Frjáls verslun - 01.02.2003, Blaðsíða 86
„Ætlunin var að fá 1000 jeppa með í þessa ferð en það tókst ekki alveg, fengum „bara" rúmlega 600 bíla," segir Páll Halldór
Halldórsson, þjónustustjóri hjá Flytjanda og áhugamaður um jeppa. Hann starfar í varastjórn Ferðaklúbbsins 4x4 og er for-
maður afmælisnefndarinnar.
Ekki bara karlaklúbbur
Um þessar mundir á Ferðaklúbburinn 4x4 20 ára afmæli og
af því tilefni var ákveðið að fara í 1000 bíla ferðalag á jepp-
um. .Ætíunin var að fá 1000 jeppa með í þessa ferð en það
tókst ekki alveg, fengum „bara“ rúmlega 600 bíla,“ segir Páll
Halldór Halldórsson, þjónustustjóri hjá Flytjanda og áhuga-
maður um jeppa. Hann starfar í varastjórn Ferðaklúbbsins 4x4
og er formaður afmælisnefndarinnar.
Farið var í 15 ferðir alls frá fimm stöðum í borginni og tók-
ust þær afskaplega vel. Takmarkið var að allir kæmu á svip-
uðum tíma aftur í bæinn og myndu hittast í Kringlunni til
skrafs og ráðagerða og það tókst fullkomlega. Menn spjölluðu
um bílana, hver ætti flottasta jeppann, hver ætti mest breytta
jeppann, hver dreif mest og svo framvegis. Að því loknu fóru
menn hver til síns heima ánægðir með daginn, en veðrið spilar
ætíð stóran hlut í þessu, enda blíða allan laugardaginn."
4X4 Af og til sjást á sjónvarpsskjá langar raðir af jeppum aka
eitthvað út í buskann og rödd segir frá þvi að nú sé Ferðaklúbb-
urinn 4x4 að fara þetta eða hitt. En hvers konar klúbbur er þessi
4x4? Eru þetta tómir karlar sem fullir eru af karlhormónum og
sjá ekkert nema jeppa?
„Hreint ekki,“ svarar Páll. „Klúbburinn getur miklu fremur
kallast flölskylduklúbbur en nokkuð annað og sé annað hjóna
félagi, fær hitt sjálfkrafa skírteini líka, ef upplýsingar um mak-
ann liggja fyrir. í klúbbnum er mikil og góð flóra jeppamanna /
kvenna sem eiga bæði óbreytta eða breytta jeppa. Klúbburinn
hefur í gegnum tíðina komið mörgum áhugamálum og hags-
munum félagsmanna til leiðar. Þar með talið leyfi til þess að aka
utan vega um óbyggðir landsins, að því tilskildu að það sé
snjór, en megin markmið klúbbsins eru eftirfarandi:
• Að ná til sem flestra sem áhuga hafa á ferðalögum um
landið á ijórhjóladrifnum bílum.
• Að stuðla að góðri umgengni um landið og verndun þess
með jákvæðu fordæmi og umræðu um náttúruvernd.
• Að gæta hagsmuna félaga varðandi búnað flórhjóladrifsbif-
reiða og annað er lýtur að Ijórhjóladrifsbifreiðum og ferða-
lögum í samráði við yfirvöld.
• Að efla þekkingu félagsmanna á öllu því er viðkemur útbún-
aði tjórhjóladrifsbifreiða og ferðalögum um byggðir og
óbyggðir landsins.
• Að efla tengsl og kynni félagsmanna.
Snjór 09 sandltr - sama lögmál Breytingar á jeppum er sér-
íslenskt fyrirbæri sem vakið hefur töluverða athygli erlendis og
þá ekki síst hjá framleiðendum bílanna sem breytt er. Hingað
til lands hafa komið tæknimenn og aðrir sem málið er skylt og
skoða, spyrja og forvitnast og fara með upplýsingarnar út til
hönnuða.
„Það er rétt, þetta vekur athygli enda er litið til okkar sem
hálfgerðra sérfræðinga í þessu," segir Páll. „Algengt er að bílar
séu hækkaðir, stærri dekk sett undir, allt að 44“ en flestir eru þó
með 38“ dekk, sem er sú stærð sem hentar best alhliða til að
aka innanbæjar og til að hægt sé að aka á snjó upp um fjöll og
firnindi. Oftast er byijað á því að hækka upp bílinn, svo að stóru
hjólin komist undir, klippt úr brettum og plastbrettakantar settir
á. Afturhásing færð aftar svo aksturseiginleikar bílanna njóti sín
86