Frjáls verslun - 01.02.2003, Blaðsíða 9
m l
9 i' ilpPi h
er annað stærsta Mgblnaðarfyrirt
veraldar, með tæplega 1 þúsund milljarða króna ársve
45 þúsund starfsmenn. Yfir 90 jrósen%af 500 stærstu fyrir
tækjum Bandaríkjanna eru viðskiptavinir Oracle.
og þjonMuaðili Oracle-viðskiptalausna á íslandi.
lægri rekstrarkostnað, nákvæmari fjárhagsupplýsingar, skjótari
árangur, meiri viðbragðsflýti á markaði, aukna framleiðni og á heildina
litið bætta fjárhagsafkomu," segir Pálmi. „Oracle E-Business Suite
sameinar kosti kerfa á sviði viðskiptagreindar, fjárhags, mannauðs og
verkefnastjómar til að aðstoða stjórnendur við þessi krefjandi verkefni."
VIÐSKIPTALAUSIM SAMHÆFÐ IMETIIMU
„Oracle E-Business Suite er eina lausnin á markaði í dag sem keyrir
alfarið á Internetinu," segir Pálmi. „Aðgangur notenda, hvort sem um
er að ræða starfsmenn, viðskiptavini eða birgja, er gegnum vafra og
því hafa notendur greiðan aðgang að nauðsynlegum upplýsingum
hvenær sem er og hvar sem þeir eru staddir. Par með er að stóru leyti
komið í veg fyrir timafreka og kostnaðarsama uppsetningu á biðlara
fyrir bónaðinn hjá hverjum og einum notanda.
Allar upplýsingar úr hinum ólíku stofnunum eða útibúum fyrirtækis
geta farið í einn upplýsingagrunn og eru aðgengilegar í rauntíma í
gegnum Internetið. Kerfið auðveldar þannig öll samskipti milli rekstrar-
eininga.
Fyrir bragðið verður öll ákvarðanataka og árangursstjórnun stjórn-
enda mun markvissari. Jafnframt gerir þetta kleift að auka og bæta
þjónustu við alla viðskiptavini."
STÆRSTI HUGBÚIMAÐARSAMIMIIMGUR SÖGUIMIMAR
Á siðasta ári vann Skýrr ötullega að innleiðingu á Oracle E-Business
Suite fyrir ríkið, samkvæmt samningi sem undirritaður var 2001. Samn-
ingur íslenska ríkisins og Skýrr um ný fjárhags- og mannauðskerfi fyrir hið
opinbera er langstærsti hugbúnaðarsamningur íslandssögunnar. Núvirði
samningsins er um 1,2 milljarðar króna að öllu samanlögðu.
„Gagnvart rikinu er um að ræða samþætta heildarlausn fyrir stofn-
anir og fyrirtæki hins opinbera á mörgum sviðum," segir Pálmi. Ekki er
vitað til þess að fyrirfinnist annars staðar í heiminum að heil stjórnsýsla
í einu landi taki upp svo víðtækt og samhæft kerfi, eins og ríkið gerði í
þessu tilviki. Oracle Corporation hefur komið á margvíslegan hátt að
þessu máli og fylgist náið með framvindunni. Oracle hefur reyndar lýst
því yfir að verkefnið sé fyrirmynd fyrir rafræna stjórnsýslu annars
staðar í heiminum. Fyrirtækið notar þennan samning og innleiðingu
sem dæmi um framsýni í opinberum rekstri.
HAFIST HAIMDA HJÁ LAIMDSPÍTALA
Ákveðið var að byrja innleiðingu á Landspítala-háskólasjúkrahúsi sem er
fjölmennasti vinnustaðurinn hjá ríkinu. Starfsmannakerfið innan Oracle
E-Business Suite fór í keyrslu vorið 2002 og í byrjun júlí voru fjárhags-
og viðskiptamannabókhald ásamt vörustýringu tekin í reynslunotkun á
nokkrum deildum LSFI. Á haustmánuðum 2002 var hafist handa að
setja upp kerfið fyrir allar stofnanir ríkisins og stefnt er að því að þetta
verkefni, að innleiða nýjar fjárhags- og mannauðslausnir hjá ríkinu,
klárist að stærstum hluta um mitt þetta ár.
Aðrir stórir viðskiptamenn, sem nota Oracle-kerfið, eru Varnar-
liðið og Reykjavíkurborg. Þess má geta að Oracle-launakerfið er full-
komlega samþætt við starfsmanna- og fræðslukerfi Oracle, sem
Reykjavikurborg hefur þegar tekið í notkun. Eitt öflugasta fjármála-
fyrirtæki veraldar, JP Morgan Chase, hefur einnig gengið til samn-
inga við Oracle á grundvelli þess að Oracle E-Business Suite væri
ekki bara öflugasta lausnin af sínu tagi, heldur sú sem hefur mesta
möguleika til að standa undir kröfum fyrirtækisins um arðsemi innri
fjárfestinga í UT-búnaði.33
Pálmi Hinriksson, framkuæmdastjóri Uiðskiptalausna Skýrr.
KYNNING
9