Frjáls verslun - 01.05.2003, Qupperneq 28
FJÁRDRÁTTUR í FYRIRTÆKJUM
Kristján Ra. og Árni Þór keyptu rekstur
Planet City í Reykjavík ásamt Eyþóri
Arnalds.
■b ps Pl gsl
... komu að veitingarekstri og ráku kaffihúsið Prikið við Laugaveg...
HHH BJlIíjC J .
Fyrirtækið Lífsstíll var til húsa að Mýrar-
götu 2. Það óx hratt og var komið með
yfir 100 starfsmenn á einu ári.
...og sáu um veitingareksturinn á
Hótel Borg.
Skjár einn er til húsa að Skipholti 19 í
Reykjavík.
Jafnaldrar og kynntust í
FélagarnirArni Þór Vig/usson ogKristján Ra. Kristjánsson
eru með allra þekktustu mönnum í íslensku viðskiþtalífi.
Þeir hafa þótt hrífandi og hugmyndaríkir og að mestu stýrt
fjárfestingum sínum í öðrum félögum ígegnum fyrirtœkið
sittAlvöru lífsins hf. sem fékk 130 milljónirfrá Símanum.
EfUr Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndir Geir Ólafsson
eir eru jafnaldrar, báðir 27 ára, og hittust í Versló þar
sem þeir bundust vináttuböndum. Þeir unnu saman að
uppsetningu leiksýninga, bæði í Versló og eftir stúd-
entspróf, og lögðu þar grundvöllinn að samstarfi sínu. I
Versló hafði Arni Þór Vigfússon yfirumsjón með söng-
leiknum Cats og Kristján Ra. Kristjánsson sá um markaðs-
setninguna en það var hreint alls ekki síðasta uppsetningin
sem þeir komu að. Arni Þór vann að uppsetningu á
Stonefree og þeir Kristján síðan saman að Evítu. Þeir settu
upp Trainspotting og síðan Hellisbúann með Bjarna Hauki
Þórssyni leikara og slógu aðsóknarmet með yfir 80 þúsund
gestum á síðarnefndu sýninguna. Kristján Ra. lauk stúd-
entsprófi vorið 1997, lagði síðan stund á íjármálafræði og
hagfræði við Hartford-háskóla í Connecticut í Bandaríkj-
unum 1998-1999. Arni Þór lauk stúdentsprófi frá Versló
1996, stundaði nám í heimspeki við Háskóla Islands 1997-
1998. Asamt fleiri ijárfestum festu þeir kaup á 75% hlut í
sjónvarpsstöðinni Skjá einum sumarið 1999.
Ókeypis Sjónvarp Hugmyndin að nýju Ijölmiðla- og lífsgleði-
íýrirtæki varð til kvöld eitt þegar Arni Þór sat íýrir framan
sjónvarpið og var að horfa á Skjá einn. Honum fannst eitthvað
vanta í islenskt sjónvarp og hringdi í vin sinn, Kristján Ra„
sem þá var enn við nám í Bandaríkjunum og bar undir hann
hugmyndina um að kaupa Skjá einn. Kristjáni leist vel á það
og þeir settu vinnu í gang, fengu Jón Arnalds hrl. til liðs við
sig og sömuleiðis 3p-ijárhús með bræðurna Sigurð Gísla og
Jón Pálmasyni og Pál Kr. Pálsson innan borðs. Arið 1999
keyptu þeir sem sagt ásamt fýrrnefndum ijárfestum 75% hlut
í Islenska sjónvarpsfélaginu og tóku við rekstrinum. Arni Þór
tók við starfi sjónvarpsstjóra og Kristján Ra. varð ijármála-
stjóri. Hólmgeir Baldursson, stofiiandi stöðvarinnar, hélt eftir
25% hlut og varð dagskrárstjóri. Sama haust keypti Islenska
sjónvarpsfélagið hf. kvikmyndaiýrirtækið Nýja bíó að fullu
þar sem hagkvæmt þótti að eiga stúdíó og allan búnað til kvik-
myndagerðar fýrir innlenda dagskrárgerð. Stefnan var jú sett
á íslenska dagskrárgerð og markmiðið strax að bjóða upp á
ókeypis sjónvarp iyrir almenning með sjónvarpsstöð sem ijár-
mögnuð yrði með auglýsingum.
Gríðarleg bjartsýni ríktí á Islandi eins og um allan heim árið
2000. Fyrirtækið Islenska netfélagið var stofnað í ársbyijun
2000. Stofnendur voru 3p-fjárhús, Arni Þór, Kristján Ra„ Jón
Arnalds, kvikmyndafyrirtækið Nýja bíó og hugbúnaðarhúsið
Juventus, eða í öllum aðalatriðum sömu aðilar og stóðu að
Islenska sjónvarpsfélaginu. Tilgangurinn var að setja á fót
stærstu netverslun landsins vorið 2000 en sú verslun komst
aldrei á koppinn.
28