Frjáls verslun - 01.02.2003, Qupperneq 41
IJ
'-tváö
j ;.J
Hii
Hluti af rúmlega 1000 fermetra álglervegg við nýja byggingu Lækjarskóla í Hafnarfirði. Húsið er enn í byggingu.
Engjateigur 7. Um það bil 60% útveggja hússins eru úr gleri.
Álprófílarnir í gluggum hússins voru hannaðir sérstaklega
eftir óskum arkitekta.
IMý tengibygging og anddyri höfuðstöðva VST verkfræði-
stofu.
gler mikið notað í innganga og fordyri verslana og fyrirtækja," segir
Guðmundur. „Par gildir hið sama og i glerveggjum, glerið og álið er
góður kostur þar sem það er svo þægilegt í viðhaldi og gefur glæsi-
legan blæ."
Guðmundur segir húseigendur í
auknum mæli skipta út gömlum tré-
gluggum fyrir nýja álglugga. „Fólk
gerir sér grein fyrir þeim kostnaði
og vinnu sem fer í viðhald tréglugg-
anna og vill heldur eyða tímanum í
annað," segir hann. „Pað er líka vax-
andi markaður fyrir álhurðir, en við
getum boðið þær með nær hvaða
útliti sem er, hvort sem það er
nýtískulegt eða gamaldags. Þetta
er nýjung á íslenskum markaði en í
veðurfari eins og hér hljóta álhurðir
að vera kærkomin lausn."
Lengra sumar
Flestir vilja lengja sumarið svolítið
ef þeir geta. Með því að loka svölum að hluta til eða alveg, jafnvel
stækka svalirnar um leið, skapast leið til þess.
„Á húsum sem hafa mjög litlar svalir er stundum farin sú leið
að stækka þær um leið og þeim er lokað. Það er tiltölulega einföld
aðgerð sem eykur notagildi sval-
anna verulega. Vestursvalir eru
frábærar til að nota seinni part
dags og á kvöldin en svo má Ifka
breyta svölum í e.k. gróðurhús
eða skála, allt eftir óskum hvers
og eins. Þetta er ódýr lausn sem
eykur verðgildi íbúða talsvert auk
þess að gefa fólki möguleika á að
nota sér langa daga sem eru
kannski svolítið kaldir en góðir
innan við glerið. E.k. sumarauki,"
bætir Guðmundur við. „Hið sama
gildir um glerskála f görðum eða
viðbyggingar, allt þjónar þetta
þeim tilgangi að lengja sumarið og
veita birtu og yl inn.“SD
Af stærri verkefnum Áleininga má nefna
nokkur þekkt hús: Hótel Selfoss, Lækjarskóla,
nemendagarða MA á Akureyri, IMesskóla í
IMeskaupstað, Össurarhúsið að Grjóthálsi og
verslanir Skífunnar í Kringlunni og Smáralind.
L ÁL
EININGAR
J
Áleiningar ehf ■ Stórhöfða 25-110 Reykjavík
Sími: 588-7410 - Fax: 587-8410
aleiningar@aleiningar.is
www.aleiningar.is
KYNNING
41