskurðarnefndar fæðingar- og
foreldraorlofsmála og hefur um árabil átt
sæti í Yfirfasteignamatsnefnd. Hún er alin
upp í Neskaupstað. Hún fór óhefðbundna
leið í sínu námi, fór ekki í menntaskóla
fyrr en 33ja ára gömul og þá í öldungadeild
MH. Hún útskrifaðist úr lögfræðinni við
HÍ árið 1980. 33
Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður
Sjávarútvegsstofhunar Háskóla Islands,
hefur víðtæka reynslu úr háskólaumhverf-
inu en hefur einnig komið að nýsköpun í
atvinnulffi með öðrum hætti. Hún er dós-
ent í frumulíffræði og fósturfræði við
Háskóla íslands en starfaði um árabil við
Læknadeild Háskólans í Osló. Guðrún
situr í stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífs-
ins og var formaður verkefnisstjórnar
Auðar í kraftí kvenna. Hún hefúr doktors-
gráðu í lifeðlisfræði frá Osló, meistarapróf í
lifeðlisfræði ff á Oxford og BA-gráðu í sálar-
fræði frá HÍ. Maður Guðrúnar er Olafur
Hannibalsson og eiga þau tvær dætur. 33
L
105