Frjáls verslun - 01.02.2003, Síða 66
Stefán Friðfinnsson, forstjóri íslenskra aðalverktaka, afhendir hér Ingimundi Sigfússyni, forstjóra Eimskips, lykilinn að Vöru-
hótelinu.
Stærsta bygging í Reykjavík
Vöruhótel Eimskips er á vic) fimm Laugardals-
hallir. Viöskiptahugmyndin erjtús og bíll“; p.e.
að innflytjendur og framleiðendur purfi ekki að
jjárfesta í vöruhúsum og vöruflutningabílum en
leigi pjónustu hótelsins í staðinn.
Texti: Svava Jónsdóttir Myndir: Geir Olafsson
Vöruhótel Eimskips er stærsta hús í Reykjavík. Viðskipta-
hugmyndin er eins konar „hús og bíll“, þ.e. að innflytjend-
ur og framleiðendur þurfi ekki að fjárfesta í vöruhúsum
og vöruflutningabílum en leigi þjónustu hótelsins í staðinn.
Þetta er það sniðuga við hugmyndina. Sumir óttast raunar að
það geti tekið svolítinn tíma að ná upp hinum persónulegu
tengslum, sem verið hafa á milli bílstjóra viðkomandi fyrir-
tækja og viðskiptavina þeirra, með þessu nýja fyrirkomulagi.
Vöruhótelið er dótturfyrirtæki Eimskips ehf. og TVG Zimsen.
Islenskir aðalverktakar, IAV, hönnuðu og byggðu hótelið sem
er stálgrindarhús. Grunnflötur þess er um 17.500 fermetrar og
milligólf eru um 5.200 fermetrar. Skrifstofurýrni er um 2.500
fermetrar. Húsið er um það bil 300 þúsund rúmmetrar að
stærð. Frí lofthæð í aðalsalnum er 15 metrar.
Ólafur Hauksson hjá ÍAV
„Við buðum í þetta verk fyrir rúmu ári og í framhaldi af því var
gerður samningur við okkur,“ segir Olafur Hauksson, fram-
kvæmdastjóri framkvæmdasviðs hjá Islenskum aðalverktök-
um. I samningnum fólst að IAV hönnuðu og byggðu húsið og
að það yrði tilbúið í febrúar. Teiknistofa Garðars Halldórssonar
sá um útlit og innra skipulag hússins en IAV sáu um verkteikn-
ingar og útfærslu á arkitektateikningum ásamt allri verkfræði-
hönnun; burðarþols-, rafmagns- og lagnahönnun.
„Það var töluvert lagt í útlit hússins. Það mun væntanlega
koma fram í öllum auglýsingum Eimskips bæði hér á landi og
erlendis."
Hönnun hússins hófst í mars í fyrra, jarðvinna hófst í byijun
apríl og byrjað var að steypa í byijun maí. Byrjað var að reisa
stálgrind hússins í lok júlí og var húsið fokhelt í lok október.
Það var tilbúið í febrúar, tæpu ári eftír undirskrift samnings.
Stálgrindin var hönnuð og smíðuð í Finnlandi. Islenskir
hönnuðir sáu svo um að yfirfara þá hönnun. Á milli 200 og 300
manns unnu við bygginguna. Byijað var að steypa gólfflötinn í
byijun október.
Ólafur Hauksson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs hjá
íslenskum aðalverktökum.
66