Frjáls verslun - 01.02.2003, Blaðsíða 96
„Það getur verið hagkvæmt fyrir marga af viðskiptavinum
okkar að leigja bílana fremur en að kaupa þá þar sem þeir
þurfa þá ekki að leggja út stórar upphæðir," segir Geir
Gunnarsson.
Bernhard býður rekstrarleigu á öllum bílum sem í boði eru
Peugeot20B .... frá kr. 25.530 m. vsk
Peugeot 307 .... frá kr. 28.290 m. vsk
Peugeot 40G .... frá kr. 33.995 m. vsk
Honda Jazz .... frá kr. 27.830 m. vsk
Honda HRU 4x4 .... frá kr. 34.760 m. vsk
A ■ iAi Honda Stream - 7 manna sjálfsk. .. .... frá kr. 38.410 m. vsk
Honda Accord .... frá kr. 39.970 m. vsk
-0=0- Honda CRV Aduance 4x4 sjálfsk .... frá kr. 49.980 m. vsk
Bernhard ehf:
Bílasala og rekstrarleiga
Gunnar Bernhard, stofnandi fyrir-
tækisins og aðaleigandi, hóf inn-
flutning á hjólum og bætti síðan
bílum við reksturinn 1974. í mars árið
2000 keypti fyrirtækið Peugeot út úr
rekstri Jöfurs hf. og einnig Aðalbíla-
söluna við Miklatorg, sem er elsta
starfandi bílasala landsins. Yið þessi
tímamót var nafni fyrirtækisins stytt í
Bernhard ehf. og um leið var hannað
nýtt lógó sem ætíað var að tákna trausta þjónustu Bernhard ehf.
við eigendur Honda og Peugot bíla á íslandi.
Bernhard ehf., sem rekið er af þremur bræðrum, þeim
Gunnari, Geir og Gylfa Gunnarssonum, býður einnig rekstr-
arleigu á öllum bifreiðum sem í boði eru. „Það getur verið
hagkvæmt fyrir marga af viðskiptavinum okkar að leigja bíl-
ana fremur en að kaupa þá þar sem þeir þurfa þá ekki að
leggja út stórar upphæðir," segir Geir. „Bílarnir eru með þjón-
ustusamningi þar sem séð er um reglubundið viðhald og olíu-
skipti og eru leigusamningarnir til 24 eða 36 mánaða."
Nýr Honda flccord Þann 8. mars kynnti Bernhard ehf.
nýjan Accord frá Honda. „ísland er meðal fyrstu ríkja í
Evrópu sem kynna þennan tíma-
mótabíl," segir Geir. „Hann verður
boðinn í nokkrum útfærslum, m.a.
2.0i og með 2.4i lítra vél. Accord er í
flokki stærri fólksbíla og í júní mun-
um við svo frumsýna Accord Tourer,
sem er skutbílsútfærsla af Accord."
Accord bíllinn þykir líklegur til
verðlauna en hann hefur m.a. verið
valinn bíll ársins í Japan 2002-2003.
Hann er ríkulega búinn staðalbúnaði og er á frábæru verði,
að sögn Geirs, kostar rétt rúmar 2 milljónir.
Annar nýr bíll hjá Bernhard ehf. er Peugeot 307 Station -
góður fjölskyldubíll á ótrúlega góðu verði. Þetta er fjöl-
skyldubíll í orðsins fyllstu merkingu. Hann er öruggur, rúm-
góður að innan og er með gríðarlega gott farangursrými.
Geir segir einnig að Peugeot 206 SW (206 station) verði
einnig kynntur á næstu dögum og að framundan séu spenn-
andi tímar hjá fyrirtækinu. „Við lítum fyrst og fremst á
okkur sem þjónustufyrirtæki og að okkar viðskiptavinir
gangi fyrir öllu,“ segir Geir. „Sú stefna gerir það að verkum
að allt sem við gerum miðast við viðskiptavini okkar og
þeirra þarfir.“ [ffl
Fyrst komu mótorhjólin og svo
bílarnir. Bernhard ehf, umboösadili
/
Honda og Peugeot á Islandi, hefur
þjónað íslenskum viðskiptavinum í
41 ár, hvorki meira né minna.
96