Frjáls verslun - 01.02.2003, Síða 76
REKSTRARLEIGA
Hvers vegna rekstrarleiga?
Flestir vilja vera á bíl, hvort sem það er á eigin bíl eða
annarra. Bílar á heimilum eru oftar en ekki tveir fremur
en einn og séu unglingar á bílaaldri til staðar má reikna
með þriðja bíl í viðbót. Bílakaup festa mikið fé og sé reynt að
halda bílunum sæmilega nýjum og í þokkalegum gæðaflokki
má reikna með því að á hverjum tíma séu um það bil 5-6 millj-
ónir bundnar í bílum og jafnvel meira ef einn bíllinn er jeppi
af stærri gerðinni.
Frádráttarbær frá skatd
Við framtalsgerð á launþegi kost á að færa
rekstrarleiguna frá skatti. Hún færist til
gjalda á móti ökutækjastyrknum í
rekstrarreikningi bílsins.
Það er því ekki undarlegt þó rekstrarleiga sé freistandi. Ekki
þarf að binda neitt fé í bílnum, engin útborgun eða stimpilgjald,
aðeins mánaðarlegar greiðslur, allur kostnaður vegna bifreiðar-
innar er iýrirsjáanlegur, reglulegt þjónustueftirlit er tryggt og
leigutaki er ávallt með nýlega bifreið í höndunum.
Skattamir Bifreið á rekstrarleigu er ekki skattskyld hjá leigu-
taka, heldur hjá leigusala og leigusamningurinn er skattskyld
skuld hjá leigutaka. Hún er því ekki afskrifuð hjá leigutaka ef
hann er rekstraraðili. Sá sem fær greiddan ökutækjastyrk
vegna bifreiðar sem hann er með til umráða og er á rekstrar-
leigu, getur farið fram á endurgreiðslu af greiddri staðgreiðslu
likt og um hans eigin bifreið væri að ræða.
Hvernig virka rekstrarleigusamningar? Sé miðað við bifreið af
millistærð og þriggja ára leigusamning upp á 36.900 krónur á
mánuði sem einstaklingur tekur á leigu, lítur dæmið svona út:
Viðkomandi fær greiddan ökutækjastyrk frá atvinnurekanda
samkvæmt akstursdagbók. Við framtalsgerð á launþegi kost á
að færa frádrátt á móti ökutækjastyrk. Sundurliðaður er
rekstrarkostnaður bifreiðarinnar og reiknaður út kostnaður á
ekinn km. Til lækkunar á tekjuskattsstofni færist kostnaður
vegna ekinna km í þágu launagreiðanda.
Leigugreiðslurnar eru ekki frádráttarbærar. Gefum okkur
að rekstrarkostnaður á ári sé 600.000 kr. (miðað við 20.000 km)
að meðtalinni árlegri afskrift og að mánaðarlegar leigugreiðslur
séu 36.900 kr. Einnig gerum við ráð týrir að kostnaður vegna
hjólbarða og smurningar sé 40.000 kr. á ári ef aðili er ekki með
rekstrarleigu. Akstur í þágu launagreiðanda er 3.000 km sam-
kvæmt akstursdagbók. Miðað við þessar forsendur er niður-
staðan eftirfarandi:
fln leigu Með leigu
Rekstrarkostnaður á ári Kostnaður við smumingu og 600.000 600.000
hjólbarða innifalinn í leigu 0 (50.0001
600.000 550.000
Kostnaður á km 30,00 27,5
Akstur í þágu launagreiðanda Til frádráttar á tekjuskattsstofni 3.000 3.000
við álagningu 90.000 82.500
Endurgreitt við álagningu 34.884 31.977
Eins og taflan ber með sér þá er lítil breyting á endurgreiðslu
við álagningu við það að ekki sé hægt að sýna fram á kostnað
vegna smurningar og hjólbarða. Miðað við að kostnaður við
þessa þætti sé 50.000 kr. á ári þá lækkar endurgreiðsla um
2.907 kr.
Hvaða áhrif hefur rekstrarleigan á launin? Fyrirtæki tekur
bifreið á rekstrarleigu og afhendir starfsmanni til fullra og
ótakmarkaðra umráða. Laun starfsmannsins eru lækkuð sem
nemur heildarleigugreiðslum. Starfsmaðurinn greiðir allan
rekstrarkostnað týrir utan þann sem fellur undir þjónustuhluta
rekstrarleigusamningsins. Mánaðarlaun starfsmanns eru
300.000 kr. Starfsmaðurinn þarf að reikna sér bifreiðahlunnindi
eins og áður hefur komið fram. Starfsmaðurinn greiðir elds-
neytiskostnað og við það lækkar hlunnindamat úr 20% í 16%.
Hlunnindamatið er síðan lækkað enn frekar vegna trygginga
og bifreiðagjalda. Gerum ráð iýrir að tryggingar og bifreiða-
gjöld séu 100.000 kr. á ári. Bifreiðahlunnindi 18.067 kr. á mánuði
eru reiknuð út á eftirfarandi hátt:
Skattmat bifreiðar skv.
bifreiðaskrá ríkisskattstjóra 1.980.088
10%
Hlunnindamat fyrir rekstrarkostnað 316.800
Tryggingar og bifreiðagjöld (100.000)
Hlunnindamat á ársgrundvelli 216.800
Hlunnindamat á mánuði 18.007
Miðað við reiknuð bifreiðahlunnindi 18.067 kr. á mánuði og
lækkun launa sem nemur leigugreiðslum lækka útborguð laun
starfsmannsins um 28.124 kr. sbr. eftirfarandi:
Án leigu Með leigu
Mánaðarlaun 300.000 203.100
Bifreiðahlunnindi 0 18.067
Tekjuskattur (116.280) (108.980)
Persónuafsláttur 25.245 25.245
Greitt í lífeyrissjóð 4% (12.000) (10.524)
Bifreiðahlunnindi 0 (18.067)
Útborguð laun 190.905 108.841
76